Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Side 16
Morgunblaðið/Golli
„Við viljum að fólkið sem
mætir fái rými til að
móta þetta,“ segir Brynja
um starf Laugargarðs.
Samfélagslegi matjurtagarð-urinn Laugargarður verður íLaugardalnum annað sum-
arið í röð en hann er við hlið Fjöl-
skyldugarðsins. En hvernig tókst
til í fyrra?
„Við fengum fín viðbrögð og
meiri athygli eftir því sem leið á
sumarið. Það tók tíma að fá at-
hygli,“ segir Brynja Þóra Guðna-
dóttir, umsjónarmaður garðsins.
Hún segir að aðstandendur verk-
efnisins hafi fengið að vita um stað-
setningu garðsins í byrjun júní og
það hafi verið heldur seint.
„Ef það á að koma svona sam-
félagslegu verkefni í gang þarf að
gera það með fólkinu og við höfðum
ekki tækifæri til þess. Í fyrra gekk
þetta mikið út á rannsóknir og við-
töl, að halda viðburði og vera sýni-
leg. Sífellt fleira fólk mætti og í lok
sumars vorum við með bænda-
markað sem áreiðanlega um 300
manns mættu á.“
Hvernig sérðu sumarið fyrir þér
núna?
„Núna sé ég fyrir mér að við
náum að mynda kjarnahóp, sem er
til í að taka þetta lengra, skipu-
leggja sumarið og næstu skref,
hvernig garðurinn getur þróast
áfram.“
Stendur og fellur með fólkinu
Í fyrra var verkefnið styrkt af Ný-
sköpunarmiðstöð en svo er ekki
lengur. „Garðurinn stendur og fell-
ur með fólkinu sem tekur þátt. Við
vitum að þetta tekur tíma og við
sem stóðum að þessu í fyrra erum
með eldmóð fyrir borgarbúskap og
því að þetta takist. Svo dæmið virki
þarf að hafa einhvern sem heldur
utan um hlutina. Við fundum það í
fyrra að í byrjun var borgin skept-
ísk en í lok sumars mjög ánægð og
kannski er hún tilbúin að veita okk-
ur meiri aðstöðu núna.“
Allir mega taka þátt í starfi
garðsins. „Það verður reglulega
fólk í garðinum þannig að það er
hægt að hoppa inn til að vera með.“
Dalheimar verða með
Brynja er spennt fyrir því að frí-
stundaheimilið Dalheimar ætli að
taka þátt í starfinu í sumar. „Mér
finnst það æðislegt. Okkur langar
að fá skólana og leikskólana með
okkur og skoðuðum þetta í fyrra.
Dalheimar eru með græna stefnu
og langar að fara að rækta og nýta
svæðið þarna í kring,“ segir hún
en skólar starfa ekki á sumrin svo
frístundaheimili er góður kostur til
að ná til fjölskyldna í hverfinu.
„Þarna myndast vonandi tenging
við hverfisbúana í leiðinni,“ segir
Brynja og bætir við að þetta sé í
raun ný tegund af skólagörðum.
Stuðningurinn er samt meiri en
að vera sjálfur með einn lítinn reit.
„Hugmyndin með þessu er að þetta
sé ræktunarsamfélag þar sem við
miðlum þekkingu, um það hvernig
sé best að rækta. Ég var sjálf alltaf
í skólagörðunum, ræktaði rófur og
kartöflur og einhver blóm til að
skreyta. Núna er komin heildrænni
pæling í ræktun. Það er hægt að
gera ýmislegt til að efla ræktun á
Íslandi, til dæmis að blanda saman
plöntum sem vinna saman og hugsa
garðinn meira heildrænt þannig að
þetta verði í rauninni minni vinna á
endanum,“ segir hún.
Þekking og stuðningur
Þeir sem heimsóttu garðinn síðasta
sumar hafa áreiðanlega séð að
þarna væri eitthvað öðruvísi á ferð-
inni. Til dæmis var ræktað upp á
við í alls kyns heimagerðum ílátum.
