Morgunblaðið - 18.04.2015, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2015
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Courtney Barnett vakti fyrstathygli þegar platan TheDouble EP: A Sea Of Split
Peas, kom út 2013. Um var að ræða
tvær stuttskífur sem höfðu komið
út nokkru áður í heimalandi henn-
ar Ástralíu en með því að sam-
ræma þær í eina breiðskífu ef svo
má segja fóru miðlarnir loksins í
gang, breiðskífumiðaðir sem þeir
eru jafnan. Ekki spillti fyrir að
Barnett hélt um það leyti umtalaða
tónleika á CMJ og SXSW-
tónlistarhátíðunum í Bandaríkj-
unum og boltinn fór að rúlla fyrir
alvöru eftir það. Barnett, sem
hafði aldrei ferðast út fyrir Ástr-
alíu, var allt í einu farin að troða
upp í London, gefa viðtöl við The
New York Times og syngja með
Billy Bragg.
Heillandi
En hvað er það sem heillar?
Hvað er það sem er að æsa brans-
ann svona? Barnett er laun-
sjarmerandi getum við sagt, kem-
ur til dyranna eins og hún er
klædd, á uppstilltum myndum
horfir hún út í loftið og togar
feimnislega í hárið á sér, í galla-
buxum og hvítum bol. Það er yfir
henni hangsara-ára, hugurinn leit-
ar ósjálfrátt að upphafi tíunda ára-
tugarins, kannski svipað og með
Söngur um lífið
Umyrðalaust Tónlistarkonan Courtney Barnett yrkir einlæglega um ósköp venjulega hluti.
vinsælar andhetjur samtímans eins
og Kurt Vile og Mac DeMarco. Það
er nákvæmlega ekkert glys í
kringum þetta fólk, það lítur út
eins og ráðvilltir fyrsta árs há-
skólanemar.
Tónlist Barnett er þó öllu
hrárri en þeirra sem ég nefni hér
og það er fyrst og fremst hún sem
hefur verið að hreyfa við fólki.
Einkanlega þá textarnir. Tónlistin
eru rafmagnaðar söngvaskálda-
smíðar, jú minna á lágfitslegt (e.
„lo-fi“) hjakk misþekktra nýrokks-
sveita frá hangsara-áratugnum en
þær mynda fyrst og síðast ramma
utan um hversdagsskáldskap Bar-
nett sem er oft og tíðum snilldar-
lega ígrundaður. Hér er tengt við
upplifanir sem allir þekkja og geta
tengt við, eitt lagið fjallar um sjón-
varpið hennar sem hefur verið bil-
að í fjögur ár þar sem hún hefur
aldrei nennt að gera við það, annað
um húsrölt ásamt ýkjuhneigðum
fasteignasala og í einu þeirra seg-
ir: „The paramedic thinks I’m cle-
ver cos I play guitar/ I think she’s
clever cos she stops people dying.“
Mér varð hugsað til Daniel Jo-
hnston í þessu samhengi og ein-
hvers sem hægt væri að kalla ægi-
hreinskilni. Jonathan Richman
hefur þá verið nefndur og einnig
Stephen Malkmus. Sjálf hefur hún
talað um Lemonheads. Allt á þetta
við.
Stokkið
Rolling Stone, The Independ-
ent, Guardian … að ekki sé minnst
á smærri og sérhæfðari tónlistar-
miðla. Allir eru þessir aðilar að
stökkva á Barnett og fleiri til. Það
hljómar klisjulega, en mögulega er
æsingurinn vegna þessa jarð-
bundna – en um leið skáldlega –
viðhorfs til umheimsins sem Bar-
nett býr yfir. Hún er að fjalla um
eitthvað, er að reyna að skilja at-
ganginn í kringum sig, er að nota
tónlistina til að tengjast einhverju
raunverulegu. Fyrsta „alvöru“
breiðskífa Barnett, Sometimes I
Sit And Think, And Sometimes I
Just Sit, kom út í endaðan mars og
hefur verið ausin lofi linnulaust
síðan. Barnett er, eðlilega og sam-
kvæmt því sem hún boðar, fremur
ódramatísk þegar hún er spurð
hvernig hún fari að þessu. Þetta
sagði hún við Skinny, menningar-
götublað sem kemur út í Glasgow
og Edinborg: „Ef eitthvað kemur
upp í hugann og dvelur þar lengur
en í tvær sekúndur … þá geri ég
ráð fyrir því að það hafi einhverja
þýðingu …“ Lítið gefið upp, og það
ærir eðlilega mannskapinn!
»Mögulega er æs-ingurinn vegna
þessa jarðbundna – en
um leið skáldlega – við-
horfs til umheimsins
sem Barnett býr yfir.
Tónlistarkonan Courtney Barnett vekur athygli
Glúrið og ofureinlægt götuskáld frá Ástralíu
Jónborg – Eld-
borg nefnist mál-
verkasýning sem
Jónborg Sigurð-
ardóttir, betur
þekkt sem
Jonna, í Mjólkur-
búðinni á Akur-
eyri, opnar í dag
kl. 14.
