Morgunblaðið - 18.05.2015, Side 14

Morgunblaðið - 18.05.2015, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MAÍ 2015 VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Breska leikfangafyrirtækið Ham- leys hefur vaxið hratt undir stjórn Guðjóns Reynissonar. Guðjón sett- ist þar í forstjórastólinn vorið 2008 en á þeim tímapunkti voru liðin fjögur ár frá því Baugur og Fons eignuðust reksturinn. Guðjón kom inn í Hamleys í gegnum Baug en þar hafði hann stýrt 10-11 verslununum um nokkurra ára skeið. Síðan þá hefur Hamleys tvisvar skipt um eig- endur. Lands- bankinn og Kaupþing Lux- embourg eignuðust fyrirtækið eft- ir að Baugur og Fons fóru í þrot en haustið 2012 keypti franska fyrirtækið Ludendo reksturinn. Barnaheimur í Moskvu Á þessum stutta tíma hafa rúm- lega sextíu nýjar Hamleys- verslanir verið opnaðar víða um heim og nú síðast var opnuð í Moskvu Hamleys-búð sem er stærsta leikfangaverslun Evrópu, og verður sú stærsta í heiminum eftir að Toys R Us lokar verslun sinni við Times Square í New York síðar á árinu. Var Guðjón í viðtali í breska dagblaðinu The Times á laugardag þar sem versl- unin í Mosvku var til umfjöllunar en þessi nýjasta viðbót við Ham- leys-fjölskylduna hefur vakið verð- skuldaða athygli. „Síðastliðin fimm ár höfum við opnað einar fimm verslanir í Rúss- landi með samstarfsaðila okkar þar í landi. Í lok mars var opnuð nýjasta verslunin á sögufrægum stað í miðborg Moskvu þar sem á sínum tíma var Detskí Mír, stærsta barnavöruverslun Sov- étríkjanna. Lokaði Detskí Mír fyr- ir tíu árum en svo var ákveðið að endurnýja bygginguna og opna þar stærstu og bestu leik- fangaverslun heims. Varð Hamleys fyrir valinu sem lykilverslunin í þessu húsi,“ útskýrir Guðjón. Hefur tekist að skapa þar mik- inn ævintýraheim og þykir upp- lifun að koma í verslunina svo að minnir nánast á skemmtigarð. Að skapa þessa metnaðarfullu og að- laðandi umgjörð segir Guðjón að skipti öllu máli á leikfangamarkaði í dag. Landslag markaðarins hafi breyst og ekki dugi lengur að ná til neytenda með gömlum aðferð- um. Upplifunin undirstaðan „Með tilkomu netsins hefur orð- ið grundvallarbreyting á leik- fangasölu. Netverslanir og stór- markaðir eins og Wal-Mart, Amazon og Target hafa náð til sín mikilli markaðshlutdeild en gömlu sérverslununum verið rutt í burtu. Toys R Us er eina leikfangaversl- unin sem hefur náð að verða risi á heimsvísu en þeim hefur fatast flugið á undanförnum áratug,“ segir hann. „Í þessu umhverfi er hægt að reka leikfangaverslun á tvo vegu: annars vegar getur verslunin verið staður þar sem fólk kemur þegar það vanhagar um eitthvað, og hins vegar getur verslunin verið staður þar sem viðskiptavinurinn kemur til að eiga skemmtilega upplifun.“ Þessi áhersla á upplifun, til að skapa sérstöðu á markaði, sést víðar en í leikfangabransanum. „Nefna má Apple-búðirnar og Burberry sem dæmi þar sem lögð er rík áhersla á að skapa ákveðna aðlaðandi upplifun fyrir viðskipta- vininn, „retail experience“ eða jafnvel „theater“ eins og það er kallað. Það er þessi upplifun sem hefur hjálpað Hamleys að ná fótfestu í fjölda landa á skömmum tíma. Ís- lendingar og aðrir Evrópubúar þekkja Hamleys-merkið ágætlega en sömu sögu er ekki alltaf hægt að segja um viðskiptavini í Ind- landi eða við Persaflóa. „Hamleys- merkið er sterkt, en þegar við för- um inn á nýjan markað getum við ekki treyst því að vörumerkið sé þekkt. Upplifunin í verslununum er það sem laðar viðskiptavinina til okkar og gaman að sjá hvernig börn og fjölskyldur þeirra eru al- veg eins sama hvar í heiminum maður er. Öll heillast þau af þeirri umgjörð sem hefur verið sköpuð í verslununum og alls staðar er Hamleys-bangsinn knúsaður jafn fast.