Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Blaðsíða 39
Lily kallast þetta glaðlega
litla myndavélardrón.
„Myndavélin fundin upp öðru sinni,“
segir á vefsíðu Lily, nýjasta neyt-
endadrónsins sem nú hefur verið
sett á almennan markað. Fjölmiðlar
um víða veröld hafa sammælst um
að kalla tækið „selfie-drón“ í ljósi
þess að virkni þess felst í því að taka
myndir fyrir notandann. Því má segja
að sú stund sé runnin upp að fljúg-
andi vélmenni fari nú að taka sjálfs-
myndir fyrir okkur. Flestir ættu að
þekkja að sjá sjálfsmyndir af fólki á
samfélagsmiðlum þar sem það
stendur með síma í útréttri hendi
og stút á vör. Hins vegar býður Lily
upp á ýmsa möguleika sem ekki ætti
að afskrifa strax sem aðeins enn eitt
verkfærið til þess að kynda undir
mannlegum hégóma. Notandinn
getur til að mynda tekið Lily upp,
kastað henni upp í loftið og þá mun
drónið elta viðkomandi á flugi og
taka upp hágæða myndband af at-
hæfi viðkomandi.
Lily er ekki síst ætluð skíða- og
snjóbrettafólki, íþróttamönnum og
öðrum sem stunda hreyfingu af
kappi. Í stað þess að hengja mynda-
vél á hjálminn er hugsunin sú að Lily
muni sveima í kringum viðkomandi
íþróttamann og festa dýrð hans á
filmu. Það tekur um tvo klukkutíma
að hlaða Lily að fullu og hún getur
verið í loftinu í um 20 mínútur áður
en stinga þarf henni í samband að
nýju. Hún mun fljúga á bilinu 1,75 til
15 metrum fyrir ofan höfuð notand-
ans til þess að forðast slys og getur
náð um 25 kílómetra hraða. Not-
andinn mun jafnframt vera með lít-
inn sendi á sér svo Lily eigi ekki í erf-
iðleikum með að finna hann.
NÝJASTA NÝTT
Selfie-drón komið á markað
24.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
* Tvö fyrirbrigði í heiminum eru óendanleg: Alheimurinn og mannleg heimska … og ég erreyndar ekki alveg viss um alheiminn.
Einstein
Víða um heim hafa einstök lönd komið sér upp varn-
arkerfum á borð við Iron Dome-eldflaugavarnakerfi
Ísraela, en nú hafa hinir friðelskandi Svíar sett á
laggir sitt eigið varnarkerfi sem verður að teljast af-
skaplega frumlegt og sérstakt. Friðarsamtökin SPAS
þar í landi hönnuðu sérstakt tæki í því skyni að
bregðast við leynilegum ferðum rússneskra kafbáta í
landhelgi Svia. Tækið sendir út morskóða með skila-
boðum um að samkynhneigðir séu í grenndinni og er
ætlunin því að herja á ótta Rússa við samkynhneigð
og fæla þá þannig frá. Opinbert heiti tækisins er
Neðansjávarvarnarkerfi hins sönglandi sæfara en
gengur einnig undir heitinu „Sæfarinn samkyn-
hneigði“. Það sendir frá sér skilaborðin „Þessa leið,
sértu samkynhneigður“ í því skyni að fá rússneska
kafbáta til þess að snúa umsvifalaust við.
Rússar hafa sætt mikilli gagnrýni eftir að rík-
isstjórn Pútíns leiddi í lög bann við því að dreifa
upplýsingum um samkynhneigð árið 2013. Tækið er
jafnframt hannað þannig að á yfirborði þess er
mynd af neonlituðum útlínum dansandi sæfara, sem
er nakinn fyrir utan derhúfu og litlar stuttbuxur.
Hann er jafnframt umkringdur blikkandi hjörtum.
Á því stendur jafnframt „Velkomin til Svíþjóðar:
Samkynhneigð síðan 1944“ og eru þau skilaboð
vísun til þess þegar Svíar leiddu í lög bann við
hvers kyns mismunun á grundvelli samkynhneigðar
árið 1944.
FRUMLEGT VARNARKERFI
Sænskir friðarsinnar treysta nú á þessa nýstárlegu leið til
að flæma burt rússneska kafbáta úr lögsögunni.
Sæfarinn
samkynhneigði
fæli frá Rússa
Örbylgjuofnar eru til á mörgum heimilum í
dag, en þó er óneitanlega minna um notkun
þeirra en áður enda óttast margir að slík hit-
unartækni fari ekki vel með þau næringarefni
sem þeir þurfa að fá úr mat.
Örbylgjuofninn hóf innreið sína hingað til
lands almennilega á níunda áratug síðustu ald-
ar en þó hafði verið eitthvað um slík tæki hér
á landi fyrir það. Fyrstu auglýsingarnar gerðu
út á tímasparnað, eðlilega, enda gera ofnarnir
kleift að hita mat á miklum hraða. Þá er jafn-
framt minna um það í dag en áður að fólk fái
sér örbylgjupopp sem snakk enda fengu slík
matvæli harða útreið í fjölmiðlum fyrir nokkr-
um árum í ljósi þess að oft væri að finna
erfðabreytt efni og mikið magn transfitu í
þeim.
GAMLA GRÆJAN
Örbylgjuofninn
Komin í verslanir Epli.
MacBook Air 11”
Verð frá: 189.990.-
MacBook Air 13”
Verð frá: 199.990.-