Morgunblaðið - 16.05.2015, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2015
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Fábreytt fæði (e. few foods diet) get-
ur hugsanlega gagnast sumum börn-
um með ADHD, athyglisbrest með
ofvirkni, sem næringarmeðferð til að
greina viðkvæmni
fyrir ákveðnum
fæðutegundum.
Þetta kom fram í
forrannsókn á fá-
breyttu fæði og
áhrifum þess á
einkenni íslenskra
barna með
ADHD. Þetta er í
fyrsta skipti sem
slík rannsókn hef-
ur verið gerð á ís-
lenskum börnum með ADHD og
styður hún sambærilegar erlendar
rannsóknir.
Forrannsóknin er hluti af stærri
rannsókn sem 30 íslensk börn munu
taka þátt í á næstunni, og vonir
standa til að hægt sé að gera enn
stærri rannsókn á um 100 börnum.
Rannsóknin er samstarfsverkefni
milli RÍN, Rannsóknarstofu í nær-
ingarfræði, og BUGL, Barna- og
unglingageðdeild Landspítalans, og
er unnin að ósk BUGL.
Samkvæmt fyrstu niðurstöðum
sýndu fimm af sex börnum jákvæð
viðbrögð við fábreyttu mataræði. Það
þýðir að það dró úr ADHD-
einkennum barnanna.
Tengsl matar og geðsjúkdóma
„Niðurstaðan kom okkur virkilega
á óvart. Við bjuggumst frekar við að
um helmingur myndi svara á jákvæð-
an hátt en það hlutfall er algengast í
sambærilegum erlendum rann-
sóknum. Það var líka mjög gaman að
sjá að foreldrarnir voru mjög ánægð-
ir,“ segir Freydís Guðný Hjálmars-
dóttir, einn rannsakenda, en meist-
araverkefni hennar í næringarfræði
byggist á rannsókninni.
Freydís segist alltaf hafa haft
áhuga á tengingu milli næringar og
hegðunar. Hún bendir á að rann-
sóknir sýna að tengingin sé til staðar.
Í þessu samhengi nefnir hún erlendar
rannsóknir, t.d. um næringu og árás-
arhneigð, en í einni slíkri dró úr árás-
arhegðun þeirra sem neyttu tiltek-
innar fæðu.
Börnin sem tóku þátt í rannsókn-
inni neyttu fábreytts fæðis í þrjár vik-
ur en fæðið er byggt á brotthvarfs-
mataræði sem notað er á LSH til að
greina fæðuofnæmi þegar engar aðr-
ar skýringar fást. Mataræðið er að-
eins tímabundið og inniheldur sem
fæsta þekkta ofnæmis- og óþolsvalda.
Ef barn svarar þessu tímabili með
breyttri hegðun, tekur við endur-
kynningarferli sem getur verið langt
og strangt þar sem skaðvaldurinn er
fundinn og er sú vinna rétt að hefjast
hérlendis. Því er fábreytta fæðið ekki
meðferðin sjálf, heldur er það mat-
aræðið sem hannað er eftir endur-
kynningarferlið.
Við meðferðina þarf bæði sér-
fræðiþekkingu á mataræði og á
ADHD. Foreldrar fengu sérstakar
leiðbeiningar um t.d. uppskriftir til að
fara eftir. Þar sem um strangt matar-
æði var að ræða þá var einnig könnuð
meðferðarheldnin, þ.e.a.s. hversu ná-
kvæmlega börn og foreldrar fylgdu
mataræðinu, hún mældist 68% að
meðaltali.
Freydís var nokkuð ánægð með þá
niðurstöðu því ferlið er strangt og
getur á köflum verið erfitt því um
mikla sérfæðu er að ræða og nokkrar
fjölskyldur treystu sér ekki til að
klára ferlið.
Hveiti og mjólkurvörur
Erlendar rannsóknir hafa sýnt að
einstaklingarnir bregðast við tiltek-
inni fæðu á misjafnan hátt, t.d. eru
sumir með appelsínu og kanil á sínum
bannlista. Þær matvörur sem hafa
reynst hafa mest áhrif á börn með
ADHD eru hveiti og mjólkurvörur, en
það á alls ekki alltaf við og ekki ráð-
legt að taka næringarríkar vörur úr
mataræðinu sé þess ekki þörf.
Freydís bindur vonir við að niður-
staða stóru rannsóknarinnar eigi eftir
að styrkja þessa. Í framhaldi af því
verði vonandi hægt að bjóða upp á
næringarmeðferð fyrir börn með
ADHD og að könnuð verði áhrif
mataræðis á einkennin.
Mataræði hefur áhrif á ADHD
Fábreytt fæði getur mögulega gagnast sumum börnum með ADHD Rannsóknin sú fyrsta sem
gerð er á íslenskum börnum Stærri rannsókn í bígerð Niðurstöðurnar komu á óvart
Getty Images/iStockphoto
Hveiti Mjólkurvörur og hveiti hafa
mest áhrif á börn með ADHD.
Freydís Guðný
Hjálmarsdóttir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Eftir þetta verðum við komin með
allt það sem góðan golfvöll þarf að
prýða. Við vonum að rætt verði um
Húsatóftavöll sem einn af bestu
golfvöllum landsins,“ segir Halldór
E. Smárason, formaður Golfklúbbs
Grindavíkur. Framkvæmdir eru
hafnar við miklar endurbætur á
golfvelli félagsins. Bláa lónið mun
fjármagna meginhluta kostnaðarins.
