Morgunblaðið - 16.05.2015, Síða 34

Morgunblaðið - 16.05.2015, Síða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2015 ✝ Hjördís Vil-hjálmsdóttir fæddist í Reykjavík 20. maí 1954. Hún andaðist á Land- spítalanum 9. maí 2015. Foreldrar henn- ar voru Vilhjálmur Jóhannesson, f. 6. júní 1931, d. 7. des. 1983, og Lilja Ágústa Jónsdóttir, f. 12. sept. 1931, d. 29. jan. 2015. Bróðir Hjördísar er Jóhann- es, f. 1955, sambýliskona Hall- dóra Kristjánsdóttir, f. 1956, þau eiga tvær dætur. Systur Hjördísar eru Lilja, f. 1964, gift Júlíusi Magnússyni, f. 1962, og eiga þau þrjú börn en fyrir átti Júlíus einn son; og Magnea, f. 1964, gift Magnúsi Magnússyni, er Kristín Alma Sigmarsdóttir og eiga þau eina dóttur, Jódísi Kristínu. 4) Vilhjálmur við- skiptafræðingur, sambýliskona hans er Erla María Einars- dóttir. Að loknum grunnskóla fór Hjördís í Lindargötuskóla og síðan í Fósturskóla Íslands og lauk þaðan prófi 1975. Eftir það flutti hún til Grundarfjarðar og byrjaði þar sem leikskólastjóri. Síðar færði hún sig yfir í grunn- skólann og kenndi þar til 1992 er hún flutti með fjölskyldunni til Noregs. Þar starfaði hún sem leikskólastjóri í eitt ár áður en hún hóf nám í sérkennslu við háskólann í Osló. Þaðan útskrif- aðist hún sem sérkennari árið 1995. Eftir það hélt hún til Ís- lands aftur og hóf starf sem sérkennari við Grunnskóla Grundarfjarðar og starfaði við skólann þar til hún þurfti að láta af störfum af heilsufars- ástæðum. Útför Hjördísar fer fram frá Grundarfjarðarkirkju í dag, 16. maí 2015, og hefst athöfnin kl. 14. f. 1965, þau eiga fimm börn. Eftirlifandi eig- inmaður Hjördísar er Pétur Guðráð Pétursson íþrótta- kennari, f. 1951, og áttu þau fjögur börn: 1) Eva Jódís hjúkrunarfræð- ingur, sambýlis- maður hennar er Pétur Vilbergur Georgsson kennari og eiga þau þrjú börn, Vilhjám Darra, Anítu Ósk og Andreu Ósk. 2) Ásdís Lilja kennari, sambýlismaður hennar er Vilberg Ingi Krist- jánsson pípulagningameistari og eiga þau tvö börn, Birgittu Sól og Hjördísi Maríu. Fyrir átti Ásdís soninn Andra Má Magna- son. 3) Jón Pétur bygginga- fræðingur, sambýliskona hans Í dag kveð ég elskulega eigin- konu mína, móður, ömmu, ráð- gjafa og algjöra hetju. Eiginlega allt sem góð lýsingarorð ná yfir. Hjördís var einstök persóna, vinur, hlustari, ráðgjafi, sálusorg- ari og einstaklega hjartahlý manneskja sem ekkert aumt mátti sjá og var alltaf tilbúin til að hjálpa öðrum, ekki síst þeim sem minna máttu sín. Hvar sem hún var sogaðist að henni fólk sem trúði henni fyrir sínum hjartans málum eins og hún væri þeirra eini trúnaðarvinur. Hjördís elskaði að vinna með börnum hvort sem var á leikskóla eða grunnskóla og sýndi þar ein- staka þolinmæði. Aldrei hraut af vörum hennar styggðaryrði né blótsyrði, sem var algjör bann- vara hjá henni. Vegna þessarar þolinmæði vann hún hug og hjörtu barnanna þótt einhver mótþrói eða óróleiki væri í gangi. Sem sérkennari var hún sérlega lagin við að láta þá sem erfitt áttu námslega finna fyrir framfara- skrefum í námi, þótt agnarsmá væru þau oft á tíðum, og fékk þar með áhuga barnanna til að vaxa og breytast í kappsemi. Ófáir nemendur með lesblinduvanda- mál fengu áhuga á að reyna að lesa með þeim aðferðum sem Hjördís kenndi þeim og talaði í þau kjark. Börn hennar og barna- börn voru alltaf í forgangi hjá henni. Hún setti sig alltaf í síðasta sæti í röðinni hvernig sem henni leið. Þetta kom berlega í ljós í veikindum á sjúkrahúsi þar sem þurfti að áminna hana að hringja á aðstoð þegar hún þyrfti, en það vildi hún helst ekki til að trufla ekki fólk sem væri að sinna meira veiku fólki. Hjördísi var einkar annt um að börnum og barnabörnum farnað- ist vel í námi og fylgdist grannt með því og var óþreytandi í að hringja og senda símskilaboð með spurningum um hvernig gengi í hinum og þessum prófum. Allt þetta var endurgoldið með upp- lýsingum, þakklæti og stolti yfir góðum árangri og þakklæti fyrir hjálpina. Síðustu kveðjuna fékk hún á dánarbeðinum með orðun- um: „Amma, ég fékk níu á próf- inu.