Morgunblaðið - 16.05.2015, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2015
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur
eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi
innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til
og með 15. maí 2015, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. maí 2015 og
önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. maí
2015, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í
tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skila-
skylda aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetra-
gjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri
tímabila, skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af
innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi
á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi,
sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins,
árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem
eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur
tekjuskattur manna, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, eignarskattur, sérstakur
eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
tryggingagjald, búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald
í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar
barnabætur, ofgreiddar vaxtabætur og útvarpsgjald.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 2.000 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem
fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald,
afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi
þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungas-
katt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara
og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út
sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi
innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar
gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. maí 2015
Tollstjóri
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Austurlandi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmi
Við hátíðlega athöfn á Dvalarheim-
ili aldraða í Stykkishólmi á upp-
stingingardag var tilkynnt að bæj-
arstjórn Stykkishólms hefði kjörið
Georg Breiðfjörð Ólafsson heiðurs-
borgara Stykkishólms.
Georg náði þeim einstaka áfanga
að verða 106 ára 26. mars sl. og
hefur enginn karlmaður á Íslandi
áður náð jafni háum aldri
Einn íbúi Stykkishólmsbæjar
hefur áður náð þeim aldri en það
var María Andrésdóttir sem var
kjörin heiðursborgari 1959. Þegar
María féll frá 3. september 1965
var hún 106 ára og 43 daga gömul.
Hinn 9. maí náði Georg Breiðfjörð
Ólafsson því marki og er elsti ein-
staklingur sem hefur búið í Stykk-
ishólmi.
Af því tilefni bauð bæjarstjórn
Stykkishólms til samkomu þar sem
Georg var veitt viðurkenningin og
var þar saman komin fjölskylda
hans og nánir gestir.
Langlífi í ættinni
Georg fæddist og ólst upp í Ak-
ureyjum á Gilsfirði, en hefur búið í
Stykkishólmi og næsta nágrenni í
88 ár. Hann giftist Þorbjörgu Júl-
íusdóttur og dó hún árið 1984. Þau
eignuðust þrjá syni.
Í ávarpi Sturlu Böðvarssonar
bæjarstjóra við þetta tækifæri kom
fram að langlífi hefur verið í ætt-
inni, en báðar ömmur Georgs urðu
95 ára. Móðuramman lést 1938 og
hefur það verið mjög hár aldur á
þeim tíma. Hann sagði einnig að
Georg hefði verið eftirsóttur til
vinnu, fyrir vandvirkni, handlagni
og útsjónarsemi Hann starfaði við
skipasmíðar um áratugi, bæði við-
gerðir og nýsmíði. Starfsferilinum
lauk hann í Skipasmíðastöðinni
Skipavík árið 1984.
Georg er enn hress í anda og
fylgist með hinu daglega lífi, en
sjónin er farin að daprast þegar
aldurinn er farinn að segja til sín.
Georg kjörinn heiðursborgari
Hefur lifað lengst karlmanna á Íslandi og er nú elstur
allra Hólmara fyrr og síðar Er enn hress í anda
Með sonunum Georg Breiðfjörð Ólafsson, heiðursborgari Stykkishólms,
með sonum sínum þremur, Gylfa, Júlíusi og Ágústi í veislunni.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Heiðursborgari Hafdís Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar Stykkishólms af-
hendir Georgi heiðursborgaraskjalið við hátíðlega athöfn.
Tekin var fyrsta skóflustungan fyrir
nýbyggingu við Norðlingaskóla í
gær. Nemendur skólans ásamt kenn-
urum og starfsfólki sáu um verkið en
hluti byggingarinnar mun verða
nýttur til kennslu fyrir miðstig skól-
ans.
Ólafur Páll Snorrason, fram-
kvæmdastjóri BS eigna ehf. og eig-
andi byggingarinnar, segir hana
verða 2.300 fermetra í heild en hún
verði staðsett 150 metra frá skól-
anum. Efri hæð húsnæðisins sem er
1.155 fermetrar, verði leigð til
Reykjavíkurborgar. Hæðin verði
nýtt fyrir kennslu og undir skrif-
stofur kennara. Með þessu nýja hús-
næði muni skólinn hætta að notast
við færanlegar húsnæðiseiningar við
kennslu.
Önnur starfsemi á neðri hæð
Áætlað er að skólabyggingin verði
tekin í notkun strax í byrjun ársins
2016 en Ólafur segir óákveðið hvers
konar starfsemi verði leigð út á neðri
hæðinni.
„Þar mun ég reyna að aðlaga húsið
starfsemi skólans, kannski skoða
léttan iðnað eða í raun bara litla
heildsölu, lager fyrir einyrkja eða
svoleiðis. Ég mun reyna að stýra því
þannig að það henti vel fyrir skól-
ann,“ segir Ólafur. brynjadogg@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Nýbygging Það voru kátir og vel útbúnir nemendur Norðlingaskóla sem
tóku fyrstu skóflustunguna að nýbyggingu við skólann í gær.
Nemendurnir tóku
fyrstu skóflustungu
nýrrar byggingar
Nýtt húsnæði leysir af hólmi
færanlegar húsnæðiseiningar
Teikning Efri hæð húsnæðisins mun geyma skrifstofur og kennslustofur.