Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Side 2
Hvert er aðalhneykslið í ár?
Mesta hneykslið hingað til er stigagjöfin. Þegar talið var upp
hvaða lönd færu áfram í fyrri undanúrslitariðlinum voru aust-
urrísku sjónvarpsmennirnir dálítið fallnir á tíma þannig að það var
ekki dvalið við eitt einasta land og við kynnarnir gátum varla þýtt
það sem var að koma upp úr kassanum, öll spenna fór úr þessu
stærsta augnabliki kvöldsins. Það varð allt vitlaust á kynnafund-
inum daginn eftir, menn voru svo reiðir. Það var mesta hneykslið, að
eyðileggja stærsta augnablikið í þættinum sem er þegar tilkynnt er
hvaða tíu lönd voru kosin áfram.
Hvaða keppendur eru skemmtilegastir?
Þeir eru margir kallaðir en fáir útvaldir. Litháíska parið og norska par-
ið, þau eru alveg frábær bæði tvö, Kjetil Mørland og Debrah Scarlett,
mér líkar mjög vel við þau. Og svo auðvitað María Ólafs.
En dramatískastir?
Það er georgíski keppandinn Nina Sublatti. Það er grátur og gnístran
tanna. Hún til dæmis átti að syngja í Vínaróperunni ásamt nokkrum lista-
mönnum á sunnudaginn en auðvitað missti hún röddina, það var ekki við
öðru að búast. Ég hefði ekki verið til í að vera í sama herbergi og hún þeg-
ar ákvörðunin um að hún fengi ekki að syngja var tekin.
Er eitthvert atriði í sérstöku uppáhaldi hjá þér?
Norska atriðið. Svo er ég orðinn mjög hrifinn af atriði sem ég er ekkert
viss um að fari í gegn en það er lettneska atriðið.
Hvaða atriði heldur þú að sé sigurstranglegast?
Ég held að veðbankarnir hafi alveg hárrétt fyrir sér. Þetta verður á milli
Svíþjóðar, Rússlands, Ástralíu og Ítalíu. Ég veðja ennþá á Ítalíu.
Hvað er það eftirminnilegasta sem hefur komið upp á
í ferðinni enn sem komið er?
Það var að koma niður í morgunmat, fyrsta morguninn, og hann Tony
Välitalo, trommarinn í finnska atriðinu, heilsaði mér með virktum og
með þvílíku sólskinsbrosi að ég gleymi því aldrei. Það var eft-
irminnilegast.
FELIX BERGSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Morgunblaðið/Gunnar Dofri
Margir
kallaðir en
fáir útvaldir
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2015
1. Ítalía
2. Svíþjóð
3. Ástralía
Edda Ottósdóttir
1. Rússland
2. Noregur
3. Svíþjóð
Aðalsteinn Jón Bergdal
1. Rússland
2. Svíþjóð
3. Kýpur
Danfríður Árnadóttir
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
SPURNING VIKUNNAR: HVAÐA LÖND VERÐA Í EFSTU ÞREMUR SÆTUNUM Í EUROVISION?
1. Svíþjóð
2. Ástralía
3. Ísrael
Viktoría Hinriksdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Iðkendur í Spörtu heilsu-
rækt og Training for
Warriors Reykjavík (TFW)
munu hlaupa úr Kópavogi
og á Blönduós, alls 244
kílómetra leið, en lagt
verður af stað föstudaginn
29. maí. Þeir safna áheitum
sem renna til Umhyggju,
styrktarfélags langveikra
barna. Heilsa 24
Í BLAÐINU
Forsíðumyndina tók
Halldór Kolbeins í
Cannes
Halldóra Sif
Guðlaugsdóttir
fatahönnuður er með
flottan stíl. Halldóra velur
sér vandaðan fatnað og
finnst mikilvægt að vita
hvaðan varan kemur og
hvaða efni er í henni.
Tíska 40
Brynja Þóra Guðnadóttir segir garðyrkju vera
góða fyrir fjölskylduna til að stunda saman. Hún er
umsjónarmaður samfélagsrekna matjurtagarðsins
Laugargarðs í Laugardalnum. Fjölskyldan 16
Rétturinn til letinnar
eftir Paul Lafargue var
lengi eitt helsta áróð-
ursrit kommúnista en er
lítt þekkt nú á tímum. Þó
að verstu tímabil iðnbylt-
ingarinnar séu að baki á
boðskapurinn enn erindi
við launamenn. Íslensk
þýðing var að koma út.
Bækur 58
Útvarpsmaðurinn Felix Bergsson er nú staddur í Vínarborg þar sem
Eurovision-söngvakeppnin er haldin í ár. Þaðan kynnir hann fyrir
okkur Íslendingum Eurovision-keppnina í beinni útsendingu á RÚV.