Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Blaðsíða 25
24.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 S igurður Hafsteinn Jónsson er í óðaönn að undirbúa sig fyrir Evrópuleikana í CrossFit sem eiga sér stað í Kaupmannahöfn dagana 29.-31. maí næst- komandi. Sigurður tryggði sér keppnisrétt á leik- ana með því að lenda í 5. sæti í álfunni í forkeppninni CrossFit Open í mars síðastliðnum. Hann er jafnframt eini Íslendingurinn í einstaklingskeppninni á leikunum sem hefur ekki keppt þar áður. Hann æfir og þjálfar í CrossFit XY í Garðabæ. Hversu oft æfir þú í viku? „Eins og er er ég að undirbúa mig fyrir Evrópuleikana og því er æfingaálagið mjög mik- ið. Ég tek yfirleitt 2-3 æfingar á dag sem eru flestar 1,5-2 tímar. Ég passa þó alltaf að hvíla alveg á sunnudögum en aðra daga líður mér best ef ég æfi vel.“ Hentar crossfit öllum? „CrossFit eins og það er kennt í öllum helstu CrossFit-stöðvum landsins hentar klárlega öllum. Helsti kosturinn við CrossFit er að það er hægt að- laga æfingar að hverjum og einum og því er ekki óalgengt að sjá fólk á öllum getustigum saman á æfingum. Það gera allir sömu æfingarnar en geta t.d. minnkað þyngdir, stytt vegalengdir og notað tæki og tól til að aðstoða sig. Svo keppnisíþróttin CrossFit sem ég stunda er nokkuð frá- brugðin. Þar eru þyngdirnar meiri og æfingarnar frekar krefjandi. Ég tel þó að allir geti keppt í crossfit ef þeir hafa áhuga á því en það hentar e.t.v. ekki öllum. Það geta allir fundið eitthvað fyrir sig í CrossFit.“ Hvað er best við crossfit? „Það er án vafa fjölbreyti- leikinn. Engin æfing er eins og það er ástæðan fyrir því að ég, og flestir sem æfa íþróttina, dragast á æf- ingu aftur og aftur. Einn daginn er maður að lyfta þungt og annan daginn að gera fimleikaæfingar og hlaup. Enginn dagur er eins.“ Hver er lykillinn að góðum árangri? „Það sem skiptir öllu máli í CrossFiter að mæta! Fyrir byrjendur er gott að setja sér markmið og mæta t.d. 2-3 sinn- um í viku. Þegar maður nær tökum á því er hægt að fjölga æfingum upp í t.d. 3-4 sinnum en að- alatriðið er að mæta því þá nærðu árangri. Ég tel afar mikilvægt að byrja hægt og gefa sér tíma. Ef fólk ætlar sér um of getur það átt von á álagsmeiðslum sem eru alltaf leiðinleg. „Slow and steady wins the race“ segi ég alltaf.“ Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð í frí? „Ég fer ekki oft í frí frá Cross- FitÍþróttin er orðin svo vinsæl að maður getur fundið CrossFit-stöð nánast hvert sem maður fer, þannig að ef ég fer til útlanda reyni ég alltaf að komast á æfingu. Ef ég kemst ekki í CrossFit-stöð, er alltaf hægt að fara út að hlaupa, taka æfingar með eigin líkamsþyngd og svo fram- vegis.“ Ertu almennt meðvitaður um mataræðið? „Já, ég tel mig vera nokkuð meðvitaðan um mataræðið. Ég passa mig alltaf á að borða tvær stórar máltíðir á dag. Ég reyni að borða hreina fæðu eins og kjöt, egg, skyr, hafragraut o.þ.h. Þegar ég æfi þrisvar á dag reyni ég að fá mér prót- índrykk á milli æfinga.“ Hvaða óhollusta freistar þín? „Ég get ekki neitað því að pítsa og súkkulaði freistar alveg hrikalega. Ég leyfi mér alltaf smá um helgar en annars passa ég mig að borða 100% þar fyrir utan.“ Hvaða gildi hefur hreyfing fyrir þig? „Hreyfing og heilsa almennt hefur mjög mikið gildi fyrir mig. Ég hef alltaf verið duglegur að hreyfa mig, var í karate þegar ég var yngri og kynntist síðan CrossFit. Á meðan ég get mun ég ávallt reyna að stunda einhvers konar hreyfingu og ef allt gengur upp, verð ég ennþá að stunda CrossFit þegar ég verð sjötugur. Það er keppt í 60+ flokki á Heimsleikunum í CrossFit og ég er strax byrjaður að æfa mig.“ Hver eru algeng mistök hjá fólki við æfing- ar? „Oft ætlar fólk sér að byrja of hratt. Maður verður að byrja rólega og leyfa lík- amanum að venjast álaginu í CrossFit. Ekki bara hugsa um daginn í dag heldur líka morgundaginn, svo þú getir haldið áfram að mæta og séð árangur.