Morgunblaðið - 16.05.2015, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 16.05.2015, Blaðsíða 43
og útskrifaðist árið 2011. Hann dvaldi þá m.a. eina önn við nám í Giessen í Bundesland Hessen í Þýskalandi. Halldór hefur unnið jöfnum hönd- um við uppistand, leikhús, sjónvarp og kvikmyndir frá því hann útskrif- aðist. Auk þess hefur hann unnið við auglýsingagerð á stofunum Fíton og Hvíta húsinu. Halldór gaf út ljóðabókina Hug- myndir andvirði 100 milljónir, hjá Tungl forlagi árið 2015. Hann var aðstoðarleikstjóri og dramatúrg við sýningarnar Karma fyrir fugla, Englar alheimsins, Harmsaga og Þingkonurnar. Næsta haust flytur svo fjöl- skyldan til Akureyrar þar sem Hall- dór ætlar að leika við LA. Listasmiður í gömlum stíl Halldór hefur að sjálfsögðu áhuga á leikhúsi, kvikmyndum og ferðalög- um. Auk þess matargerð og bland- aðri bardagalist af ýmsu tagi. En það sem kemur skemmtilega á óvart er áhugi Halldórs á trésmíði: „Ég hef verið að koma mér upp tré- smíðaverkstæði í Mosfellssveit og fer þangað í hverri viku að smíða. Ég hef gert upp tvær íbúðir, smíðað innréttingar, bar, hillur og kofort. En ég er að færa mig yfir í gamal- dags smíði þar sem maður geirneglir og hefur gamla lagið á hlutunum. Ég veit ekkert skemmtilegra en að dunda mér við smíðar.“ Fjölskylda Eiginkona Halldórs er Magnea Þóra Guðmundsdóttir, f. 17.3. 1978, arkítekt og hönnuður. Foreldrar: hennar eru Hjördís Þorfinnsdóttir, f. 16.6. 1953, leikskólakennari, búsett á Selfossi, og Guðmundur Ingi Karls- son, f. 6.1. 1952, fyrrv. framkvæmda- stjóri í Hafnarfirði. Sonur Halldórs og Berglindar Pétursdóttur er Kári Halldórsson, f. 10.2. 2011. Dóttir Halldórs og Magneu Þóru er Guðný Halldórsdóttir, f. 7.10. 2013. Hálfsystur Halldórs, samfeðra, eru Tinna Björk Halldórsdóttir, f. 22.1. 1985, bakari í Reykjavík, og Edda Margrét Halldórsdóttir, f. 18.3. 1980, arkítekt og kaffihúsaeig- andi í Brighton á Englandi. Foreldrar Halldórs eru Guðný Halldórsdóttir, f. 23.1. 1954, kvik- myndaleikstjóri í Mosfellssveit, og Halldór Þorgeirsson, f. 25.1. 1960, kvikmyndagerðarmaður í Mosfells- sveit. Úr frændgarði Halldórs Laxness Halldórssonar Halldór Laxness Halldórsson Halldóra Kristín Jónsd. sýsluritari í Rvík Sveinn Guðmundsson járnsm. Í Rvík Auður Sveinsdóttir handavinnukennari í Mosfellssveit Guðný Halldórdóttir kvikmyndaleikstj. í Mosfellssveit Guðjón Helgason b. og vegaverkstj. í Laxnesi, bróðursonur Jóns í Leyni, afa Guðmundar Böðvarss. skálds á Kirkjubóli, og systursonur Þórunn- ar Sveinsd., langömmu Megasar Sigríður Halldórsdóttir b. í Mosfellssveit Baldvin Halldórsson leikari Steinunn G. Jónsdóttir húsfr. á Arngerðareyri Ásdís Thoroddsen silfursmiður í Rvík Ásta Jónasdóttir Thorsteinsson söngkennari Sigriður Guðjónsdóttir húsfr. í Rvík Helga Guðjónsdóttir píanókennari í Rvík Halldór Kolbeinsson geðlæknir í Rvík Kristinn Kolbeins- son viðskiptafr. og fasteignasali í Rvík Halldór Laxness leikstj. í Frakklandi Halldóra Kr. Thoroddsen myndlistarm. Margrét Laxness grafískur hönnuður Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðarm. Einar