Morgunblaðið - 27.02.2015, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2015
REYKJAVÍK
HLÍÐAR, HOLT OG NORÐURMÝRI
H
EI
MS
ÓKN Á HÖFUÐBO
R
G
A
R
S
V
Æ
Ð
IÐ
2015
Hlíðar með Suðurhlíðum, Holtum
og Norðurmýri mynda saman
einn borgarhluta í stjórnsýslu
Reykjavíkurborgar. Til borg-
arhlutans teljast einnig Öskjuhlíð
og Nauthólsvík. Í vestur markast
hverfið af línu sem er dregin um
miðja Snorrabraut, gamla Flug-
vallarveg og Hlíðarfót. Í austur
markast hverfið af línu sem dreg-
in er eftir miðri Kringlumýr-
arbraut. Í norðri markast hverfið
af línu sem er dregin um miðja
Hverfisgötu og Laugaveg. Meg-
ineinkenni hverfisins er nokkuð
þétt og gróin íbúðabyggð. Þar
eru tvö grunnskólahverfi, Hlíða-
skóli og Háteigsskóli. Í hverfinu
eru einnig fjölmennir framhalds-
skólar, sérskólar og háskólar.
Nefna má Tækniskólann, Mennta-
skólann við Hamrahlíð, mennta-
vísindasvið Háskóla Íslands og
Háskólann í Reykjavík. Íþrótta-
svæði Vals er í hverfinu og úti-
vistarsvæði á Miklatúni. .
Margir skólar eru í
Hlíðum og nágrenni
Gróið og fastmótað hverfi
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Um verk listaskálds litanna,
eins og Jóhannes Sveinsson Kjarval
er stundum nefndur, gilda lögmál
borgarísjakans. Sú tíund jakanna
sem sést er stórbrotin, en 90% eru í
felum undir yfirborðinu. Verk lista-
mannsins eru til sýnis að staðaldri á
Kjarvalsstöðum við Klambratún, en
flest verkin, lítil sem stór, eru í
geymslum í kjallara hússins.
„Jóhannes Kjarval var áhrifa-
mikill. Kannski má segja að hann sé
listamaður af þeirri stærðargráðu að
enginn af þeim sem fást við myndlist
í dag komist hjá því taka til hans af-
stöðu. Það er hlutverk safnsins að
varðveita verkin og að hafa þau til
sýnis. Við erum sífellt að velta upp
nýjum hliðum á höfundarverki Kjar-
vals með ólíkum sýningum,“ segir
Helga Lára Þorsteinsdóttir, deild-
arstjóri safnadeildar Listasafns
Reykjavíkur.
Kjarvalsstaðir eru í hjarta
Hlíðahverfis. Það var árið 1966 sem
hafist var handa við byggingu húss-
ins sem tekið var í notkun 1973 og er
þetta fyrsta bygging á Íslandi sem er
sérstaklega hönnuð fyrir myndlist.
Tveir sýningarsalir eru í húsinu.
Í vestursal eru fjölbreyttar sýningar
ólíkra listamanna og um þessar
mundir eru verk Einars Hákonar-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
List „Sífellt að velta upp nýjum hliðum á höfundarverki Kjarvals með sýningum,“ segir Helga Lára Þorsteinsdóttir.
Gullmolar í geymslunni
Kjarval er geymdur í kjallaranum Mörg þúsund verk varðveitt á
öruggum stað Nýmálað I og II eru áhugaverðar sýningar vorsins
Hvalasagan Frumgerð af frægu
verki sem Kjarval skapaði.
Hið fornfræga
knattspyrnu-
félag Valur rek-
ur sögu sína aft-
ur til ársins 1911
þegar ungir
menn í KFUM
tóku sig til og
stofnuðu félag
utan um knatt-
spyrnuiðkun
sína. Æskulýðsstarf Vals blómstrar
nú sem aldrei fyrr og segir Björn
Zoëga formaður stjórnar félagsins
að aldrei hafi verið jafnmargir iðk-
endur á barns- og unglingsaldri hjá
félaginu.
„Með góðu og öflugu kynning-
arstarfi og sterkum stuðningi við
iðkendur þá náðum við að fjölga í
þeim hópi. Við erum með mjög gott
barna- og unglingaráð sem hefur
unnið virkilega gott starf síðustu
árin.“
Fyrirhugað er að stækka Vals-
svæðið til að gera aðstöðu iðkenda
betri. „Aðstaðan er mjög góð en
framkvæmdirnar eru áformaðar til
að bæta hana enn meira,“ segir
Björn og bætir við að vel hafi geng-
ið hjá afreksliðum Vals.
„Knattspyrnulið karla varð
Reykjavíkurmeistari fyrir skömmu
og lið kvenna lenti í öðru sæti. Í
handbolta karla erum við efstir í
deildinni og bæði karla- og kvenna-
liðin eru komin í undanúrslitin í
bikarnum.“ sh@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Sigur Valsmenn fögnuðu Reykjavíkurmeistaratitlinum fyrir skömmu.
Öflugt æskulýðsstarf
Vals í Hlíðahverfinu
Björn Zoëga
Villidýr á verði
tiger.is · facebook.com/tigericeland
Lestraraðstoð 800,-
Sendum í póstkröfu.
S: 528 8200