“ Hver er fyrirmynd þín? „Rich Froning, fjórfaldur heimsmeistari í íþróttinni.“ Hver eru helstu íþróttaafrek þín? „Ég er rosalega stoltur af því að hafa tryggt mér þátttökurétt á Evrópuleikunum í CrossFit í ár. Aðeins 30 bestu cross- fitt-arar í Evrópu fá þátt- tökurétt og ég kem inn í mótið sem 5. stigahæsti einstaklingurinn og er rosalega spennt- ur að fá loksins að keppa á móti þeim bestu í Evr- ópu. Fimm efstu sætin á leikunum komast áfram á Heimsleikana í CrossFit sem eru haldnir árlega í Kali- forníu, Bandaríkjunum. Það er draumur minn að komast þangað einn daginn.“ KEMPA VIKUNNAR SIGURÐUR HAFSTEINN JÓNSSON Ætlar að æfa til áttræðs Morgunblaðið/Eggert Heimasíðan The Box Life Magazine er ein virkasta fréttasíða fyrir Crossfit í heiminum, en Crossfit æfingastöðvar eru jafnan kallaðar „box.“ Þeir sem vilja fylgjast með fréttum af íþróttinni hér á landi, geta lesið RX fréttir, sem eru virkar á fésbókinni og á rxfrettir.is Fylgstu með Crossfit-heiminum *Með því að kjósa að vera heilbrigð ístað þess að vera horuð, kýst þú ást ásjálfri þér í stað þess að dæma sjálfa þig. Steve Maraboli, rithöfundur Allar íþróttir fela í sér hættu á meiðslum, sérstaklega ef farið er of geyst á æfingu. Í Box Life Magazine má finna lista yfir ráð til að minnka líkurnar á slíku: 1. Hitaðu almennilega upp Upphitun með léttum teygjum á hreyfingu virkjar vöðvana, eykur blóðflæði og hækkar líkamshita. Súrefnisupptaka vöðva eykst, þeir dragast saman og slaka á hraðar. 2. Liðka sig og nærast Ekki hætta skyndilega eftir erfiða æfingu. Liðkaðu þig og teygðu til að koma í veg fyrir uppsöfnun mjólk- ursýra. Eins er mikilvægt að drekka vel og nærast strax. 3. Nota rétta tækni og þyngd Ekki keppast við að nota þyngdir sem þú ræður ekki við þannig að tæknin líði fyrir. 4. Hlusta á líkamann Þú þarft ekki að æfa daglega til að ná árangri. Stundum þarf líkaminn hvíld eða virka endurheimt á borð við göngur eða sund til að jafna sig. 5. Lítil meiðsli skipta máli Rifur, sprungur og tognanir geta leitt til alvarlegri meiðsla. Breyttu æfingunni ef þú þarft þess. Forðist meiðsli á æfingu Strangar æfingar geta verið mikið álag á líkamann. Ljósmyndir/Operation XZ Ný skammstöfun er að ryðja sér til rúms á netinu, MAMIL, sem stendur fyrir „Middle Aged Man in Lycra“, eða miðaldra maður íklæddur lycra. Lycra er andandi teygjuefni, ekki ósvipað spandex og má oft finna í klæðnaði hjólreiðamanna. MAMIL-ar eru því karlmenn sem eyða drjúgum tíma á dýru hjóli utan- dyra, oft íklæddir svipuðum fötum og afreksíþróttamenn. Stundum eiga þeir nokkur reiðhjól, hvert öðru dýrara. Þá er orðið „hjólaekkja“ notað um eiginkonur þessara manna en þeir eiga það til að hverfa heilu og hálfu dagana, hjólandi um nálægar sveitir. Sagt er að kaup á dýru hjóli og hjólaklæðnaði séu heilbrigðari leið til að eiga við gráa fiðringinn en kaup á dýrum sportbíl. Tony Abbott, forsætisráðherra Ástralíu, er lýst sem MAMIL, en hann sést reglulega íklæddur þröng- um hjólreiðaklæðnaði. Nokkrir eldhressir hjólagarpar eftir að hafa tekið þátt í Wow-Cyclothon, hjólreiðakeppni í kringum landið, í fyrra. Morgunblaðið/Eggert Er þinn maður MAMIL? Nánari upplýsingar á www.heilsa.is Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum Oft er talað umMagnesíum sem„anti –stress“ steinefni því það róar taugarnar og hjálpar okkur að slaka á. Magnesíum stjórnar og virkir um 300 ensím sem gegna mikilvægum hlutverkum í eðlilegri virkni líkamans. Það er nauðsynlegt fyrir frumumyndun, efnaskipti og til að koma á jafnvægi á kalkmyndun líkamans og fyrir heilbrigða hjartastarfsemi. Magnesíum er líka afar hjálplegt við fótaóeirð út af vöðvaslakandi eiginleikum þess. Mjög gott er að taka magnesíum í vökvaformi fyrir svefn til að ná góðri slökun og vakna úthvíldur. Magnesium vökvi • Til að auka gæði svefns • Til slökunar og afstressunar • Hröð upptaka í líkamanum • Gott til að halda vöðvunummjúkum Virkar strax
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.