Laxness lögfr. í Rvík Guðbjörg Thoroddsen leikari Einar Laxness sagnfr. Auður Jónsdóttir rithöfundur og hlaðamaður Sigríður Halldórs- dóttir kennari í Mosfellsbæ Ásgeir Karlsson geðlæknir í Rvík Jóhann Dúi Axel Björnsson kirkjugarðsvörður á Akureyri Björn Ásgeirsson kirkju- garðsvörður á Akureyri Ásgeir Halldórsson verslunarm. á Akureyri Karl Ásgeirsson sím- ritari á Akureyri Ólafur Ásgeirsson fyrrv. aðstoðar- yfirlögregluþjónn á Akueyri Arndís Þorgeirsdóttir fyrrv. fréttastj. á Fréttablaðinu Gyða Þorgeirsdóttir hjúkrunarfr. í Rvík Hrafn Þorgeirsson forstjóri Primera Hans Guðmundss. verkstj. í Rvík Arndís Skúlad. húsfr. í Rvík Lára Hansdóttir deildarstj. í Rvík Þorgeir Halldórsson deildarstj. í Rvík Halldór Þorgeirsson kvikmyndagerðarm. í Mosfellssveit Guðbjörg Sigurðardóttir ritari í Rvík Halldór Ásgeirsson sláturhússtj. og verslunar- stj. í KEA á Akureyri Halldór Kiljan Laxness rithöfundur í Mosfellssveit María Hall- dórsdóttir verslunarm. ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2015 AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR VW • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Björn fæddist í Reykjavík 16.5.1923. Hann var sonurhjónanna Einars Jórmanns Jónssonar, hárskurðarmeistara og tónlistarmanns, og Ingveldar Ró- senkranz Björnsdóttur, húsfreyju og kjólameistara. Einar var sonur Jóns Jónssonar, b. í Hraunkoti, af Járngerðarstaðaætt en móðir hans var Helga, systir Katr- ínar, langömmu Þorvalds, föður Guð- laugs ríkissáttasemjara og Tómasar, útgerðarmanns. Móðir Einars var Ólöf Benjamínsdóttir. Ingveldur var dóttir Björns Ró- senkranz, kaupmanns í Reykjavík, og Elínar Björnsdóttur af Bergsætt, systur Einars, föður Steindórs bíla- kóngs, afa Geirs Haarde sendiherra. Eiginkona Björns var Ingibjörg Gunnarsdóttir hárgreiðslukona sem lést 1999. Þau eignuðust fimm börn, Gunnar, Björn, Ragnar, sem er lát- inn, Ragnheiði og Odd. Fyrir átti Björn soninn Jón. Björn lauk meistaraprófi í rak- araiðn frá Iðnskólanum í Reykjavík 1945 og stundaði píanó- og básúnu- nám 1936-53, meðal annars við Tón- listarskólann í Reykjavík. Björn lék með Hljómsveit Reykja- víkur, Hljómsveit Ríkisútvarpsins og Hljómsveit FÍH og var fyrsti básúnuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá stofnun 1950. Hann lék með sinfóníuhljómsveitinni til árs- loka 1994 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Þá lék Björn með danshljóm- sveitum frá stríðslokum, ýmist með hljómsveitum undir eigin nafni eða annarra við miklar vinsældir. Björn kenndi hljóðfæraleik m.a. við tónlistarskólana í Reykjavík og Garðahreppi. Hann var um árabil formaður Lúðrasveitar Reykjavíkur og stjórnaði sveitinni einnig í nokkur ár. Björn sat um hríð í stjórn FÍH og einnig í starfsmannastjórn sinfóníu- hljómsveitarinnar. Hann var sæmd- ur gullmerki FÍH á 50 ára afmæli fé- lagsins og riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2007. Árið 2010 hélt Jazzhátíð Reykjavíkur hon- um heiðurstónleika og var honum um leið þakkað frumkvöðulsstarf í þágu djassins á Íslandi. Björn lést 19.5. 