Morgunblaðið - 16.05.2015, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2015
AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Ingólfs-
stræti 19, Reykjavík. Biblíufræðsla laugardag
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður: Er-
ic Guðmundsson. Barna- og unglingastarf.
Sameiginlegur málsverður eftir samkomu.
AÐVENTKIRKJAN í Vestmannaeyjum |
Brekastíg 17, Vestmannaeyjum. Guðsþjón-
usta laugardag kl. 12. Bein útsending frá
Reykjavíkursöfnuði.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Akureyri |
Eiðsvallagötu 14, Gamli Lundur. Biblíurann-
sókn laugardag kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12.
Ræðumaður: Björgvin Snorrason. Barnastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Suðurnesjum |
Blikabraut 2, Keflavík. Biblíufræðsla laug-
ardag kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi | Eyra-
vegi 67, Selfossi. Biblíufræðsla laugardag kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Iain
Matchett. Barna- og unglingastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnarfirði |
Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Guðsþjónusta laug-
ardag kl. 11. Ræðumaður Helgi Jónsson.
Biblíufræðsla kl. 11.50. Barna- og unglinga-
starf. Umræðuhópur á ensku. Súpa og brauð
eftir samkomu.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Árni Svanur Daníelsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Barnakór Árbæjarskóla syngur
undir stjórn Önnu Maríu kórstjóra. Kirkjukór
Árbæjarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng
undir stjórn Krisztina Kalló Szklenár org-
anista.
ÁSTJARNARKIRKJA | Vorhátíð barnastarfs
Ástjarnarkirkju hefst með fjölskylduguðsþjón-
ustu kl. 11. Barnakór kirkjunnar syngur undir
stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Hólm-
fríður, Bryndís og Heiða annast fræðslu.
Prestur er Kjartan Jónsson. Hoppukastalar
og grillaðar pylsur á eftir.
BESSASTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
17. Sr. Hans Guðberg og Margrét djákni leiða
stundina og Lærisveinar hans leika undir
sönginn ásamt Bjarti Loga. Foreldrar barna
sem fermast á árinu 2016 eru sérstaklega
boðnir velkomnir og eftir guðsþjónustuna
verður farið yfir fyrirkomulag varðandi ferm-
ingarfræðslu.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ur Sigurður Grétar Helgason. Kór Breiðholts-
kirkju syngur, organisti er Örn Magnússon.
Kaffi í safnaðarheimili eftir messu.
BÚSTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Kór Bú-
staðakirkju syngur undir stjórn Jónasar Þóris.
Messuþjónar aðstoða. Kaffi eftir messu.
Prestur Pálmi Matthíasson. Ath. sumartíma á
messum.
DIGRANESKIRKJA | Tónlistarguðsþjónusta
kl. 11. Kammerkór Digraneskirkju syngur
undir stjórn Sólveigar Sigríðar Einarsdóttur
organista. Prestur Magnús Björn Björnsson.
Súpa í safnaðarsal að athöfn lokinni. Að-
alsafnaðarfundur Digranessafnaðar í kirkj-
unni kl. 12.30.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö.
kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er
sunnudagsmessa.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar fyr-
ir altari. Gry Ek Gunnarsson, formaður Fella-
sóknar, predikar. Kór Fella- og Hólakirkju
syngur. Birta Teresa Hafsteinsdóttir spilar á
hörpu. Organisti Guðný Einarsdóttir. Kaffi eft-
ir stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessa
kl. 14. Hjörtur Magni Jóhannsson safn-
aðarprestur þjónar fyrir altari. Sönghópurinn
við Tjörnina leiðir sönginn ásamt Gunnari
Gunnarssyni organista. Fermingarbarn dags-
ins er Oddur Stefánsson, Kjarrvegi 6, 108
Reykjavík.
GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jón
Ómar Gunnarsson þjónar. Organisti er Petra
Björk Pálsdóttir og forsöngvari Hermann R.
Jónsson. Í messunni segja fulltrúar Gídeon-
hreyfingarinnar á Íslandi frá starfi sínu.
GRAFARVOGSKIRKJA | Siglfirðingamessa
kl. 14. Séra Vigfús Þór Árnason þjónar fyrir
altari. Ræðumaður Ólafur Níelsson, lögg.
endurskoðandi. Einsöngur: Fjóla Nikulásdótt-
ir. Kór kirkjunnar syngur. Organisti: Antonía
Hevesi. Undirleikari: Gunnsteinn Ólafsson.
Hólmfríður Ólafsdóttir djákni og Sævar Jón
Andrésson guðfræðinemi flytja ritningarorð.
Félagar úr stjórn Siglfirðingafélagsins flytja
bænir. Fluttir verða hátíðarsöngvar séra
Bjarna Þorsteinssonar. Meðhjálpari: Her-
mann Jónasson. Kaffi eftir messu.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10 og
bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11. Alt-
arisganga. Samskot til Kristniboðs-
sambandsins. Messuhópur þjónar. Kór frá
Domus vox syngur, skólastjóri Margrét J.
Pálmadóttir. Prestur Ólafur Jóhannsson. Kaffi
eftir messu. Hversdagsmessa með Þorvaldi
Halldórssyni á fimmtudag kl. 18.10.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrrum þjón-
andi presta klukkan 14 í hátíðasal Grundar.
Séra Úlfar Guðmundsson þjónar. Grundarkór-
inn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage
organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs-
þjónusta og fermingarmessa kl. 11. Prestur
Sigurjón Árni Eyjólfsson. Tónlistarflutningur í
umsjá Þorvaldar Halldórssonar. Kirkjuvörður
Lovísa Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Prestar kirkjunnar kynna ferming-
arstarf næsta vetrar fyrir væntanlegum
fermingarbörnum og foreldrum. Organisti
kirkjunnar leiðir söng ásamt með félögum úr
Barbörukórnum. Kaffi í safnaðarheimili á eft-
ir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
Orð dagsins: Þegar
huggarinn kemur.
