Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2015
Vinsælt að gifta sig á Íslandi
Ég set mér þá vinnureglu aðhafa ekki fleiri en eitt brúð-kaup á dag, svo að stemn-
ingin verði ekki eins og í Las Ve-
gas. Ef ekki er haldið í hátíðleikann
í kringum athöfnina er hætta á því
að þetta verði eins konar færiband,“
segir séra Páll Ágúst Ólafsson,
sóknarprestur í Staðastað-
arprestakalli, sem Búðakirkja til-
heyrir. Hægt sé að halda þrjú til
fjögur brúðkaup á dag en þannig
vilji hann ekki vinna, og þurfi hann
því vikulega að hliðra til brúð-
kaupum. Hann segist finna fyrir
gríðarlegri fjölgun erlendra ferða-
manna sem koma til Íslands til að
ganga í hjónaband, og annasömustu
mánuðina, sem ná frá júlí til og með
október, komi hann til með að gifta
á nánast hverjum degi. Bókanir
hafa þegar borist til ársins 2017.
Kristján Valur Ingólfsson, vígslu-
biskup Skálholtsumdæmis, tekur í
sama streng og segir mikla ásókn í
að ganga í hjónaband hér á landi,
víðar en á Snæfellsnesi. „Það er al-
veg ljóst að þeim fjölgar sem koma
hingað til lands að láta gifta sig,
bæði kirkjulega og borgaralega. Það
hefur fjölgað mikið síðustu tíu árin
en verulega mikið síðustu fimm ár-
in.“
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
staðfestir að mikið sé um hjóna-
vígslur ferðamanna á svæðinu. Það
sem af er ári hafi útgáfa könnunar-
vottorða vegna giftinga á Snæfells-
nesi verið mjög mikil, en embættið
gefur út slík vottorð þegar a.m.k.
annar aðilinn er ekki hérlendur rík-
isborgari. Nákvæmar tölur liggja
ekki fyrir hjá embættinu, né hjá
Hagstofu.
Upplifa sig ein í heiminum
„Á Snæfellsnesi ertu með nánast
allt það besta sem Ísland hefur upp
á að bjóða. Þú ert með jökulinn,
hraunið, hvíta og svarta strönd,
dásamlegar fjallalengjur, fossa og
fleira til,“ segir Páll. Hann segir að
síðan hann byrjaði að vinna fyrir
vestan fyrir rúmu ári hafi fjöldi
ferðamanna sem hann giftir meira
en tvöfaldast. „Fyrsta árið var ég
með fjörutíu og núna er ég með
fleiri en áttatíu brúðkaup bókuð, og
það í maí.
Það átta sig ekki allir á að lang-
fæstir ferðamenn sem koma til
landsins gera sér ferð út á Snæ-
fellsnes, þannig að þegar fólk kem-
ur hingað til að gifta sig upplifa
hjónin sig næstum því ein í heim-
inum.“
Meðal fleiri vinsælla áfangastaða
nefnir Páll Skógafoss, Seljafoss,
Þingvelli og Þórsmörk.
Margföldunaráhrif
internetsins
Á alnetinu má finna ófáa lista yfir
rómantískustu áfangastaði heims.
„Snæfellsnes var valið einn af tíu
rómantískustu stöðum til að gifta
sig á í heiminum, þetta var einhver
erlendur listi sem ég frétti af.“
Meðal erlendra fjölmiðla sem
hafa bent á Snæfellsnes sem
rómantískan áfangastað er The
Guardian, og er Búðakirkja þá sér-
staklega nefnd. „Síðan spila marg-
földunaráhrif internetsins gríðar-
legan þátt í þessu. Það þarf ekki
nema tvö eða þrjú brúðkaup á
svona framandi stað og myndir af
þeim á netið. Svo flettir ef til vill
einhver upp „spennandi brúðkaup“
eða einhverju þess háttar og fær á
skjáinn myndir af norðurljósum frá
Búðum. Þannig vindur þetta upp á
sig.“
Páll segir flesta erlenda ferða-
menn sem gifta sig í Búðakirkju
vera úr röðum Breta, Bandaríkja-
manna og Kínverja.
