Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2015
Græjur og tækni
Fjórir af þeim 48 sjálfvirku bílum sem aka bíl-
stjóralausir um vegi Kaliforníu hafa lent í
óhöppum á undanförnum átta mánuðum.
Þetta kemur fram í upplýsingum frá yfirvöldum
í Kaliforníu. Þrír bílanna voru í eigu Google en
fyrirtækið hefur hafnað þessum fregnum.
Ósammála um óhöpp
F
leiri og fleiri þættir mann-
legrar tilveru eru nú háðir
drottnunarvaldi reikniforrita.
Hlutabréfaviðskipti fara í
auknum mæli fram sjálfvirkt fyrir
atbeina slíkra forrita, tekin er af-
staða til þess hvort framleiða eigi
kvikmyndahandrit á grundvelli þess
hvað algóritmar segja um markaðs-
möguleika þeirra og svona mætti
lengi áfram telja. Vefsíður eru að
sjálfsögðu ekki undanskildar þessari
þróun og að undanförnu hafa komið
upp nokkur tilfelli þar sem algórit-
mar sem stjórna risastórum vefsíð-
um bregðast hlutverki sínu illilega.
Google þurfti til að mynda að biðja
Hvíta húsið í Washington afsökunar
í vikunni í ljósi þess að leitir að lyk-
ilorðum í Google Maps sem fólu í
sér kynþáttaníð leiddu til þess að
kortið þysjaði inn að aðsetri Banda-
ríkjaforseta.
Það var dagblaðið Washington
Post sem greindi frá því að væri
leitað að kynþáttahatri á borð við
enska orðið „nigger“ á kortasíðu
Google fengjust niðurstöður sem
tengdust Hvíta húsinu. Væri leitað
að lykilorðum á borð við „nigger
house“ eða „nigger king“ var nið-
urstaða Google Maps iðulega að
notandinn ætti við Hvíta húsið í
Washington. Ekki hefur fengist
staðfest hvort um galla í vefsíðunni
hafi verið að ræða eða hvort nið-
urstöðurnar væru afleiðingar árásar
af einhverjum toga á síðuna.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
leitarvélar Google skila niðurstöðum
sem bera keim kynþáttahaturs.
Fyrirtækið sætti umtalsverðri gagn-
rýni árið 2010 þegar í ljós kom að
sjálfvirkar leitarniðurstöður þess
stungu upp á rasísku framhaldi
setninga þegar aðeins voru skrifuð
inn stikkorð á borð við „hvers
vegna“ í leitargluggann. Þá vakti
ekki síður athygli og reiði að leit-
arvélin var 25% líklegri til þess að
skila auglýsingum sem tengdust
sakaskrám fólks þegar leitað var að
nöfnum sem svart fólk ber iðulega.
Bæði þessi kerfi, leitarvélin og kor-
tasíðan, eru sjálfvirk og taka mið af
milljörðum leita sem framkvæmdar
eru í Google til þess að spá fyrir um
líklegar fyrirspurnir og niðurstöður.
Google neyddist jafnframt nýlega til
þess að loka fyrir þann mögulega í
Google Maps að notendur gætu lag-
fært og bætt kortið, eftir að
hrekkjalómar bættu inn stórri mynd
af Android-vélmenni að hafa þvaglát
yfir vörumerki Apple á kortið. Tals-
menn Google hafa viðurkennt að
síður fyrirtækisins hafi í auknum
mæli sætt árásum að undanförnu.
Auschwitz merkt
sem íþróttasvæði
Þá lenti myndasíðan Flickr, sem er
í eigu Google, jafnframt í vandræð-
um af svipuðum toga og Google í
vikunni, þegar í ljós kom að sjálf-
virkar merkingar síðunnar áttu það
til að skila verulega óheppilegum
niðurstöðum. Væru settar inn
myndir af blökkumönnum á síðuna
átti síðan það til að stinga upp á því
að viðfangsefni myndarinnar yrði
merkt sem „api“ eða jafnvel „dýr“.
Hið sama var uppi á teningnum
þegar notendur settu inn myndir
frá útrýmingarbúðum nasista, en í
þeim tilvikum stakk síðan upp á því
að heppilegt væri að merkja mynd-
irnar undir „íþróttir“ eða jafnvel
„líkamsræktarstöð í frumskógi“. Á
vef The Guardian er sagt frá því
hvernig mynd sem bersýnilega var
af hinum þekkta inngangi í Ausch-
witz-útrýmingarbúðirnar kallaði um-
svifalaust fram merkimiðann
„íþróttir“ frá Flickr.
