Morgunblaðið - 16.05.2015, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Indriði Pálsson, fyrr-
verandi forstjóri Skelj-
ungs og héraðsdóms-
lögmaður, lést á Land-
spítalanum í Fossvogi
13. maí sl. á 88. aldurs-
ári.
Indriði fæddist 15.
desember 1927 á Siglu-
firði þar sem hann ólst
upp. Foreldrar hans
voru Páll Ásgrímsson,
verkamaður og síðar
verslunarmaður á
Siglufirði, og María Sig-
ríður Indriðadóttir,
húsfreyja á Siglufirði. Albræður
Indriða voru Einar og Ásgrímur,
sem báðir eru látnir. Systkini Indriða
frá seinna hjónabandi föður hans eru
Magnús, Sigríður og Lilja Kristín.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA
1948, lauk embættisprófi í lögfræði
frá Háskóla Íslands 1954 og öðlaðist
réttindi sem héraðsdómslögmaður
árið 1958.
Að loknu námi gerðist Indriði
fulltrúi hjá Samein-
uðum verktökum á
Keflavíkurflugvelli
1955-57. Síðan starf-
rækti hann lögfræði-
stofu í Reykjavík á ár-
unum 1957-59 og var
jafnframt fram-
kvæmdastjóri Félags
löggiltra rafvirkja-
meistara 1957-58 og
Meistarasambands
byggingarmanna 1958-
59.
Á árunum 1959-71
var hann fulltrúi for-
stjóra hjá Olíufélaginu Skeljungi hf.
en var síðan ráðinn forstjóri Skelj-
ungs árið 1971. Því starfi gegndi
hann til ársins 1990 og var síðan
stjórnarformaður Skeljungs frá
1990-99. Indriði sat í stjórn Hf. Eim-
skipafélags Íslands á árunum 1976-
99, sem varaformaður stjórnar 1984-
92 og stjórnarformaður frá 1992-99.
Auk þessa gegndi Indriði fjölmörg-
um trúnaðarstörfum í atvinnulífinu,
m.a. sat hann í stjórn Flugleiða hf.
frá 1988-2001 og í stjórn Ferðaskrif-
stofunnar Úrvals-Útsýnar hf. 1987-
92. Þá var hann í framkvæmdastjórn
Vinnuveitendasambands Íslands
1972-78 og í stjórn Verslunarráðs Ís-
lands 1982-1990.
Indriði var formaður Stúdenta-
félags HÍ 1949-50. Hann var félagi í
Rótarýklúbbi Reykjavíkur og sinnti
þar stjórnarstörfum á árunum 1984-
87, þar af sem forseti 1985-86. Indriði
var stórmeistari Frímúrararegl-
unnar á Íslandi á árunum 1988-99.
Indriði var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu 1988 og
stórriddarakrossi 1993.
Indriði kvæntist Elísabetu Guð-
nýju Hermannsdóttur (f. 1928) frá
Seyðisfirði hinn 15. janúar 1955.
Börn Indriða og Elísabetar eru Sig-
ríður, gift Margeiri Péturssyni, og
Einar Páll, kvæntur Höllu Halldórs-
dóttur. Barnabörnin eru fjögur: El-
ísabet Margeirsdóttir, Indriði Ein-
arsson, Halldór Einarsson og
Ingibjörg Einarsdóttir.
Andlát
Indriði Pálsson, fyrrverandi forstjóri
Unnið var að því að koma bátnum Gottlieb 2622, sem
varð vélarvana við Hópsnes á Reykjanesi á miðviku-
daginn sl., í Njarðvíkurslipp í gær. Báturinn er talsvert
mikið laskaður og ekki er hægt að segja til um að svo
stöddu hversu miklar skemmdirnar eru. Seinni partinn
í gær var bátskrokkurinn kominn upp á varnargarðinn
í Grindavík þar sem tvær beltagröfur héldu honum á
meðan beðið var eftir að hann yrði fluttur á vörubíl
landleiðina inn í Njarðvík. Vanir menn eru við stjórn-
völinn á þessum stórvirku vélum og að sögn sjónar-
votta var ekki búist við öðru en að verkefnið yrði leyst
með stakri prýði þrátt fyrir mikinn þunga bátsins.
Gottlieb í greipum beltagrafa
Ljósmynd/Haraldur Hjálmarsson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Frá ársbyrjun 2009 hafa tæplega 6
þúsundum fleiri íslenskir ríkisborg-
arar flutt til Noregs og Svíþjóðar en
flutt hafa hingað frá þessum löndum.
Eru brottfluttir til Noregs umfram
aðflutta þar af rúmlega 4.500, að því
er lesa má úr gögnum Hagstofunnar.
Til samanburðar bjuggu 4.747
manns í Fjarðabyggð um áramót.
Þessi straumur skýrir að mestu
hvers vegna tæplega 7.600 fleiri ís-
lenskir ríkisborgarar hafa flutt frá
landinu en til þess frá 2009. Til sam-
anburðar eru brottfluttir íslenskir
ríkisborgarar umfram aðflutta frá
2000 um 11 þús., eins og hér er sýnt.
Á fyrsta ársfjórðungi voru brott-
fluttir einstaklingar með íslenskt
ríkisfang alls 370 umfram aðflutta.
