Ægir - 01.10.2014, Blaðsíða 53
53
svipað og á árunum 2009-2012
og jókst frá árinu 2013. Hjá
stærsta þorskinum (85-115 cm)
var fæðumagnið hins vegar
svipað og á árunum 2008-2010
Sex ára niðursveiflu í
ýsustofninum lokið
Sex ár í röð hefur ýsuárgangur
mælst mjög lélegur í haustralli
en nú brá svo við að einungis
stóri árgangurinn frá 2003 hef-
ur mælst stærri í haustralli en
árgangur 2014 reynist vera.
„Stofnvísitala ýsu er svipuð og
ún var árið 2013. Á árunum
2002-2006 hækkaði hún í kjöl-
far góðrar nýliðunar, en fór ört
lækkandi næstu fjögur árin þar
á eftir. Borið saman við árið
2013 fékkst nú minna af 25-35
cm ýsu, en svipað magn fékkst
af ýsu stærri en 40 cm. Lengdar-
dreifing ýsunnar sýnir einnig að
ýsa minni en 55 cm er undir
meðaltali í fjölda, en stærri ýsa
yfir meðaltali. Aldrei hefur
fengist eins mikið af ýsu 10 ára
og eldri í haustralli en árin 2013
og 2014 og er þar að mestu um
að ræða stóra árganginn frá
2003 sem nú er 11 ára. Meðal-
þyngd eftir aldri hefur hækkað
umtalsvert síðan 2010 og er yfir
meðaltali hjá öllum árgöngum,“
segir í stofnmælingaskýrslunni
en mest fékkst af ýsu á grunn-
slóðinni fyrri Norðurlandi.
Háar vísitölur í mörgum stofnum
Fleiri fiskistofnar komu vel út úr
haustrallinu. Þannig er um gull-
karfann sem gaf hæstu heildar-
vísistölu frá upphafi haustralls-
mælinga. Heildarvísitala gull-
karfa í haustmælingunni mæld-
ist sú hæsta frá árinu 1996. Hef-
ur vísitalan aukist jafnt og þétt
frá árinu 2000 og eru vísitölur
Hjallahraun 2 - 220 Hfj. - s. 562 3833 - www.asafl.is - asafl@asafl.is
Ráðgjöf - Sala - Þjónusta
SanddælurBrunndælurDælur með snigilhjóli
Austurdælur 12 - 24v Austurdælur 12 - 24vBorholudælur
MIKIÐ ÚRVAL AF DÆLUM
Heildarvísitala þorsks í vorralli 1985-2014 (heil lína, grátt svæði) og
haustralli 1996-2014 (punktar, lóðréttar línur). Ekki var farinn leiðang-
ur að hausti árið 2011. Skyggða svæðið og lóðréttu línurnar sýna eitt
staðalfrávik í mati á vísitölum (68% líkur á að endurtekin mæling lendi
innan svæðanna).
Heildarvísitala ýsu í vorralli 1985-2014 (heil lína, grátt svæði) og haust-
ralli 1996-2014 (punktar, lóðréttar línur). Ekki var farinn leiðangur að
hausti árið 2011. Skyggða svæðið og lóðréttu línurnar sýna eitt stað-
alfrávik í mati á vísitölum (68% líkur á að endurtekin mæling lendi inn-
an svæðanna). Myndir: Hafrannsóknastofnun
Flestar vísitölur botnfiskstofna
eru jákvæðar, samkvæmt haust-
rallinu.