2014. Merkir íslendingar Björn R. Einarsson Laugardagur 100 ára Ragna Stefánsdóttir 90 ára Guðrún A. Hallgrímsdóttir Jón G. Stefánsson Jósefína Norland Kristín Magnúsdóttir Ragna Hólmfríður Pálsdóttir Sigurður Jóhannesson Steinunn Sigurðardóttir 85 ára Páll Friðriksson 80 ára Anna Lísa Kristjánsdóttir Ottó Örn Pétursson Steinunn Ólafsdóttir 75 ára Erna Sampsted Sigurjón Skúlason 70 ára Uka Zogaj 60 ára Árni Benedikt Árnason Björn Jóhannesson Dagbjört S. Sigurðard. Hammer Guðrún Sigurðardóttir Inga Þóra Stefánsdóttir Jan Feliks Marek Jón Ingimundur Ólafsson Jónína Kristjánsdóttir Lára Margrét Sigurðardóttir Sigurður Mikaelsson 50 ára Anna Kristín Jónsdóttir Árni Jón Gissurarson Ásdís Helga Árnadóttir Áslaug Einarsdóttir Bryndís Heimisdóttir Einar Hólm Stefánsson Eva Melberg Jespersen Eyþór Helgi Tómasson Gísli Þór Sigurbergsson Guðrún Linda Ólafsdóttir Hildur Inga Björnsdóttir Linda Rós Guðmundsdóttir Ólafur Ágúst Ólafsson Sigþrúður Erla Arnardóttir Stefán Pétursson Vilborg Sveinsdóttir 40 ára Anna Vilborg Ívarsdóttir Arnbjörn Jóhann Kristinsson Ágústa Kristín Bjarnadóttir Árni Snorri Valsson Bjargey Sigurðardóttir Harpa B. Nadhir Bragadóttir Ingibergur Sveinn Björgvinsson Júlíus Þór Júlíusson Ólafur Rögnvaldsson Rannveig Lena Gísladóttir Selma Sigurbjörnsdóttir Sigrún Haraldsdóttir 30 ára Einar Haraldsson Guðbjörg Elly Gústafsdóttir Kári Níelsson Kristinn Elís Loftsson Lilja Guðrún Jónsdóttir Nils Kristján Kristjánsson Ómar Júlíusson Sandra Lilja Joukodóttir Sigurberg Magnús Sigurðsson Torfi Sigurbjörn Gíslason Sunnudagur 85 ára Jóhanna Sveinbjarnardóttir Jón Elías Guðjónsson 80 ára Pétur Gissurarson Sjöfn Guðmundsdóttir 75 ára Brynhildur Ingólfsdóttir Lúðvík Fahning Hansson Vernharður Jónsson 70 ára Hörður Guðmundsson Kristín Norðmann Neville Pétur Viktor Young Ólafur Matthíasson Sigrún A. Bjarnadóttir Stefán Árnason Sævar Kjartansson 60 ára Gretar Daníel Pálsson Hermann Hermannsson Hulda Ragnarsdóttir Klara Sigurðardóttir Rögnvaldur Gottskálksson 50 ára Anne Katrine Hame Ármann Sigurðsson Bárður Árnason Bjarni Gunnarsson Brynja Sif Björnsdóttir Dögg Harðardóttir Ellert Guðmundsson Eyjólfur Pálsson Ingibjörg Ósk Jóhannsdóttir Jóhann S. Sigurðsson Lilja Hrönn Hauksdóttir Maríus Þór Jónasson Sigfús Bergmann Gunnarsson Þórður Kárason 40 ára Anna Pála Stefánsdóttir Auður Eik Magnúsdóttir Ásrún Sigrid Steindórsdóttir Berglind Sigmarsdóttir Elías Georg Ingþórsson Jóna Björg Howard Júlíus Atli Hálfdánarson Kolbrún Hrund Ólafsdóttir Kristíanna Jessen Lúðvík Baldur Harðarson Marek Ireneusz Szalasek María Hendrikka Ólafsdóttir Mayraflor Cuizon Delima Ninja Elín Maggadóttir Steinunn Dröfn Ingibjörnsdóttir 30 ára Agnar Friðrik Agnarsson Árni Baldvin Þórðarson Daníel Reynisson Díana Íris Guðmundsdóttir Helgi Rúnar Gunnarsson Jón Héðinn Kristinsson Kerstin Anna Gillen Lorena Llopis Senent Salvar Rósantsson Sara Björk L. Gunnarsdóttir Tomasz Dariusz Kondratiuk Til hamingju með daginn Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.