(Jóh. 15)
Þórshafnarkirkja.
Á haustmánuðum
árið 1977 gerðist það á
Íslandi, sem ekki hafði
gerst áður. Lögreglan
komin í verkfall.
Hvernig gat það gerst
að lögreglan þyrfti að
fara í verkfall? Var
það framkvæmanlegt
? Já, það var fram-
kvæmanlegt þannig:
Lögreglumenn lands-
ins mættu á sínar
vaktir samkvæmt varðskrám, og
sinntu verkefnum s.s. slysum, og
öllum málum sem talin voru alvar-
leg. Minniháttar verkefnum var
ekki sinnt. Lögreglumenn voru
ekki ánægðir með að þurfa að
standa í verkfalli, en það var á
þessum tíma talið nauðsýnlegt til
lagfæringar launakjara.
Launakjör lögreglu tryggð –
Verkfallsrétturinn afnuminn!
Er verkfall lögreglumanna var
afstaðið varð það ljóst bæði innan
lögreglunnar og meðal þjóðarinnar,
að ekki væri heppilegt að lögreglan
gæti farið í verkfall. Heppilegra
væri að launakjör lögreglumanna
væru sett í fasta tengingu við aðrar
starfsstéttir. Af stað var farið, við-
miðun var fundin út með samn-
ingum og kjarasamningar gerðir.
Það sem koma skyldi í stað verk-
fallsréttarins var teng-
ing launa lögreglu við
aðrar starfsstéttir, s.s
kennara og starfsfólk
innan heilbrigðisstétta.
Þessi niðurstaða, sem
boðin var fyrir verk-
fallsréttinn, var af
okkur lögreglu-
mönnum sem þá vor-
um við störf, talin
heppileg lausn, og
okkur fannst komið ör-
yggi hvað laun varðaði
til framtíðar.
Trygging launakjara brást,
svikul stjórnvöld
Eftir að samkomulagsgjörningur
lögreglu og stjórnvalda var und-
irritaður fór fljótt að bera á því að
stjórnvöld höfðu lítinn vilja til að
standa við samninginn, og fóru að
fara á bak við og hártoguðu og
sviku flest sem samningurinn
byggðist á. Það sem átti að koma í
staðinn fyrir verkfallsréttinn til lög-
reglu urðu svik. Eftir að lögreglan
var búin að láta af hendi verkfalls-
réttinn urðu varnirnar veikar, eða
nánast engar. Leiðréttingar launa,
sem áttu að koma til lögreglu mið-
aðar við tengingar við viðmið-
unarstéttirnar, voru hundsaðar af
stjórnvöldum. Enn fannst stjórn-
völdum þó ekki nóg að gert. Fyrir
síðustu aldamót var einnig numinn
á brott sá þáttur samkomulagsins
sem tilgreindi viðmiðunarstéttirnar.
Í dag stendur eftir í hugum okkar
lögreglumanna sem voru við störf
árið 1977 og samþykktum að láta af
hendi verkfallsréttinn, ómerkileg
og sviksöm stjórnvöld. Starfsstéttir
sem hafið verkfallsrétt, gætið hans
vel. Við sem vorum við lögreglu-
störf árið 1977 getum aðeins beðið
það unga fólk sem nú starfar að
löggæslu, afsökunar á því að við
skyldum láta blekkjast af ómerki-
legum stjórnvöldum og láta verk-
fallsrétt stéttarinnar af hendi. Það
sér starfsfólk löggæslunnar í dag á
launaseðlum sínum.
Hvað gerist ef fer
fyrir lögreglu sem horfir?
Hætt er við að í framtíð geti
reynst erfitt að fá fólk til starfa að
löggæslumálum, miðað við þau
launakjör sem í boði eru. Störf í
löggæslunni eru krefjandi, ekki
fjölskylduvæn og verða sífellt erf-
iðari vegna aðgerða stjórnvalda,
m.a. í niðurskurði og fækkun
mannafla í lögreglu, frekar en fjölg-
un. Hættuleg verkefni hafa aukist,
tengd eiturlyfjum og neytendum
þeirra. Allt þetta og meira til er nú
í boði til þeirra er starfa að lög-
gæslumálum í dag. Já, fyrir ósæmi-
leg smánarlaun.
Lögreglan árið 1977
Eftir Eðvarð
Lárus Árnason » Við létum blekkjast,
og létum af hendi
verkfallsréttinn og
uppskárum svik sem
valda lögreglustéttinni
gríðarlegum skaða
í nútíð og framtíð.
Eðvarð L.
Árnason
Höfundur er fv. yfirlögregluþjónn.
Aukablað alla
þriðjudaga
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á
EÐA Í SÍMA
TILBOÐ Á ÖFLUGUM
SÓLARSELLUM FRÁ ÞÝSKALANDI
GOP mono-sólarsellur frá Þýskalandi með 10A hleðslu-
stýringu. Sellurnar eru monocrystal-glersellur, sem
eru virkari í minni birtu en væru þær úr polycrystal.
Sendum hvert á land sem er.
Upplýsingar í síma 787 2211 eða á www.gadget.is
Henta vel á húsbíla, ferðavagna og sumarhús.
Sellurnar eru 100W og stærðin er 1194 x 542 x 35 mm.
Fullt verð 86.800 kr.
MOGGAKLÚBBSVERÐ 65.100 kr.
ATH! Takmarkað magn
Gylfaflöt 5 •112 Reykjavík
Opið frá 9:00 til 16:00
MOGGAKLÚBBURINN