Morgunblaðið - 16.05.2015, Blaðsíða 33
kl. 11. Prestur og kór frá Falun í Svíþjóð í
heimsókn. Sr. Þórhallur Heimisson, Falun,
prédikar. Dr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar
fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Falunkór-
inn syngur undir stjórn Gunnars Enlund og fé-
lagar í Mótettukór Hallgrímskirkju syngja
einnig. Organisti er Hörður Áskelsson. Barna-
starfið er í umsjá Ingu Harðardóttur, Rósu
Árnadóttur og Sólveigar Önnu Aradóttur. Kaffi
eftir messu.
Hátúnsheimilið | Guðsþjónusta kl. 13 í fé-
lagsheimili Sjálfsbjargar á höfuð-
borgarsvæðinu, Hátúni 12. Kristín Þórunn
Tómasdóttir, sóknarprestur í Laugarneskirkju,
þjónar ásamt Kristni Guðmundssyni með-
hjálpara og Guðrúnu Kr. Þórsdóttur djákna.
Elma Atladóttir syngur einsöng við undirleik
Arngerðar Maríu Árnadóttur organista.
HVALSNESSÓKN | Fjölskyldumessa í Safn-
aðarheimilinu í Sandgerði kl. 17. Börn og
unglingar úr æskulýðsstarfi Hvalsnes- og
Útskálasókna og barnakórnum í Sandgerði
sjá um messuna, sem markar lokin á æsku-
lýðsstarfinu í vetur. Söngur, leikrit, bæna-
stund og hugvekja. Sameiginleg stund fyrir
báðar sóknir, en hóparnir koma beint úr vor-
ferð í Vatnaskóg í messuna.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Fjöl-
skyldusamkoma kl. 11. Signý Guðbjartsdóttir
prédikar. Brúðuleikrit og lofgjörð. Kaffi og
samfélag eftir samkomuna. Samkoma á
ensku hjá Alþjóðakirkjunni kl. 14.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
13.30 með lofgjörð og fyrirbænum. Deborah
Peters predikar. Barnastarf á sama tíma.
Kaffi eftir stundina.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Engin guðsþjónusta.
Í stað hennar flytja börn og unglingar söng-
leikinn Líf og friður kl. 15 og 17 í safn-
aðarheimilinu Kirkjulundi. Einnig á mánudag
og miðvikudag kl. 19. Höfundur er Per Har-
ling og íslensk þýðing er eftir sr. Jón Ragnars-
son. Leikstjórar og höfundar leikgerðar eru
Freydís Kleif Kolbeinsdóttir og Íris Dröfn Hall-
dórsdóttir. Tónlistarstjóri er Arnór Brynjar Vil-
bergsson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sigurður Arnarson sóknarprestur prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur
undir stjórn Peter Máté.
KVENNAKIRKJAN | Guðsþjónusta í Garða-
kirkju á Álftanesi klukkan 20 undir yfirskrift-
inni: Nesti fyrir gesti en fyrst og fremst fyrir
heimilisfólk. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
prédikar. Guðrún B. Jónsson segir frá trú
sinni. Aðalheiður Þorsteinsdóttir stjórnar
messusöng og leikur á orgel. Á eftir verður
kaffi í Króki.
LANGHOLTSKIRKJA | Sveiflumessa kl. 11.
Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjón Jó-
hönnu Gísladóttur æskulýðsfulltrúa. Danski
sveiflukórinn Sing ’n’ Swing syngur við at-
höfnina. Hópurinn samanstendur af djass-
hljómsveit og ryþmískum kór frá Skærbæk.
Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjón-
ar og Jón Stefánsson er organisti. Grétar Ein-
arsson kirkjuvörður og messuþjónar aðstoða.
Kaffi og djús í safnaðarheimili eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Krist-
ín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur prédikar
og þjónar ásamt messuþjónum. Kór Laug-
arneskirkju syngur undir stjórn Arngerðar
Maríu Árnadóttur. Kaffi og samfélag eftir
messu.
