Ægir

Årgang

Ægir - 01.10.2014, Side 17

Ægir - 01.10.2014, Side 17
17 Matís ohf. er í mörgum skilningi mikilvæg auðlind fyrir Íslendinga. Fyrirtækið er lykilaðili í matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur að baki sér þekkingu 100 starfsmanna sem eru sérfræðingar og vísindamenn á ólíkum sviðum. Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þæ styðja framþróun, nýsköpun og markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt unnið að fjölda rannsóknarverkefna sem tengjast sjávarútvegi með ýmsum hætti. Þannig leitum við sífellt svara og vitum alltaf meira í dag en í gær. Rannsóknir í þágu sjávarútvegs Gildi Matís  Frumkvæði  Sköpunarkraftur  Metnaður  Heilindi www.matis.is Stefna Matís er að  ... vera framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni Íslands og skilar þannig tekjum til íslenska ríkisins  ... vera eftirsóttur, krefjandi og spennandi vinnustaður með fyrsta flokks aðstöðu þar sem starfsmenn njóta sín í starfi  ... hafa hæft og ánægt starfsfólk Hlutverk Matís er að  ... efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs  ... tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu umhverfisins með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu  ... bæta lýðheilsu leiðir omega-duft og –olíur sem og rannsóknastofnanirnar VTT í Finnlandi, TNO í Hollandi og Háskólinn í Mílanó á Ítalíu. Tveggja ára verkefni Sem fyrr segir hófst EnRichMar í byrjun þessa árs og því lýkur í lok næsta árs. Emilía Martins- dóttir, fagstjóri hjá Matís, segir að verkefnið hafi gengið vel það sem af er. Meðal annars hafi verið unnar markaðsrann- sóknir í fimm Evrópulöndum þar sem hafi greinst áhugaverð markaðstækifæri fyrir vörur frá fyrirtækjunum sem taka þátt í verkefninu. Á þessu ári hafa fulltrúar þátttakenda fundað annars vegar hér á landi í byrjun þessa árs og seinni fundurinn var í Hollandi í maí. Þá voru fulltrúar verkefnisins í Brussel í nóvem- ber sl. þar sem þeir gerðu grein fyrir stöðu þess. Næsta vor bera þátttakendur saman bækur sín- ar í Finnlandi og lokafundurinn verður í Háskólanum í Mílanó á Ítalíu að tæpu ári liðnu. Grímur Þór Gíslason hjá Grími kokki ehf. segir ekki síst mikilvægt að út úr þessu verk- efni verði til mikil þekking inni í fyrirtækinu sem nýtist vel í framhaldinu. Þetta eigi til dæm- is við um hvernig unnt sé að halda óskertri virkni omega-3 með eldun sjávarréttanna. Um er að ræða tveggja ára verkefni sem lýkur í lok næsta árs.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.