“ Hjördís var einstaklega mikil handavinnukona, bæði með prjóna, við saum, hekl eða annað handverk, og alltaf skyldi skila frá sér vönduðu og fallegu handverki. Annað kom ekki til greina og nemendum hennar var innprent- að það sama og þeir látnir stroka út eða rekja upp það sem var mið- ur gott. En ánægjan með lokið verk lét ekki á sér standa. Raunum sínum í veikindum var hún dugleg að leyna til að aðrir sæju ekki hve illa henni leið og færu að taka inn á sig áhyggjur hennar vegna. Henni gekk þetta svo vel að stundum hélt fjölskyld- an að allt væri í himnalagi þar til fjölskyldan lærði að lesa í svip- brigðin. Verst fannst Hjördísi ef fjölskyldan færi að hafa áhyggjur af henni. En að hún hefði áhyggj- ur af fjölskyldunni var annað mál. Hvíldu í friði, ástin mín, og hafðu þökk fyrir öll árin sem við fengum saman, öll yndislegu börnin sem þú gafst mér, allt sem þú kenndir mér og að gera mig að betri manni. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Þín er sárt saknað. P. Guðráð. Elsku besta, einstaka mamma mín. Það verður erfitt að sætta sig við að nú sé komið að því að við kveðjumst í síðasta skiptið í þess- um heimi. Ég átti eftir að segja þér svo margt, hvað ég er þér þakklátur fyrir allt, fyrir að hafa haft þig sem móður, fyrir allt sem þú kenndir mér, fyrir að gera mig að þeim manni sem ég er. Það sem veitir mér helst kraft til að takast á við þetta núna, eins og oft áður þegar reynt hefur á mig, er að hugsa um hversu sterk þú ert. Ég skil ekki hvernig þú fórst að því en það var sama hvað kom mikið mótlæti, þú varst alltaf svo já- kvæð, glæsileg og sterk. Þú ert einstök baráttuhetja. Ég er svo þakklátur fyrir að Erla María skyldi fá tækifæri til að kynnast þér, þótt kynnin hafi verið alltof stutt, því allir sem voru svo heppnir að fá að kynnast þér vita að það er ekki hægt að út- skýra þína einstöku nærveru og góðmennsku með orðum. Góðu minningarnar um þig eru endalausar og ég er svo þakklátur fyrir það sem við áttum því mér hlýnar alltaf við að hugsa um það sem við höfum upplifað saman. Ég gat alltaf leitað til þín með það sem ég var að fást við og þú varst svo góð í að hlusta á mig, skilja mig, trúa á mig og gefa mér góð ráð til að klára hlutina með sóma. Eins og þú gerðir alltaf. Sérstak- lega vil ég þakka þér fyrir hvað þú lagðir mikla áherslu á námið mitt og hvað þú hafðir óendanlegan áhuga og tíma fyrir að aðstoða mig. Ég mun aldrei ná að klára að segja þér allt sem ég er þér þakk- látur fyrir en það er allt í lagi. Ég veit að þú verður alltaf með okkur og ég mun halda áfram að segja þér frá því sem ég ber í brjósti. Þú verður alltaf í hjarta mínu. Erla María sagði einu sinni við mig fyrir löngu að við værum í raun að skrifa ævisögu okkar sjálf á hverjum degi með því hvernig við komum fram. Mamma mín, þú hefur skrifað fallegustu ævisögu sem hugsast getur með gjörðum þínum, góðmennsku þinni og um- hyggjusemi í garð annarra. Ég er svo þakklátur fyrir að eiga þig sem fyrirmynd og ég mun halda