Að óbreyttu verður árið 2015 því
fjórtánda árið frá aldamótum þar
sem brottfluttir íslenskir ríkisborg-
arar eru fleiri en aðfluttir. Þessu er
öfugt farið hjá erlendum ríkisborg-
urum. Aðfluttir erlendir ríkisborgar-
ar á fyrsta ársfjórðungi voru þannig
660 fleiri en brottfluttir. Þar af komu
240 fleiri erlendir ríkisborgarar frá
Póllandi en fluttust þangað héðan.
Straumur frá Póllandi
Á árunum 2009 til 2011 voru brott-
fluttir erlendir ríkisborgarar frá Ís-
landi til Póllands tæplega 2.400 fleiri
en aðfluttir. Frá ársbyrjun 2012 eru
aðfluttir frá Póllandi hins vegar um 2
þúsundum fleiri en brottfluttir.
Brottfluttir íslenskir ríkisborgar-
ar sem flutt hafa til Finnlands eru 30
fleiri en aðfluttir frá ársbyrjun 2009
til 31. desember 2014. Danmörk sker
sig úr Norðurlöndunum þar sem
flutningsjöfnuður íslenskra ríkis-
borgara til landsins er jákvæður. Að-
fluttir ísl. ríkisborgarar frá Dan-
mörku eru þannig 495 fleiri en
brottfluttir frá 2009 til ársloka 2014.
Þúsundir flytja frá landinu
Um 6 þúsundum fleiri íslenskir ríkisborgarar hafa flutt til Noregs og Svíþjóðar frá
ársbyrjun 2009 en fluttu þá heim frá þessum löndum 75% þeirra fóru til Noregs
Aðfluttir umfram brottflutta 2000—2015
Íslenskir ríkisborgarar
Erlendir ríkisborgarar
2000 2015*
*Eftir fyrsta ársfjórðung.
Samtals: -10.869
23.373
Frá 2009: -7.582
1.891
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
-1.000
-2.000
-3.000
Heimild: Hagstofa Íslands
Stórmeistararnir Jóhann Hjartar-
son og Jón L. Árnason töpuðu
báðir sínum skákum á Íslands-
mótinu sem fer fram í Hörpu.
Mótherjar þeirra voru stórmeist-
ararnir Hjörvar Steinn Grétarsson
og Hannes Hlífar Stefánsson.
Hjörvar Steinn og Héðinn Stein-
grímsson eru efstir og jafnir að
lokinni annarri umferð mótsins. Á
annað hundrað skákáhugamenn
hafa skilað spá um úrslitin, skv.
umfjöllun á skak.is og spá flestir
því að Hannes Hlífar sigri og
Hjörvar Steinn verði í öðru sæti.
Úrslitin eru þó fjarri því að vera
ráðin enda mótið rétt að byrja.
Enginn spáði rétt um úrslit móts-
ins í fyrra þegar Guðmundur
Kjartansson hlaut Íslandsmeistara-
titilinn. »29
Hjörvar
og Héðinn
eru efstir
2 umferðum lokið
Gert er ráð fyrir að verktakar Vaðla-
heiðarganga geti farið að bora og
sprengja Eyjafjarðarmegin í byrjun
júní. Óvissa er með hvenær hægt
verður að hefjast handa á ný
Fnjóskadalsmegin vegna vatnsins
sem þar steymir inn í göngin.
ÍAV vinnur að því að bæta vinnu-
aðstæður Eyjafjarðarmegin með
ýmsum aðgerðum. Hitinn sem stafar
af heita vatninu sem enn rennur inn í
göngin þarf að lækka svo þar sé
hægt að hefja borun. Kominn er stór
blásari sem notaður verður til að
loftræsta göngin og starfsmenn ÍAV
vinna hörðum höndum við setja upp
stærri loftræstirör svo hægt sé að
blása meira lofti inn að stafni.
Óvissa með austurstafninn
Unnið verður að efnaþéttingu í
næstu viku til að loka sprungum.
Sigurður R. Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá ÍAV, gerir ráð fyr-
ir að hægt verði að hefja aftur borun
og sprengingar um mánaðamót eða í
byrjun júní. Forsenda þess að það
takist sé að þessar undirbúningsað-
gerðir skili tilætluðum árangri og
samningar náist við verkkaupann
um fjárhagsmál sem tengjast vinnu-
aðstæðunum.
Ætlunin var að sprengja frá báð-
um stöfnum um þessar mundir til að
reyna að vinna upp tafir. Nú hafa
sprengingar stöðvast báðum megin
vegna vatns og hita. Enn er óljóst
hvenær hægt verður að hefjast
handa Fnjóskadalsmegin. Um 400
lítrar á sekúndu renna þeim megin
út úr göngunum og hefur rennsli
heldur minnkað frá því það var mest
en 20. apríl var rennslið 120 lítrum
meira en nú er. Um 620 innstu metr-
arnir í göngunum eru undir vatni.
helgi@mbl.is
Byrjað að sprengja
aftur í byrjun júní
Vinnuaðstæður bættar í Vaðlaheiði
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fnjóskadalur Heldur hefur dregið
úr rennsli kalda vatnsins.
VITA
Skógarhlíð 12
Sími 570 4444
Flogið með Icelandair
KÚBA - ný ferð!
Verð frá269.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
á mann í tvíbýli
*Verð án Vildarpunkta 279.900 kr.
23. - 30.NÓVEMBER