Húsatóftavöllur er 18 hola golf-
völlur við veginn frá Grindavík og út
á Reykjanes. Byggðar verða tvær
nýjar brautir frá grunni. Þá verða
gerðar fjórar nýjar flatir og þeirri
fimmtu breytt verulega. „Þegar
framkvæmdum lýkur, á árinu 2017,
getum við sagt að meirihluti flat-
anna, 10 af 18, verði af 2012-árgerð
eða nýrri,“ segir Halldór og getur
þess til skýringa að miklar endur-
bætur hafi verið gerðar á vellinum á
árunum 2008 til 2012. Það skipti
miklu máli að vera með sem flestar
flatir sem gerðar eru samkvæmt
nýjustu tækni og samræmdar.
Áætlað er að þessar fram-
kvæmdir ásamt göngustígum og
öðrum umhverfisverkefnum kosti
um 40 milljónir samtals. Bláa lónið
leggur þessa fjárhæð fram á þrem-
ur árum. Bláa lónið hefur hafið
framkvæmdir við stækkun upplif-
unarsvæðis lónsins og byggingu nýs
hágæða hótels. Verður golfvöllurinn
liður í að veita gestum hótelsins af-
þreyingu um leið og vonast er til að
fleiri gestir Bláa lónsins sæki
Grindvíkinga heim.
Undirgöng undir Nesveg
Með bættri aðstöðu mun aðdrátt-
arafl Húsatóftavallar fyrir íslenska
kylfinga aukast. „Þetta vekur at-
hygli í golfheiminum. Við höfum
verið að fá 140-150 manns á hverj-
um sunnudegi frá því við opnuðum í
vor, þrátt fyrir kulda og strekking,“
segir Halldór.
Grindavíkurbær kemur að upp-
byggingunni með því að leggja
bundið slitlag á veginn að golfskál-
anum og bílastæði. Þá verður á
árinu 2017 gerð undirgöng undir
Nesveg til að tengja saman brautir
á neðra og efra svæði golfvallarins
sem vegurinn skiptir. Halldór segir
að það muni auka öryggi kylfinga
sem þurft hafa að slá yfir veginn og
fylgja kúlum sínum eftir.
Ljósmynd/Haraldur H. Hjálmarsson
Húsatóftavöllur Fyrirhugaðar framkvæmdir á golfvelli Grindvíkinga munu auka aðdráttarafl hans enn frekar.
Rætt verði um golfvöllinn
sem einn af þeim bestu
Bláa lónið leggur 40 millj. í endurbætur á Húsatóftavelli
Forsvarsmenn klúbbsins vonast
einnig til að aðdráttarafl vallarins
meðal erlends ferðafólks aukist.
Þess má geta að Bláa lónið mun
kynna golfvöllinn sérstaklega í
markaðs- og kynningarefni sínu.
„Við höfum þá sérstöðu að geta
boðið Bandaríkjamönnum og fólki
af meginlandi Evrópu að spila niðri
við sjó. Það finnst þeim merkilegt.
Bretarnir hafa velli með slíkar að-
stæður en þeir hafa ekki hraun. Ég
hef hitt fólk þaðan sem finnst
stórkostlegt að leika á slíkum velli.
Við teljum okkur hafa eitthvað fyr-
ir alla, ekki síst sjó og hraun fyrir
fólk sem mest spilar á golfvöllum
inni í skógum,“ segir Halldór.
Hann bendir einnig á þá sér-
stöðu að nú slái kylfingar yfir
gjána á flekaskilunum á milli Am-
eríku og Evrópu. Eftir endurbæt-
urnar verði slegið yfir gjána tvisv-
ar á hverjum hring.
Slegið „milli heimsálfna“
KYNNT ERLENDUM FERÐAMÖNNUM
Húsnæðissamvinnufélagið Búmenn
fékk heimild til greiðslustöðvunar til
5. júní næstkomandi, með úrskurði
Héraðsdóms Reykjavíkur. Tilgang-
urinn er að freista þess að ná nýrri
skipan á fjármál félagsins sem varð
illa úti í kjölfar efnahagshrunsins
2008.
Helgi Jóhannesson hrl. á lög-
mannsstofunni LEX er aðstoðar-
maður félagsins í greiðslustöðvun-
inni. Búmenn leituðu einnig til
endurskoðunarstofunnar KPMG.
Skrá um um eignir og skuldbind-
ingar Búmanna verður lögð fram á
fundi með lánardrottnum ásamt
áætlun um hvernig reynt skuli að
greiða úr fjármálunum og leitað eftir
afstöðu lánardrottna. Unnt er að
óska eftir framlengingu greiðslu-
stöðvunar í lengri tíma en þó að há-
marki í sex mánuði.
Meðan á greiðslustöðvun stendur
er skuldara óheimilt að ráðstafa
eignum sínum og stofna til skuld-
bindinga nema vegna dagslegs
rekstrar. Einnig er almennt óheimilt
að greiða skuldir eða efna aðrar
skuldbindingar.
„Það er trú þeirra sem unnið hafa
að lausn á vanda Búmanna að
greiðslustöðvunin sé mikilvægur og
nauðsynlegur þáttur í því mikla
verkefni að endurreisa fjárhag fé-
lagsins og styrkja starfsemi þess til
framtíðar,“ segir í yfirlýsingu.
Búmenn í greiðslu-
stöðvun til 5. júní
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Hér gefst einstakt tækifæri á að upplifa stórfenglegt
landslag Noregs, þrönga firði, há fjöll með snæviþöktum
tindum, fallega fossa og sveitabæi byggða í snarbröttum
fjallshlíðum. Margir markverðustu staðir Noregs
munu verða heimsóttir m.a. Niðarósdómkirkjan,
Geirangursfjörðurinn og Björgvin.
Verð: 199.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
eh
f.
Fararstjórar: Inga Erlingsdóttir & Guðni Ölversson
27. júní - 2. júlí
Í tröllahöndum í Noregi
Sumar 9
Örfá sæti laus