áfram að fara eftir því sem þú kenndir mér og kenna mínu fólki það lika. Varðandi annað sem ekki náðist að kenna mér, þá mun ég sækja styrk í það að hugsa hvern- ig mamma hefði tæklað hlutina. Elsku mamma, ég ætla að gera mitt allra allra besta til að skrifa fallega ævisögu eins og þú gerðir. Ekki hafa áhyggjur af okkur. Við systkinin og tengdabörn pöss- um upp á pabba og öll ömmugullin þín. Við verðum sterk öll saman eins og alltaf og pössum hvert upp á annað, þú mátt treysta því. Ég elska þig endalaust, mamma mín, og mun alltaf gera, hafðu það nú gott. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Takk fyrir allt. Þinn mömmu- strákur, Vilhjálmur. Elsku mamma. Hún er mér of- arlega í huga núna sú stund í febr- úarmánuði síðastliðnum þegar við sátum saman við eldhúsborðið heima hjá ykkur pabba og þú varst að vanda þig við að skrifa minningargrein um ömmu. Ég sagði við þig hvað lífið gæti verið sorglegt og að ég fyndi til með þér að missa mömmu þína, því mér fannst að allir ættu að eiga mömmu. Ég minnist þessarar stundar þó ekki með sorg í hjarta heldur þakklæti, því nærvera þín var svo góð og það var alltaf notalegt að spjalla við þig. Við spjölluðum m.a. um minningargreinar og ég sagði þér að ég kysi að skrifa ekki grein, því það væri ekki mín leið til að syrgja og þakka fyrir, held- ur vildi ég gera það á annan hátt. Þú studdir mig í því, eins og reyndar öllu öðru. Ég er þakklátur fyrir þessa umræðu sem við áttum og ég ætla að standa við þau orð og minnast þín á þann hátt sem við töluðum um. En ég á þér svo margt að þakka að ég get ekki látið það ógert að þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Mig langar að þakka þér fyrir að hafa hugsað svo vel um okkur, kennt okkur svo margt og fyrir að hafa alltaf verið til staðar. Ég er þakklátur fyrir allar góðu minningarnar sem við eigum, öll samtölin sem við áttum og ekki síst fyrir öll hlýju faðm- lögin. Þú hefur kennt mér svo margt og ég verð þér ævinlega þakklátur fyrir það. Þrátt fyrir að þú sért farin á annan stað núna er ég enn að læra af góðmennsku þinni og meðtaka og skilja betur þá hluti sem þú lagðir mikla áherslu á að ég myndi tileinka mér. Þú varst alltaf svo glæsileg og vel til fara, lagðir metnað í allt sem þú gerðir, hvort sem það var vinna, handverk, veisluhöld eða skreytingar fyrir bæjarhátíðina okkar. Ég er þakklátur fyrir það hvað þú hugsaðir vel um okkur systk- inin, alla vini okkar sem voru þér sem þín eigin börn og ekki síst hvað þér þótti vænt um Kristínu Ölmu eftir að við fórum að búa saman. Ég er þakklátur fyrir það hvað þú reyndist pabba vel og varst honum trygg alla tíð, og ekki síst þakklátur honum fyrir að hafa staðið þétt við bakið á þér alla tíð í gegnum súrt og sætt. Það sem gleður mig þó einna mest er að Jódís Kristín, dóttir mín, skuli hafa fengið að kynnast þér og finna fyrir ömmuhjartanu. Þó svo að hún komi ekki til með að muna eftir þér þá fékk hún að elska þig og það gerði hún svo sannarlega. Þú munt ætíð eiga stað í hjarta hennar og ég hjálpa henni að elska þig. Ég mun fylgja henni út í lífið með þann fróðleik og ást í far- teskinu sem þú hefur veitt mér. Guð geymi þig að eilífu. Þinn Jón Pétur. Elsku besta mamma, ég sakna þín svo sárt. Það er svo margt sem mig langar að segja. Svo margar minningar sem koma upp. Góðar minningar. Þetta er svo erfitt, svo rangt, svo óréttlátt og svo óraunveru- legt. Allt sem þú hefur gengið í gegnum, en alltaf með höfuðið hátt. Aldrei heyrði ég þig kvarta. Þú varst mér