Morgunblaðið - 18.05.2015, Side 1
Morgunblaðið/Eggert
Skipulagður Magnús Pétursson ríkissáttasemj-
ari hefur í fjölmörg horn að líta í dag.
„Þetta var hvorki jákvæður né neikvæður fundur.
Hljóðið í mönnum var fínt og þarna var tekist á á
málefnalegum nótum,“ segir Magnús Pétursson
ríkissáttasemjari.
Í gær funduðu Flóafélögin og VR í deilu sinni
við SA þar sem vinnutímafyrirkomulag var rætt.
„Þetta var fyrst og fremst vinnufundur og það
komu engar niðurstöður út úr honum,“ segir Sig-
urður Bessason, formaður samninganefndar
Flóafélaganna. Næsti fundur er áætlaður á morg-
un. Eftir hann ætlar stjórn VR að funda með
landssambandinu og ákveða næstu skref.
Dagskráin er þétt hjá Magnúsi í dag en iðn-
aðarmenn koma til fundar klukkan níu, SGS kem-
ur þar á eftir og svo er fundur á milli BHM og rík-
isins eftir hádegi. benedikt@mbl.is
Engar niðurstöður en tekist
á á málefnalegum nótum“
Rætt um vinnutímafyrirkomulag í þrjá tíma í gær
M Á N U D A G U R 1 8. M A Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 115. tölublað 103. árgangur
BÝR TIL MINN-
INGAR MEÐ
HEFÐUM
BÆTTI EIGIÐ
ÍSLANDS-
MET
FRÁ ABBADÍS TIL
ÖRLYGSSTAÐA-
BARDAGA
ÍÞRÓTTIR ÍSLANDSSAGA 26SÉRA ERLA 10
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
„Ástandið er mjög slæmt á svína-
búinu, um 500 grísir eru tilbúnir til
slátrunar og það verður ekki beðið
lengur en til morguns að hefja slátr-
un,“ segir Gunnar Þór Gíslason,
framkvæmdastjóri Síldar og fisks.
Fyrirtækið hefur ekki verið tilbúið
að ganga að skilmálum undanþágu-
nefndar Dýralæknafélags Íslands,
að skila yfirlýsingu þess efnis að kjöt
fari ekki á markað gegn því að fá
undanþáguheimild til slátrunar.
Gunnar segir að verði undanþágu-
beiðni fyrirtækisins fyrir slátrun á
120 til 150 grísum á morgun ekki
samþykkt í dag verði grísirnir aflíf-
aðir í kvöld eða á morgun og kjötinu
hent, um 100 þúsund máltíðum. Þó
eigi eftir að finna lausn á því hvernig
standa eigi að slíku fjöldadrápi.
Sigríður Gísladóttir, í stjórn Dýra-
læknafélags Íslands, segir Síld og
fisk hafa farið fram af hörku í málinu
og er fyrirtækið það eina sem gekk
ekki að samkomulagi svínabænda og
undanþágunefndarinnar.
Hún gerir ráð fyrir því að undan-
þágubeiðninni verði hafnað á fundi
nefndarinnar í dag ef ekki fylgir
beiðninni yfirlýsing um að kjötið fari
ekki á markað og segir það vera
blekkingar af hálfu Síldar og fisks að
segja þeirra dýravelferðarvandamál
vera eingöngu út af verkfallinu.
Hundruð grísa á haugana?
Svínaræktandinn Síld og fiskur ætlar að aflífa hundruð grísa og henda um 100
þúsund máltíðum, verði undanþágubeiðni fyrirtækisins um slátrun hafnað í dag
M 100 þúsund »4
Verkfall dýralækna
» Síld og fiskur neita að skila
inn yfirlýsingu um að kjöt fari
ekki á markað og segja það
rangt að skilyrða dýravelferð
kjarabaráttu dýralækna.
» Fjöldadráp hefst í kvöld eða
í fyrramálið á grísum verði
undanþágubeiðninni hafnað.
Margir lögðu leið sína í varðskipið Óðin sem er
til sýnis við Sjóminjasafnið í Reykjavík í tilefni af
íslenska safnadeginum sem haldinn var hátíðleg-
ur í gær. Ísak Hrafn Freysson var meðal þeirra
gesta sem heimsóttu skipið og virti kappinn fyrir
sér heiminn í gegnum kýrauga á skipinu.
Heimurinn kannaður í gegnum kýrauga Óðins
Morgunblaðið/Eggert
Íslenski safnadagurinn var haldinn hátíðlegur í gær
Undanfarin ár hafa nauðungar-
vistanir og lögræðissviptingar sem
velferðarsvið Reykjavíkurborgar
hefur staðið að fjölgað. Á árinu
2014 var samanlagður fjöldi nauð-
ungarvistana og lögræðissviptinga
63 samanborið við 19 árið 2009.
Þetta kemur fram í umsögn vel-
ferðarsviðs við frumvarp um breyt-
ingar á lögræðislögum. María Ein-
isdóttir, framkvæmdastjóri
geðsviðs Landspítalans, segir
helstu skýringuna á þessari breyt-
ingu þá að aðstandendur séu betur
upplýstir um að velferðarsvið getur
auk aðstandenda sótt um nauðung-
arvistun. »16
Borgin sækir oftar
um nauðungarvistun
Vegna kerfislægra vandamála við
inngreiðslur á höfuðstól fasteigna-
lána eru fjölmörg dæmi um að sér-
eignarlífeyrissparnaður sem fara
átti inn á höfuðstól húsnæðislána
hafi þess í stað farið í að greiða niður
vexti á lánum. Lögfræðingur Ríkis-
skattstjóra segir að vandamálið
helgist af því að kerfi lánveitenda
hafi ekki ráðið við að koma sparn-
aðinum inn á höfuðstólinn. Vanda-
málið sé nær eingöngu bundið við
Íbúðalánsjóð. »6
Sparnaður í
vexti í stað
höfuðstóls
Morgunblaðið/ÞÖK
Lán Greiðslur til lækkunar höfuð-
stóls fóru í að greiða niður vexti.
Ástæðan sögð vera
kerfislæg vandamál
Guðjón Reynis-
son tók við stjórn
leikfangaversl-
unarinnar Ham-
leys þegar fyrir-
tækið var enn í
eigu Baugs og
Fons. Hamleys
hefur skipt um
eigendur í tví-
gang síðan þá og
undir stjórn Guðjóns hefur fyrir-
tækið vaxið hratt.
Hamleys-verslanirnar eru nú
hátt á sjötta tug og dreifast um
Evrópu, Asíu og Mið-Austurlönd.
Risaverslun var nýlega opnuð í
Moskvu og stækkun til Vesturheims
á teikniborðinu. »14
Hamleys vex hratt
undir stjórn Guðjóns
Guðjón Reynisson