Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Blaðsíða 43
É
g byrjaði að hugsa þetta
meira sem forrit til þess
að auglýsa sjálfa mig. Ég
fór þá mun reglulegar að
setja inn myndir. Ég fór að finna
fólk sem að ég fílaði og fylgdi því
til þess að sækja innblástur,“ segir
Hildur Erla, spurð um gríðarlegan
fjölda Instagram-fylgenda.
Um 11.300 einstaklingjar fylgj-
ast með ljósmyndum sem hún deil-
ir á smáforritinu. Hildur, sem er á
fysta ári í Ljósmyndaskólanum,
segir smáforritið ákveðinn heim en
þar hefur hún byggt upp stórt
tenglsanet meðal einstaklinga í
svipuðum geira og hún sjálf.
„Þetta er svo mikill heimur
þarna inni á Instagram og svo
stækkaði það og nú er ég búin að
byggja upp gott tengslanet við stíl-
ista, förðunarmeistara og hef fund-
ið allar fyrirsæturnar í verkefni
mín á Instagram. Mér finnst þetta
rosalega gaman. Ég sé allt fyrir
mér í römmum og það er ótrúlega
gaman að vera á veitingastað til
dæmis, sjá eitthvað fallegt, geta
tekið mynd af því og deilt því.“
Hildur vinnur þannig að hún
tekur ljósmyndir á myndavél, sem
hún færir síðan inn á símann og
leyfir þannig fólki að fylgjast með
verkefnum sínum. Aðspurð hvaðan
hún sæki innblástur í verk sín seg-
ir hún hann koma víða að.
„Ég sæki innblástur í Instagram
og tímarit, fólk í kringum mig og
kvikmyndir. Svo eru tvö nöfn sem
ég held mikið upp á. Það eru
Edda Gunnlaugsdóttir bloggari,
sem er mikil tískufyrirmynd,
ásamt leikkonunni Clemence
Poesy.“
Hildur les aðallega tímarit á
borð við Vogue, Porter og
Glamour og segist jafnframt
heillast mun frekar af ljósmyndum
tímarita en greinaskrifunum.
Aðspurð hvaða ljósmyndara hún
líti upp til nefnir hún íslenska ljós-
myndarann Silju Magg. Hún segist
hafa mestan áhuga á því að mynda
fólk en dreymir um að mynda
dýralíf í Afríku og ætlar sér að
verða ljósmyndari í framtíðinni.
Falleg ljósmynd sem
Hildur tók baksviðs á
sýningu Eyland í mars.
LJÓSMYNDANEMI MEÐ STÓRAN AÐDÁENDAHÓP
Sér allt fyrir
sér í römmum Hildur ErlaGísladóttir
Hildur Erla er vinsæl á Instagram og deilir með fylgjendum sínum áhugaverðum myndum. Instagram.com/hildur.erla
HILDUR ERLA GÍSLADÓTTIR, NEMI Á FYRSTA ÁRI Í
LJÓSMYNDASKÓLANUM, HEFUR HELDUR BETUR
VAXIÐ AÐ VINSÆLDUM Á SMÁFORRITINU INSTAGRAM
EN ÞAR ERU UM 11.300 EINSTAKLINGAR SEM FYLGJAST
MEÐ LJÓSMYNDUM HENNAR.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Hildur myndaði fyrir
tískuhátíðina Reykjavík
Fashion festival en hún
hefur gríðarlegan áhuga
á tískuljósmyndun.
24.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
Settu saman þinn eigin skartgrip
OO
www.lockitsjewelry.com