Morgunblaðið - 16.05.2015, Side 8

Morgunblaðið - 16.05.2015, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2015 Líklega þyrfti tvær stórvirkjanirá borð við Kárahnjúka til að framleiða næga orku fyrir sæ- streng til Bretlands. Náttúruspjöll eru óhjákvæmileg og áhættuþættir fjölmargir. Þetta er meðal þess sem fram kemur í pistli Sveins Valfells, eðlisfræðings og hagfræðings, á við- skiptavef mbl.is.    Þar segir einnig að mikil og örþróun eigi sér nú stað í orku- framleiðslu, geymslu og dreifingu þannig að kostir Breta til að upp- fylla orkuþörf gætu orðið marg- víslegir.    Sveinn bendir á að orkuverð á Ís-landi myndi hækka með sæ- streng og fjármunir flytjast úr vasa innlendra kaupenda inn í stórfyrir- tæki á borð við Landsvirkjun. Og hann spyr hvort víst sé að ávinning- urinn myndi skila sér til eigend- anna.    Hann nefnir í því sambandi fjár-festinn Warren Buffet sem vari oft við framkvæmdagleði stjórnenda, „þeirri áráttu að búa til verkefni með óvissa arðsemi án þess að skeyta um hagsmuni eig- enda“.    Sveinn leggur áherslu á óvissunaog segir að um sæstreng sé að- eins hægt að fullyrða eitt, að hann muni „gjörbreyta atvinnulífi og ásjónu Íslands og hækka orkuverð hér á landi. En ábatinn er óviss og kannski minni en enginn.“    Hann bætir við: „Ef af verður eróþægilega líklegt að á hundr- að ára afmæli Landsvirkjunar verði fyrirtækið og fólkið í landinu enn að rétta úr kútnum vegna sæ- strengsævintýrisins.“ Sveinn Valfells Sykki fleira en sæstrengurinn? STAKSTEINAR Veður víða um heim 15.5., kl. 18.00 Reykjavík 9 léttskýjað Bolungarvík 5 alskýjað Akureyri 10 skýjað Nuuk 0 alskýjað Þórshöfn 7 þoka Ósló 12 heiðskírt Kaupmannahöfn 12 heiðskírt Stokkhólmur 7 heiðskírt Helsinki 7 heiðskírt Lúxemborg 17 léttskýjað Brussel 15 heiðskírt Dublin 15 skýjað Glasgow 11 skúrir London 16 léttskýjað París 15 skýjað Amsterdam 12 léttskýjað Hamborg 12 léttskýjað Berlín 16 heiðskírt Vín 15 alskýjað Moskva 10 skúrir Algarve 28 heiðskírt Madríd 22 heiðskírt Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað Róm 22 léttskýjað Aþena 25 heiðskírt Winnipeg 12 léttskýjað Montreal 16 alskýjað New York 20 heiðskírt Chicago 21 skýjað Orlando 26 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 16. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:10 22:39 ÍSAFJÖRÐUR 3:49 23:10 SIGLUFJÖRÐUR 3:31 22:54 DJÚPIVOGUR 3:33 22:15 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is ÁTVR hafnar alfarið niðurstöðum skýrslu Clever data um að áfengis- verslanir ríkisins hafi ekki skilað eig- inlegum hagnaði á föstu verðlagi árið 2014. Í skýrslunni segir að tóbakssala ÁTVR niðurgreiði áfengissöluna. Mikill rekstrarhagnaður er af tóbaks- sölu. Í yfirlýsingu ÁTVR kemur hins vegar fram að lögum samkvæmt séu vínbúðir ÁTVR reknar sem ein heild. Því sé smásala áfengis og heildsala tóbaks ekki aðgreind í rekstri fyrir- tækisins eða bókhaldi. Fram kemur þó að kostnaður vegna áfengis- og tóbakshlutans sé ekki sundur- greindur á milli áfengis- og tóbaks- hlutans í bókhaldi. Hins vegar sé kostnaður vegna vörunotkunar áfengis annars vegar og tóbaks hins vegar aðgreindur í rekstrinum og sundurliðaður í ársreikningi. „Rétt er að benda á að ÁTVR ræður ekki álagningu sinni á áfengi og tóbak,“ segir m.a. í tilkynningunni og er vísað í lög þess efnis að Alþingis sé að ákveða álagningu á sölu áfengis og tóbaks. Sjá má af ársreikningi ÁTVR að heildsala tóbaks skilar hlutfalls- lega meiri hagnaði en smásala áfeng- is. „Munurinn ræðst fyrst og fremst af ákvörðun Alþingis um álagningu, sem áður er vísað til, og eins því að eðli máls samkvæmt kallar smásala áfengis á talsvert fleiri handtök og meira umstang en heildsala á tóbaki,“ segir í tilkynningunni. Gagnrýnir aðferðafræðina Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoð- arforstjóri ÁTVR, telur að greining Clever data byggist ekki á rauntölum heldur gefi fyrirtækið sér kostnað við umsýslu tóbaks og áfengis. „Rekst- urinn er ein heild lögum samkvæmt og það er ekki svo að hægt sé að segja að ákveðinn hluti kostnaðar sé vegna tóbaks og ákveðinn hluti sé vegna áfengis,“ segir Sigrún Ósk. Rekstur ÁTVR er ein heild  ÁTVR gagnrýnir skýrslu Clever data VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.