Flickr kynnti þessa virkni til sög-
unnar í maí og var þá sagt að um
háþróaða myndgreiningartækni
væri um að ræða, en ljóst er þó að
tæknin á eitthvað í land. Setji not-
andi inn mynd af teiknimyndasögu í
blaði fær hann sjálfvirkt upp til-
lögur um merkingar á borð við
„teikning“, „skopmynd“, „texti“ og
svo framvegis. Hér er um áhrifa-
mikinn möguleika að ræða en for-
ritið honum að baki hefur þó ítrekð
átt það til að skjóta alvarlega
framhjá líkt og fram kemur hér að
ofan. Forritið sjálft virðist þó ekki
gera sérstaklega upp á milli fólks
hvað kynþátt þess varðar í ljósi
þess að myndir af hvítum konum
kölluðu einnig fram tillögur á borð
við „api“ og „dýr“.
Talsmenn Flickr segja að unnið
sé að því að bæta úr þessum
óheppilega galla. „Við gerum okkur
grein fyrir þeim villum sem koma
upp við myndgreiningar á Flickr.
Þrátt fyrir að við séum afar stolt af
þessari nýju tækni erum við jafn-
framt fyrst til þess að viðurkenna
að mistök hafa verið og verða gerð
og við vinnum jafnframt statt og
stöðugt að því að gera þjónustuna
betri.“
Sjálfvirkt
kynþáttahatur
á stórum
vefsíðum
LEITARVÉLAR OG ÝMISKONAR ÞJÓNUSTA Á VEFSÍÐUM
LÚTA STJÓRN SJÁLFVIRKRA ALGÓRITMA ÞAR SEM MENN
KOMA HVERGI NÆRRI. Í VIKUNNI GERÐIST ÞAÐ Í TVÍGANG
AÐ NOTENDUR URÐU VARIR VIÐ VÍSI AÐ KYNÞÁTTAHATRI
Í NIÐURSTÖÐUM SLÍKRA VEFSÍÐNA.
Halldór A. Ásgeirsson haa@mbl.is
Hvíta húsið kom upp sem niðurstaða í Google Maps þegar leitað var að
kynþáttaníði um blökkumenn.
AFP
Obama forseti hefur
mátt sætta sig við ýmis
konar svívirðingar í ár-
anna rás, en bjóst lík-
lega ekki við hrakyrðum
frá kortavef Google.
Vísindamenn þar í landi hafa að
undanförnu framkvæmt rannsóknir
á því hvernig hávaði frá vindmyll-
unum hefur áhrif á dýrin og jafn-
framt hvernig draga megi úr hon-
um. Hópur vistfræðinga frá St.
Andrews-háskóla festi GPS-tæki
við 24 seli sem halda til við suð-
austurströnd Englands á sama
tíma og verið var að koma þar fyr-
ir vindmyllum árið 2012. Tækin
söfnuðu upplýsingum um hreyf-
ingar og hegðun dýranna og sendu
þær til lands í gegnum gervihnött.
Þessar upplýsingar voru síðan
bornar saman við annars konar
gögn frá þeim sem unnu að því að
setja upp vindmyllurnar og að lok-
um voru búin til líkön til þess að
spá fyrir um styrk þess hávaða
sem hver og einn selur upplifði.
Hávaðinn var loks borinn saman
við annars konar rannsóknir á há-
vaða og heyrnarskerðingu og nið-
urstöðurnar, sem kynntar voru í
vikunni, voru þær að sá hávaði
sem skellur á selunum væri yfir
þeim mörkum sem valdið getur
heyrnarskerðingu. Við strendur
Bretlandseyja standa 1.184 vind-
myllur og framleiða þær um 4GW
af orku.
Ætlunin er jafnframt að byggja
hundruð vindmyllna á næstunni.
Vísindamennirnir segja þó að
nauðsynlegt sé að rannsaka betur
áhrif þessa hávaða á heyrn þeirra
dýra sem halda til við strandlengj-
una. Dr. Gordon Hastie, sem fór
fyrir rannsókninni, sagði að hávaði
frá vindmyllum væri meðal hæstu
hljóða sem menn framkalla undir
yfirborði sjávar og að niðurinn frá
þeim gæti borist langar vegalengd-
ir. „Eins og flest öll önnur sjáv-
arspendýr hafa selir mjög ná-
kvæma heyrn sem nær yfir mun
breiðara tíðnisvið en heyrn
manna.“
Vindmyllur
skerða heyrn sela
HÁVAÐI FRÁ AFLANDSVINDMYLLUM Á BRETLANDS-
EYJUM GÆTI MÖGULEGA LEITT TIL HEYRNARSKERÐ-
INGAR HJÁ SELUM Í NÁGRENNINU.
Hávaði frá aflandsvindmyllum á Bretlandseyjum gæti mögulega leitt til heyrnarskerðingar hjá selum í nágrenninu.