Hagstæðara að
gifta sig á Íslandi
Samkvæmt áðurnefndum lista The
Guardian kosta brúðkaup á Bret-
landi um 21 þúsund pund að meðal-
tali, eða rúmar 4,8 milljónir ís-
lenskra króna. „Verðlagið hérlendis
skemmir heldur ekki fyrir. Fólk
getur boðið allri fjölskyldunni sinni
til Íslands og leigt Hótel Búðir yfir
eina helgi en borgað samt töluvert
minna en í heimalandi sínu,“ segir
Páll.
„Síðan finnst fólki kannski spenn-
andi að geta gift sig í hvaða kirkju
sem er, þar sem í Bretlandi, til
dæmis, má bara gifta sig á
ákveðnum brúðkaupsstöðum.“
Náin athöfn og eigin heit
Páll segir skemmtilegt að taka eftir
ólíkum venjum Íslendinga og er-
lendra ferðamanna þegar kemur að
hjónavígslum.
„Mér finnst mjög skemmtileg sú
hefð, sem er víða erlendis, að fara
með sín eigin heit, en ekki bara
svara spurningum prestsins. Oft er
líka engin áhersla á tónlist, heldur
meiri áhersla á upplifun þeirra
tveggja, sem gerir þetta svo náið.“
Brúðkaupsþjónusta
á Íslandi getur verið
hagstæður kostur.
Ljósmyndir/Úr einkasafni
PRESTAR FINNA FYRIR GRÍÐARLEGRI AUKNINGU Á ÞVÍ HVERSU MARGIR ERLENDIR FERÐAMENN KJÓSA AÐ LÁTA GIFTA SIG Á ÍSLANDI.
BÚÐAKIRKJA Á SNÆFELLSNESI ER SÉRSTAKLEGA VINSÆLL KOSTUR, EN KIRKJUNNI HAFA ÞEGAR BORIST BÓKANIR FRAM TIL ÁRSINS 2017.
Lukkuleg. Hjónum finnst mikil upp-
lifun að gifta sig á Snæfellsnesi.
„Ég komst að því sjálf þegar ég
var að gifta mig að það er
rosalegt púsluspil að raða sam-
an öllu sem þarf til að halda
brúðkaup. Þegar mér varð
hugsað til ferðamanna sem
hingað koma hugsaði ég að
þetta hlyti að vera ennþá flókn-
ara fyrir þá,“ segir Karen Lind
Ólafsdóttir, eiginkona Páls, sem
rekur vefinn Wedding.is.
Eftir að þau hjónin fluttu
vestur á Snæfellsnes hafi Páli
borist fjölmargar fyrirspurnir
um blómsala, tónlistarmenn og
fleira. „Það er náttúruelga langt
utan míns verksviðs,“ Segir Páll.
„Síðan ég tók við vefnum um
áramótin hef ég tekið þá stefnu
að breyta síðunni í upplýs-
ingaveitu um allt mögulegt sem
viðkemur brúðkaupum á Ís-
landi,“ segir Karen, og segir
fyrirspurnum hafa fjölgað mikið
síðan þá.
„Mörg fyrirtæki hafa til dæm-
is engar upplýsingar um sína
starfsemi á ensku. Síðan vita
ekki allir um Þjóðkirkjuna,
sýslumann eða alla þá papp-
írsvinnu sem þarf að vinna í
kringum brúðkaupið. Þetta get-
ur orðið ruglingslegt.“
Vildu Búðakirkju
á Instagram
Karen segir ólíkt hvað brúð-
hjónin vilji hjálp við hverju
sinni.
„Núna er ég til dæmis að
hjálpa brúðhjónum sem vilja
halda sérstakt Instagram-
brúðkaup. Þá eru hjónin með
mjög marga áskrifendur á In-
stagram og birta ævintýramynd-
ir af sjálfum sér hér og þar í
heiminum. Þau vildu endilega
hafa myndir úr litlu svörtu
kirkjunni á Búðum á Instagram-
síðunni sinni og auðvitað reyn-
um við að hjálpa þeim með
það.“ Karen segir marga sem
leita til sín hafa frétt af Búða-
kirkju í gegnum samfélagsmiðla
á borð við Instagram.
Litla svarta kirkjan að
Búðum hefur slegið í
gegn á alnetinu.
Púsluspil að halda brúðkaup
* Búðakirkja er vinsæl hjá erlendum gestum sem vilja látagifta sig hér á landi. Þar fer fram hjónavígsla á hverjumeinasta degi vikunnar í allt sumar og fram á haust. ÞjóðmálMATTHÍAS TRYGGVI HARALDSSON
mth@mbl.is