Lágafellsskóli | Guðsþjónusta kl. 20. Kirkju-
kór Lágafellssóknar syngur undir stjórn Arn-
hildar Valgarðsdóttur. Prestur Ragnheiður
Jónsdóttir. Fermingarbörn næsta árs kölluð
til ásamt fjölskyldum. Öll börn fædd 2002
hafa fengið sendan bækling um fermingar-
starfið næsta vetur. Biðjum við tilvonandi
fermingarbörn og foreldra að koma með
skráningarhluta bæklingsins til guðsþjónust-
unnar.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Gospel og læti kl. 20. Í þessari
messu verður eingöngu flutt tónlist eftir
Andraé Crouch, sem lést fyrr á þessu ári. Kór
Lindakirkju syngur undir stjórn og við undir-
leik Óskars Einarssonar. Sr. Guðmundur Karl
Brynjarsson þjónar.
Maríukirkja við Raufarsel | Messutímar:
Alla virka daga kl. 18.30. Laugardaga
(sunnudagsmessa) kl. 18.30 á ensku.
Sunnudaga kl. 11. Barnamessur út maí kl.
12.15.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Sería um Davíð konung. ,,Davíð, maður
eftir hjarta Guðs.“ Ræðumaður Margrét
Jóhannesdóttir. Túlkað á ensku. Sunnudaga-
skóli fyrir börnin.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Bryndís Malla Elídóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Tómas Guðni Eggertsson leikur á orgel
og félagar úr kór kirkjunnar syngja. Kaffi að
guðsþjónustu lokinni.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11 . Þjóðhátíðardags Norðmanna minnst.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Reynir Jón-
asson er organisti. Félagar úr Kammerkór
Seltjarnarneskirkju leiða almennan safn-
aðarsöng. Kaffi og samfélag eftir athöfn.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Fjölskyldumessa í Safn-
aðarheimilinu í Sandgerði kl. 17. Börn og
unglingar úr æskulýðsstarfi Hvalsnes- og
Útskálasókna og barnakórnum í Sandgerði
sjá um messuna, sem markar lokin á æsku-
lýðsstarfinu í vetur. Söngur, leikrit, bæna-
stund og hugvekja. Sameiginleg stund fyrir
báðar sóknir, en hóparnir koma beint úr vor-
ferð í Vatnaskóg í messuna.
VÍDALÍNSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Foreldrar og fermingarbörn vorsins 2016 boð-
uð til kirkju. Léttar veitingar í safnaðarheimili
og stuttur fundur þar sem fermingardagar
vorsins 2016 eru kynntir og skráning í ferm-
ingarathafnir. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir
helgihald ásamt messuþjónum sem hugleiða
með því að segja frá fermingardeginum sín-
um. Félagar í kór Vídalíns syngja undir stjórn
Jóhanns Baldvinssonar og Íva Marín Adric-
hem syngur einsöng. Eurovision-sunnudaga-
skóli á sama tíma.
Ljósmynd/Guðjón Gamalíelsson
33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2015
Austurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni • Mjódd • Smáratorgi • Suðurveri
Hafðu veisluna eftir
þínu höfði!
Skoðaðu úrvalið á
vefverslun okkar
bakarameistarinn.is.
Veisluþjónusta undir stjórn matreiðslumeistarans Skúla Hansen
Er veisla framundan?
Sími 533 3000 bakarameistarinn.is
MBA
TAKTU FRUMKVÆÐI AÐ EIGIN FRAMA
www.mba.is
KYNNINGARFUNDUR MBA-NÁMSINS Í HÁSKÓLA ÍSLANDS
Fimmtudaginn 21. maí verður haldinn kynningarfundur um alþjóðlega vottað
MBA-nám Háskóla Íslands. Magnús Pálsson forstöðumaður MBA-námsins
kynnir námið og fyrirkomulag þess.
Kynningin stendur frá kl. 12:00 til 13:00 og fer fram í stofu HT-101 á Háskóla-
torgi. Boðið verður upp á létta hádegishressingu og fer skráning fram í gegnum
tölvupóstfangið mba@hi.is.
PIPA
R
\TB
W
A
•
SÍA
•
15
2
2
3
1