svo góð fyrir- mynd og allt sem þú gerðir var svo vel gert, það kom alltaf frá hjartanu. Þú gast einhvern veginn allt og það var svo gott að geta leitað til þín með hvað sem er, þú varst alltaf til staðar. Hvert á ég nú að leita? Þú settir þig inn í allt sem við vorum að gera til að geta hjálpað okkur við það sem við vor- um að kljást við. Skólann, uppeld- ið, eldamennsku, prjónaskap, daglegt líf. Þú bara komst mér í gegnum allt sem ég hef þurft að takast á við. Ég hefði ekki getað þetta án þín, ég væri ekki sú sem ég er án þín. Þú lést alla aðra ganga fyrir, sama hversu mikinn toll það tók af þér. Þú lést okkur aldrei sjá það. Þú varst og ert í hjarta mér hjartahlýjasta, duglegasta, sam- viskusamasta, þolinmóðasta og sterkasta kona sem ég þekki. Fal- leg bæði að utan og innan. Hetjan mín. Ég vil vera eins og þú. Ég man aldrei eftir látum, skömmum né rifrildum í kringum þig, það varst bara ekki þú. Þú tókst öllu með jafnaðargeði og notaðir þína einstöku þolinmæði og skilning til að takast á við hlut- ina. Þið pabbi voruð svo frábær saman, svo samstiga og ótrúleg. Ég vildi að þið hefðuð fengið meiri tíma saman. Tíma til að njóta alls sem þið hafið byggt svo vel upp í gegnum öll þessi ár. Þú varst svo einstök amma. Börnin mín voru svo háð þér, litu upp til þín og leituðu til þín. Ég er svo þakklát fyrir stundirnar sem þau áttu með þér. Þú gafst þér alltaf tíma fyrir þau, aldrei heyrð- ist orðið „bíddu“. Þau bara gengu fyrir öllu. Öll samskipti við þau voru svo falleg. Þau fóru ekki í pössun/„geymslu“ til þín, heldur fóru til þín til að leika með ömmu. Þau sátu aldrei aðgerðalaus hjá þér heldur gafstu þér alltaf tíma til að setjast niður með þeim til að föndra, lesa, spila, sauma og spjalla. Þú varst trúnaðarvinur þeirra og hlustaðir á allt sem þau höfðu að segja með innlifun og samkennd. En nú ertu farin eftir hetjulega baráttu allt fram á hinstu stund og ég er þér svo óendanlega þakk- lát fyrir allt sem þú hefur gert fyr- ir mig og hjálpað mér með. Þú varst ekki bara mamma mín held- ur líka besti og tryggasti vinur sem hægt er að hugsa sér. Ég kveð þig elsku mamma mín með svo miklum sársauka og vona að þú sért komin á góðan stað, því þú átt bara það besta skilið. Ég lofa þér að við munum passa vel hvert upp á annað því það hefðir þú viljað. Fjölskyldan var þér svo mikils virði. Ég elska þig svo mikið. Minn- ing þín mun lýsa í hjörtum okkar. Þín Ásdís. Elsku Hjördís mín. Ég trúi ekki að þú sért farin frá okkur. Einhver partur af mér vonar að ég geti farið í Sæbólið og þú tekið á móti mér með knúsi í forstof- unni og spurt hvort ég vilji ekki fá mér eitthvað að borða. Dekkað svo upp hlaðborð eins og þér einni var lagið og sagt „ruglastu ekki í sortunum“. En lífið er ósann- gjarnt og fólk sem hefur svo margt að lifa fyrir er tekið frá okkur hinum allt of snemma. Þú varst mér svo miklu meira en bara tengdamóðir, þú varst mér sem móðir og ein af betri vin- konum sem alltaf var hægt að leita til. Ég er svo óendanlega þakklát fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, kennt mér og hjálpað mér með í gegnum síð- ustu sjö árin. Óskin mín um að þú fengir að vera amma barnanna minna rætt- ist og áttuð þið Jódís Kristín góða 19 mánuði saman. Samband þitt við barnabörnin var svo ótrúlega náið og fallegt og ég hef oft sagt að það ætti að vera mynd af þér við orðið „amma“ í orðabókinni. Það þyrfti engar frekari útskýr- ingar. Mér finnst ákaflega sárt að hugsa til þess að Jódís Kristín eigi ekki eftir að