Morgunblaðið - 16.05.2015, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 6. M A Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 114. tölublað 103. árgangur
ÞROSKAÐAR
FYRIRSÆTUR MEÐ
MJÚKAR LÍNUR
Í́SLENSKIR HRÚTAR Í CANNES
LÓFAKLAPP Á HEIMSFRUMSÝNINGU 49PULP-TÍSKUVIKA 10
Morgunblaðið/Þorkell
Neysla Fólk kaupir nú unnar kjötvörur í
auknum mæli í verslunum.
Heldur er tómlegt um að litast
þar sem ferskur kjúklingur og
svínakjöt á að vera í matvöruversl-
unum. Að sögn forstjóra Slátur-
félags Suðurlands hefur sala á
lamba- og nautakjöti aukist síðustu
vikur og sömu sögu er að segja af
unnum kjötvörum sem fólk kaupir
nú í auknum mæli. Ekki er slátrað á
meðan dýralæknar Matvælastofn-
unar eru í verkfalli nema í undan-
þágutilvikum en þá eru sláturaf-
urðirnar settar í frysti. Fyrirtæki í
þessum greinum lýstu yfir í gær að
tjón svína- og alifuglabúgreinanna
væri a.m.k. 80-100 milljónir kr. á
viku á meðan eðlileg slátrun er ekki
leyfð. »12
Aukin neysla á
unnum kjötvörum
í verkfallinu
Benedikt Bóas
Björn Jóhann Björnsson
„Við byrjuðum fundinn ferlega neikvætt en svo
var lagt fram nýtt plagg með breyttum áherslum
og framsetningu. Við sátum yfir því og tölurnar
eru nær því að vera okkur að skapi og það verður
áfram unnið með það. Það má segja að þetta hafi
verið jákvæðasti dagurinn hingað til,“ segir Krist-
ján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur, sem er aðili að Flóa-
bandalaginu.
Gangur er í samningaviðræðum Samtaka at-
vinnulífsins, Flóafélaganna, VR og Landssam-
bands íslenskra verslunarmanna en næsti fundur
verður á sunnudag.
Í gær ákvað Starfsgreinasambandið að fresta
fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum um eina viku til
að gefa SA tækifæri til að koma með betra tilboð.
Ekkert þokaðist í viðræðum BHM og ríkisins í
gær og er næsti samningafundur boðaður á mánu-
dag. „Það var farið að hreyfast aðeins en við erum
áhyggjufull yfir stöðunni,“ segir Þórunn Svein-
bjarnardóttir, formaður BHM, og bendir á að kurr
sé í sínum félagsmönnum yfir ástandinu. Sú hug-
mynd kom upp innan samninganefndar BHM að
herða aðgerðir en ákveðið var að bíða með það um
stund.
Í föstudagspistli á vefsíðu Landspítalans segir
Páll Matthíasson forstjóri að ástandið sé orðið
með öllu óþolandi fyrir sjúklinga og starfsfólk og
framundan séu verkföll hjúkrunarfræðinga og
stoðstétta. Þá taki steininn fullkomlega úr. „Það
má ekki verða,“ segir hann.
„Jákvæðasti dagurinn“
Gangur í viðræðum Flóafélaganna og verslunarmanna Ekkert þokaðist í
deilu BHM og ríkisins LSH þolir ekki verkfall hjúkrunarfræðinga og stoðstétta
Morgunblaðið/Golli
Flugfreyjur Sunna Dögg, Stella
Andrea og Kristín Eva í Katar.
Undanfarin ár hefur þótt eftirsóknar-
vert meðal ungra íslenskra kvenna að
starfa sem flugfreyja hjá stórum flug-
félögum í Mið-Austurlöndum, enda
bjóði það einnig upp á þann mögu-
leika að ferðast um heiminn samhliða
starfinu.
Þær Kristín Eva, Stella Andrea og
Sunna Dögg tóku hvatvísa ákvörðun
fyrir um ári þegar þær komust að hjá
Qatar Airways og fluttust búferlum
austur á bóginn. Það er ekki sjálf-
gefið að komast að hjá slíku flug-
félagi, umsækjendur eru gríðarlega
margir, hvaðanæva úr heiminum og
gerðar eru miklar kröfur. Vinkon-
urnar þrjár segja ekkert annað flug-
félag hafa svo stífar reglur og þjálfun
og vinnuumhverfið er oft erfitt. „Ef
þú endist í vinnu hér í tvo mánuði þá
ertu eins og vel þjálfaður hermaður.
Það að við séum hérna ennþá er í
raun ótrúlegt. Það hefði enginn trúað
því í byrjun að við myndum endast
svona lengi,“ segir Kristín Eva. Regl-
ur í Katar eru auk þess yfirhöfuð
mjög stífar á vestrænan mælikvarða.
Ævintýrin vega þó á móti. Stöllurnar
lýsa lífinu í Katar í Sunnudagsblaði
Morgunblaðsins.
Eins og vel þjálfaðir hermenn
Íslenskar flugfreyjur starfandi í Mið-Austurlöndum
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins lagðist að
Oddeyrarbryggju á Akureyri í gærmorgun og
fékk góðar móttökur hafnarstarfsmanna og bæj-
arbúa. Um borð eru nærri 600 farþegar og tæp-
lega 300 í áhöfn. Skipið er skráð á Bahama-
eyjum og er tæp 30 þúsund brúttótonn að stærð.
Amadea lagði úr höfn í gærkvöldi þar sem leiðin
lá til Reykjavíkur. Þar leggst skipið að Skarfa-
bakka snemma á morgun, sunnudag.
Amadea fyrst að Oddeyrarbryggju
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins sigldi inn Eyjafjörðinn í gær – kemur til Reykjavíkur á morgun
Forrannsókn á
áhrifum fá-
breytts fæðis á
einkenni ís-
lenskra barna
með ADHD sýnir
að mataræði get-
ur dregið úr
áhrifum ADHD.
Rannsóknin er
unnin í samstarfi
við Rannsóknar-
stofu í næringarfræði og BUGL,
barna- og unglingageðdeild Land-
spítalans. Stærri rannsókn verður
gerð á næstunni. Börn með ADHD
ættu m.a að forðast hveiti og mjólk-
urvörur skv. rannsókninni. »6
Fæða getur dregið
úr einkennum ADHD
Hveiti Hefur ekki
góð áhrif á suma.
Kviðdómur í
Boston, Banda-
ríkjunum, hefur
komist að þeirri
niðurstöðu að
dæma skuli
Dzhokhar
Tsarnaev, sem
stóð ásamt
bróður sínum
að sprengju-
árásinni á
maraþon borgarinnar sumarið
2013, til dauða. Þrír létu lífið í
árásinni og nokkuð hundruð
særðust. Þetta er í fyrsta skipti
sem kviðdómur við alríkisdómstól
dæmir hryðjuverkamann til
dauða eftir árásirnar á Bandarík-
in í september 2001.
Sprengjumaður
dæmdur til dauða
Dzhokhar
Tsarnaev
Fyrir besta
vininn
Sími 698 7999 og 699 7887
MVestlendingar til liðs »4