Ægir - 01.10.2014, Page 17
17
Matís ohf. er í mörgum skilningi mikilvæg auðlind fyrir Íslendinga. Fyrirtækið er lykilaðili í
matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur að baki sér þekkingu 100 starfsmanna
sem eru sérfræðingar og vísindamenn á ólíkum sviðum.
Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þæ styðja framþróun, nýsköpun og
markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt unnið að fjölda rannsóknarverkefna sem
tengjast sjávarútvegi með ýmsum hætti. Þannig leitum við sífellt svara og vitum alltaf
meira í dag en í gær.
Rannsóknir
í þágu sjávarútvegs
Gildi Matís
Frumkvæði
Sköpunarkraftur
Metnaður
Heilindi
www.matis.is
Stefna Matís er að
... vera framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni
Íslands og skilar þannig tekjum til íslenska ríkisins
... vera eftirsóttur, krefjandi og spennandi vinnustaður með fyrsta
flokks aðstöðu þar sem starfsmenn njóta sín í starfi
... hafa hæft og ánægt starfsfólk
Hlutverk Matís er að
... efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs
... tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu
umhverfisins með rannsóknum, nýsköpun og
þjónustu
... bæta lýðheilsu
leiðir omega-duft og –olíur sem
og rannsóknastofnanirnar VTT í
Finnlandi, TNO í Hollandi og
Háskólinn í Mílanó á Ítalíu.
Tveggja ára verkefni
Sem fyrr segir hófst EnRichMar í
byrjun þessa árs og því lýkur í
lok næsta árs. Emilía Martins-
dóttir, fagstjóri hjá Matís, segir
að verkefnið hafi gengið vel
það sem af er. Meðal annars
hafi verið unnar markaðsrann-
sóknir í fimm Evrópulöndum
þar sem hafi greinst áhugaverð
markaðstækifæri fyrir vörur frá
fyrirtækjunum sem taka þátt í
verkefninu.
Á þessu ári hafa fulltrúar
þátttakenda fundað annars
vegar hér á landi í byrjun þessa
árs og seinni fundurinn var í
Hollandi í maí. Þá voru fulltrúar
verkefnisins í Brussel í nóvem-
ber sl. þar sem þeir gerðu grein
fyrir stöðu þess. Næsta vor bera
þátttakendur saman bækur sín-
ar í Finnlandi og lokafundurinn
verður í Háskólanum í Mílanó á
Ítalíu að tæpu ári liðnu.
Grímur Þór Gíslason hjá
Grími kokki ehf. segir ekki síst
mikilvægt að út úr þessu verk-
efni verði til mikil þekking inni í
fyrirtækinu sem nýtist vel í
framhaldinu. Þetta eigi til dæm-
is við um hvernig unnt sé að
halda óskertri virkni omega-3
með eldun sjávarréttanna.
Um er að ræða tveggja ára verkefni sem lýkur í lok næsta árs.