Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Blaðsíða 29
Á heimilinu er nostrað
við hvern krók og kima og
er því stigagangurinn auð-
vitað sérlega smart.
S
tíllinn er rómantískur og eins og mér líður vel
með. Smá grófur. Hef gaman af að blanda
saman t.d. kristal, tré, gleri og steypu. Mér
finnst líka gott að hafa í kringum mig gamla
hluti með sögu og sál. Að eiga steypupoka á eldhús-
gólfin er bara staðalbúnaður,“ segir Ágústa Hera,
þjónustustjóri í Þjónustuveri/Úthringiveri á Ein-
staklingssviði í Landsbankanum sem útskrifaðist ný-
lega sem innanhússtílisti úr Tækniskólanum. Ágústa
aflar innblásturs víða og nefnir meðal annas Pinterest
og náttúruna. „Ég sé kannski flott tré eða fjall eða
fjöru og langar að koma þessu einhvernveginn inn í
það sem ég er að gera. Ég er með gólfin flotuð og það
minnir mig á uppáhaldsfjöruna mína vestur í Tálkna-
firði sem er með gullnum sandi.“
Ágústa segir mikilvægt að gera hugmyndir að sínum
og vera trú eigin stíl þegar kemur innréttingu heim-
ilisins. „Ég gef þessu tíma og leyfi hverju rými að tala
til mín áður en ég fer í að framkvæma. Líka hvað
klæðir umhverfið. Það á ekki allt við hvaða íbúð eða
rými sem er,“ segir hún og bætir við að hún fái yf-
irleitt rosalega mikið af hugmyndum og eigi oft erfitt
með að slökkva á huganum.
Ágústa er afskaplega lunkin þegar kemur að því að
innrétta og breyta jafnvel heilu húsgögnunum. Að
sama skapi er hún dugleg að nýta sér óhefðbundinn
efnivið inn á heimilið s.s. að búa til kertastjaka úr
steypu eða hengi úr rekaviði.
„Heimilið mitt er mikið endurunnið. Góði hirðirinn
hefur verið mikið heimsóttur, einnig geymslur hjá
fólki. Ég bý sjálf til hluti og mér finnst líka rosalega
gaman að fara í byggingavöruverslanir.“
Elhúsinu var breytt og
efri skápunum skipt út
fyrir hillur sem gefur eld-
húsinu léttara yfirbragð.
Leyfir rýminu að tala til sín
ÁGÚSTA HERA BIRGISDÓTTIR BÝR Í SJARMERANDI HÆÐ Í HAFNARFIRÐI SEM HÚN TÓK Í GEGN
OG ENDURHANNAÐI EFTIR EIGIN HÖFÐI. ÁGÚSTA ER LUNKIN VIÐ AÐ BREYTA GÖMLUM
HLUTUM OG BÚA TIL NÝJA OG SEGIR STEYPUPOKANN Á ELDHÚSGÓLFIN STAÐALBÚNAÐ.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
RÓMANTÍSKUR STÍLL Í HAFNARFIRÐI
Skemmti-
legt fata-
hengi sem
Ágústa
gerði sjálf
úr trjám úr
garðinum.
Ágústa Hera
Birgisdóttir
Ágústa
útbjó þetta
skemmtilega
stykki sjálf
úr rekavið
sem hún
fann í fjöru.
Klukkan er úr fjölskyldu Ágústu en blóma-
vasann fékk hún í Góða hirðinum og úð-
aði í sama lit og er á veggnum í stofunni.
Bjart og vel
innréttað
baðherbergi.
* Heimilið mitter mikið endur-unnið. Ég bý sjálf til
hluti og mér finnst
líka rosalega gaman
að fara í bygginga-
vöruverslanir
24.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
OG Dalsbraut 1 • Akureyr i OPIÐ Virka daga kl 10–18 og laugardaga 11-16 EITT SÍMANÚMER 558 1100
– enn betra verð!
VESTA TUNGUSÓFI ECKMAN HORNSÓFI 2H2
VESTA
25%
AFSLÁTTUR
ECKMAN
25%
AFSLÁTTUR
Stærð: 295 x160 H: 75 cm
Ljós- og dökkgrárr slitsterkt áklæði.
Fullt verð krónur 299.990
TILBOÐSVERÐ: 224.990 kr.
Stærð: 233 x 233 H:90
Svart bondedleður.
Fullt verð krónur 269.990
TILBOÐSVERÐ: 199.990 kr.