“ Merkið var stærra en búðin Í dag má finna Hamleys-búðir hér og þar í Skandinavíu, í nokkr- um borgum Rússlands og í Ist- anbúl í Tyrklandi. Verslanirnar eru fjöldamargar í Indlandi, þrjár í Malasíu og ein á Filippseyjum. Mið-Austurlönd eru líka sterkur markaður með verslanir í Jórd- aníu, Egyptalandi, Sádi-Arabíu og í Sameinuðu arabísku furstadæm- unum. Eru verslanirnar allar reknar með svk. sérleyfisfyr- irkomulagi (e. franchise). Fram- undan er meðal annars opnun verslana vestanhafs og nefnir Guð- jón Mexíkó í því sambandi. Hann segir hafa verið byrjað að leggja drög að vexti utan Bret- lands áður en hann kom til starfa hjá Hamleys en ekki orðið að veruleika fyrr en á síðustu 7 árum. „Hugmyndin með kaupunum var upphaflega þessi, enda vörumerkið Hamleys miklu stærra en sjálft fyrirtækið eins og það var þá.“ Guðjóns bíður ærinn starfi en hann kvartar ekki og segir að síð- ustu sjö ár hafi verið mikið æv- intýri. „Það er eðlilega mjög skemmtilegt að selja leikföng. Þá er mjög sérstakt að vinna með þetta rótgróna vörumerki sem Hamleys er, stofnað árið 1760 og þannig með lengri sögu en sjálf Bandaríkin. Maður finnur fyrir mikilli ábyrgð með 255 ára gamalt fyrirtæki í höndunum.“ Lykilatriði að skapa upplifun Morgunblaðið/Golli Leikur Verslun Hamleys við Regent Street í miðborg Lundúna. Reksturinn í dag byggir á 255 ára sögu. Fyrirtækið breiðr nú úr sér um allan heim.  Guðjón Reynisson hefur átt sjö ævintýraleg ár hjá Hamleys  Nú síðast var að bætast við verslun í sögufrægu húsi í Moskvu sem verður stærsta leikfangabúð í heimi og þykir vera mikil undraveröld Guðjón Reynisson Fyrirtækið Kering SA, sem á með- al annars tískumerkin Gucci, Ba- lenciaga og Yves Saint Laurent, höfðaði á föstudag mál gegn kín- verska vefverslunarrisanum Ali- baba. Málið verður rekið fyrir dóm- stóli á Manhattan en samkvæmt dómskjölum segir Kering að Ali- baba hafi ekki gripið til viðeigandi ráðstafana til að stemma stigu við sölu á fölsuðum tískuvarningi. Kering gefur Alibaba að sök að hafa að yfirlögðu ráði „hvatt til, aðstoðað við og hagnast af sölu á fölsuðum varningi“ í vefverslunum fyrirtækisins. Wall Street Journal hefur eftir talsmanni Alibaba að ásakanirnar eigi sér engan stuðning í veru- leikanum og að til standi að verja málið af fullri hörku. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kering dregur Alibaba fyrir dóm- stóla en í júlí höfðaði fyrirtækið samskonar mál, nokkrum mán- uðum áður en Alibaba var skráð á markað í Bandaríkjunum. Sú málshöfðun var dregin til baka tveimur vikum síðar. Virtust fyr- irtækin þá hafa komist að sam- komulagi um að vinna í samein- ingu gegn sölu á falsaðri tískuvöru. ai@mbl.is Frönsk lúxusmerki höfða mál gegn Alibaba  Segja netbúðina ekki hafa gert nóg til að stöðva falsara AFP Vandamál Francois-Henri Pinault forstjóri Kering á hluthafafundi í apríl. Sala á falsaðri tískuvöru virðist enn útbreidd hjá Alibaba. Kreppan á Grikklandi virðist hafa orðið til þess að rýra mannauð grísku þjóðarinnar töluvert. Mar- ketWatch fjallar um nýlegar rann- sóknir sem sýna fram á verulegan vitsmunaflótta eftir að fór að halla undan fæti þar í landi. Er talið að á bilinu 180-200.000 vel menntaðir íbúar hafi flutt á brott á undanförnum árum og stefnir í að landið muni missa um 10% af öllum háskólamenntuðum Grikkjum. Greinilegt er að þeir sem flýja efnahagsástandið eru að stærstum hluta langskólagengið fólk. Þannig eru 88% brottfluttra Grikkja með háskólagráðu, 60% með meistara- gráðu og 11% eru með doktors- gráðu. Rannsókn European University Institute, EUI, segir enn fremur að 79% þeirra sem fluttu á brott fóru þrátt fyrir að vera með atvinnu. Sögðust 50% brott fluttra að þeim þættu litlir framtíðarmöguleikar í heimalandinu og 25% tilgreindu fáa valkosti í atvinnulífinu. Könnun Kapa Research fyrir gríska dagblaðið To Vima leiddi í ljós að 70% af nýútskrifuðum grísk- um háskólanemendum vildu starfa erlendis og 10% þeirra væru með virkum hætti að leita sér að atvinnu utan Grikklands. ai@mbl.is Grikkland glímir við mikinn vitsmunaflótta AFP Erfiðleikar Mótmælandi tínir upp ESB-fána á götu í Aþenu. Athygli vekur að 79% brottfluttra Grikkja voru með atvinnu þegar þeir ákváðu að fara.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.