„Að þessu
sinni tjáir Jonna kraft eldsins og
lífsorkunnar í eigin tilfinningum í
málverkum sem hún vinnur með
akríl á striga,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu. Jonna útskrifaðist úr mál-
unardeild Myndlistarskólans á Ak-
ureyri vorið 1995, lærði fata-
hönnun í Danmörku og útskrifaðist
þaðan 2011. Jonna hefur tekið þátt
í fjölda samsýninga og haldið
nokkrar einkasýningar. Sýningin
stendur til 26. apríl og er opin laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Jónborg sýnir í
Mjólkurbúðinni
Jonna
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Sun 19/4 kl. 19:00 aukas. Fim 7/5 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00
Mið 22/4 kl. 19:00 Fös 8/5 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 19:00
Fim 23/4 kl. 19:00 Lau 9/5 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00
Fös 24/4 kl. 19:00 Sun 10/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00
Sun 26/4 kl. 19:00 Mið 13/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00
Mið 29/4 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00
Fim 30/4 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00 Mið 3/6 kl. 19:00
Sun 3/5 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Fim 4/6 kl. 19:00
Þri 5/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00
Mið 6/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 18/4 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00 Sun 17/5 kl. 13:00
Sun 19/4 kl. 13:00 Sun 3/5 kl. 13:00
Lau 25/4 kl. 13:00 Sun 10/5 kl. 13:00
Síðustu sýningar leikársins
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k
Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Sun 3/5 kl. 20:00 17.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas.
Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Mið 6/5 kl. 20:00 aukas. Mið 13/5 kl. 20:00 22.k.
Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Fim 7/5 kl. 20:00 18.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k.
Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k Fös 15/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Lau 9/5 kl. 20:00 20.k. Fim 21/5 kl. 20:00
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 18/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 18/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00
Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00
Sýningum fer fækkandi
Hystory (Litla sviðið)
Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Fös 8/5 kl. 20:00 auka. Mið 20/5 kl. 20:00 auka.
Fös 24/4 kl. 20:00 5.k. Fim 14/5 kl. 20:00
Mið 29/4 kl. 20:00 6.k. Fös 15/5 kl. 20:00
Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur
Peggy Pickit sér andlit guðs (Litla sviðið)
Mið 22/4 kl. 20:00 frums. Sun 3/5 kl. 20:00 5.k. Sun 17/5 kl. 20:00
Fim 23/4 kl. 20:00 2.k Fim 7/5 kl. 20:00 6.k. Fim 21/5 kl. 20:00
Sun 26/4 kl. 20:00 3.k. Lau 9/5 kl. 20:00
Fim 30/4 kl. 20:00 4.k. Sun 10/5 kl. 20:00
Urrandi fersk háðsádeila frá einu umtalaðasta leikskáldi Evrópu
Beint í æð! –★★★★ , S.J. F.bl.
leikhusid.is Segulsvið – ★★★★ „Mikill galdur“ – AV, DV
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Fjalla - Eyvindur og Halla (Stóra sviðið)
Lau 18/4 kl. 19:30 9.sýn Lau 25/4 kl. 19:30 11.sýn Sun 3/5 kl. 19:30 13.sýn
Fös 24/4 kl. 19:30 10.sýn Lau 2/5 kl. 19:30 12.sýn
Eitt magnaðasta verk íslenskra leikbókmennta í uppsetningu Stefan Metz.
Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið)
Sun 19/4 kl. 19:30 Aukas. Sun 26/4 kl. 19:30 Lokas.
Allra síðustu sýningar!
Segulsvið (Kassinn)
Lau 18/4 kl. 19:30 10.sýn Lau 25/4 kl. 19:30 11.sýn Sun 26/4 kl. 19:30 12.sýn
Nýtt leikverk eftir Sigurð Pálsson
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Sun 19/4 kl. 13:30 Þri 26/5 kl. 13:30
Sun 19/4 kl. 15:00 Þri 26/5 kl. 15:00
Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn!
Leitin að Jörundi (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 3/5 kl. 20:00 Sun 10/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00
Sápuópera um hundadagakonung
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Macho Man Saving History (Salurinn)
Sun 3/5 kl. 20:00
Sviðslistahátíð Assitej (Salurinn)
Þri 21/4 kl. 17:00 Fim 23/4 kl. 12:00 Lau 25/4 kl. 13:00
Mið 22/4 kl. 9:30 Fim 23/4 kl. 15:00 Lau 25/4 kl. 16:00
Mið 22/4 kl. 17:00 Fös 24/4 kl. 9:00 Lau 25/4 kl. 18:00
Síðbúin rannsókn (Aðalsalur)
Mán 11/5 kl. 20:00 Þri 12/5 kl. 20:00 Fös 15/5 kl. 20:00
Both Sitting Duet og Body Not Fit For Purpose (Salurinn)
Lau 30/5 kl. 20:00
The Border (Salurinn)
Mán 18/5 kl. 20:00 Þri 19/5 kl. 20:00
Endatafl (Salurinn)
Fös 1/5 kl. 20:00 Fim 14/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00
Lau 2/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Fim 7/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00
Fös 8/5 kl. 20:00 Sun 24/5 kl. 20:00
Hávamál (Salurinn)
Mið 27/5 kl. 20:00 Sun 31/5 kl. 20:00 Lau 6/6 kl. 20:00
Boðið verður upp á söngleikja-
námskeið á Kex Hostel á morgun kl.
13, en námskeiðið er hluti af „Heim-
ilislegum sunnudögum“. „Sigríður
Eyrún Friðriksdóttir stýrir stuttu
söngleikjanámskeiði fyrir káta
krakka á öllum aldri þar sem verður
farið yfir grunnatriði í leik og söng.
Hún mun meðal annars taka fyrir at-
riði úr Mary Poppins,“ segir m.a. í
tilkynningu. Allir eru velkomnir og
enginn aðgangseyrir.
Söngleikjanámskeið á Kex Hostel
Söngdífa Sigríður Eyrún Friðriksdóttir lék í uppfærslu Borgarleikhússins á Mary Poppins.