muna eftir þér en ég geymi fallegu minningarnar um ykkur tvær saman í hjarta mínu eins og gull, þær eru mér svo dýr- mætar. Ég er þér og Guðráði svo þakk- lát fyrir að hafa alið börnin ykkar vel upp og gefið ykkur allan heimsins tíma í það verkefni því að börnin ykkar fjögur eru ein- hverjir vönduðustu einstaklingar sem ég þekki. Jón Pétur er sá allra besti faðir sem ég gæti hugs- að mér fyrir börnin mín og gefur litlu ákveðnu Jódísi Kristínu allan heimsins tíma, kærleika og þolin- mæði sem hún þarf á að halda og við erum heppin að hafa svona góðar fyrirmyndir þegar kemur að foreldrahlutverkinu. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið þann heiður að kynnast þér og hafa þig í mínu lífi þó að það hafi verið í of stuttan tíma. Það er erfitt að kveðja þig elsku Hjördís mín, en ég reyni að hugga mig við það að núna ertu á góðum stað, í hraustum líkama, búin að setja á þig gloss og ert vonandi að segja einhverjum brandarann um bleiku skóna. Þín Kristín Alma. Elsku einstaka tengdamamma mín. Þegar ég hugsa til þín er ég fyrst og fremst þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Þakklát fyrir þær stundir sem við áttum saman og samtölin okk- ar sem voru svo uppbyggjandi. Þakklát fyrir þær hlýju mót- tökur sem ég fékk alltaf og hvað þú varst mér góð. Þakklát fyrir hvað þú hafðir mikla trú á mér og hvað þú varst áhugasöm um allt sem ég tók mér fyrir hendur. Kappsemin í þér var ótrúleg og ég mun aldrei skilja hvernig þú varst alltaf svo jákvæð og bjart- sýn þó illa stæði á. Þetta vil ég taka mér til fyrirmyndar og mun ég alltaf hugsa til þín þegar ég þarf á kraftinum þínum að halda. Það er sárt að hugsa til þess að ég fái ekki að verja fleiri stundum með þér en á sama tíma veit ég að þú ert á betri stað núna, þar sem þú þarft ekki að þjást lengur. Ég get huggað mig við þá tilhugsun. Ég og Villi munum alltaf lifa eftir því sem þú hefur kennt okkur. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Takk fyrir allt. Þín tengdadótt- ir, Erla María. Elsku amma. Orð lýsa því ekki hversu mikið ég á eftir að sakna þín. Þú hefur passað mig alveg frá fæðingu og Hjördís Vilhjálmsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku mamma, Svo mörg ósögð orð, svo margt ógert en svo margt búið að segja og svo margt búið að gera og eftir standa yndislegar minningar. Orð mín til þín koma til þín á annan hátt. Ástarkveðja frá stóru stelpunni þinni, Eva Jódís. Elsku amma, ég mun sakna þín svo mikið. Hver á núna að sauma með mér? Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Þín Hjördís María. Elsku besta amma Hjör- dís. Það var leiðinlegt að þú fékkst ekki fleiri ár með okkur. Við söknum þín. Þú varst okkur mjög kær og mikilvæg. Þú varst í uppá- haldi hjá okkur. Þú ert mjög falleg og frábær. Þú varst svo góð í lífinu. Við viljum vera eins góð og þú. Þú settir alltaf alla fram fyrir þig. Í hvert sinn sem við komum í heim- sókn til þín og afa, fengum við eitthvað gott í gogginn. Takk fyrir að fylgja okk- ur eftir í öllu sem við gerð- um, t.d. skólanum, íþrótt- unum og bara okkar lífi. Takk fyrir að kenna okk- ur yndislegu hæfileikana þína, s.s. að flauta, prjóna, sauma og að læra að taka fólki eins og það er með kostum og göllum. Takk fyrir að elska okk- ur öll. Takk fyrir öll þessi yndislegu ár með okkur. Þú munt alltaf eiga stað í hjartanu okkar. Við elskum þig öll, besta amma í heimi. Þín barnabörn, Vilhjálmur Darri, Aníta Ósk og Andrea Ósk. HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.