Í Laugargarði er því hægt að nálg-
ast ýmsa þekkingu, sem er hvetj-
andi við ræktunina. Brynja segir að
fólk á Íslandi gefist fyrst og fremst
upp á ræktun út af veðrinu og líka
út af því að það hafi ekki stuðning
og þekkingu.
„Hér er hægt að læra ýmislegt
og taka með sér þekkingu heim
sem er líka hluti af hugmyndafræði
Laugargarðs.“
Ekki er búið að skipuleggja í
þaula hvernig samstarfið við Dal-
heima verður eða aðra íbúa í
hverfinu því þetta fer fyrst og
fremst eftir áhuga og framlagi
hvers og eins. „Við leyfum þessu
að þróast. Við viljum ekki skipu-
leggja of mikið. Við viljum að fólk-
ið sem mætir fái rými til að móta
þetta.“
Sumir mæta kannski í garðinn
vegna þess að þeir hafa sjálfir ekki
pláss til að rækta heima hjá sér en
aðrir eru bæði í görðunum heima
og mæta í Laugargarð til að fá fé-
lagsskap.
Hún segir garðyrkju skemmti-
lega fyrir alla fjölskylduna til að
stunda saman. „Mér fannst æð-
islegt að vera svona mikið með syni
mínum í garðinum í fyrra.“
BORGARBÚSKAPUR Í LAUGARDALNUM
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2015
Fjölskyldan Hönd í hönd (hondihond.is) stendur reglulega fyrir fæðingarundirbún-ingsnámskeiðum fyrir pör. Farið er yfir einfaldar slökunaræfingar og góð-
ar stellingar og stöður. Til dæmis er farið yfir hvernig er hægt að nota re-
bozo-sjal til slökunar. Næsta námskeið er laugardaginn 23. maí frá 12-15.
Fæðingin undirbúin
Vistræktarvinnustofa Laug-
argarðs verður haldin núna um
helgina í samstarfi við frístunda-
heimilið Dalheima.
Markmiðið með vinnustofunni
er að koma af stað starfsemi fyr-
ir sumarið, skipuleggja fyrstu
skrefin í ræktuninni og gera
framtíðaráætlanir.
Á vistræktarvinnustofunni
verður hugmyndafræði vistrækt-
ar kynnt, skoðaðar verða ýmsar
ræktunarlausnir og ýmsum hug-
myndum velt upp um heildræna
hönnun á garði.
Brynja Þóra Guðnadóttir, um-
sjónarmaður Laugargarðs, Guð-
rún Hulda Pálsdóttir og Sigurður
Unuson standa að vinnustofunni.
Sigurður og Guðrún stýra
fræðsluþætti stofunnar. Þau eru
vistræktendur, eru með PCD
gráðu í vistrækt og hafa meðal
annars numið vistrækt á Írlandi.
Lilja Sigrún Jónsdóttir, stofnandi
fyrstu grenndargarða í Reykja-
vík, mun halda stutt erindi um
þau jákvæðu áhrif og þann
hvatningamátt sem gott grennd-
arsamfélag hefur á ræktendur.
Á laugardag verður kynning á
starfsemi Laugargarðs síðasta
sumar og fræðsla um vistrækt.
Eftir fræðslu og umræður koma
þátttakendur með tillögur að
hönnun Laugargarðs sem verða
kynntar í lok fyrsta dags.
Á sunnudaginn verður farið út
í Laugargarð og grunnur lagður
að ræktun sumarsins. „Á nám-
skeiðinu verðum við með for-
sánar plöntur en við hvetjum þá
sem hafa áhuga á að taka þátt í
Laugargarði að byrja að forsá og
koma með plöntur til að setja
niður,“ segir í tilkynningu.
Fyrri daginn verða veitingar í
boði. Námskeiðið kostar ekkert
en frjáls framlög eru vel þegin og
mun ágóðinn renna í uppbygg-
ingu Laugargarðs.
Námskeiðið verður haldið á
Holtavegi 32, laugardag milli 10
og 16 og sunnudag milli 10 og
14. Nánari upplýsingar eru á
Facebook-síðu Laugargarðs.
VISTRÆKTARVINNUSTOFA UM HELGINA
Fyrstu skrefin og
heildræn hönnun
Úlfur sonur Brynju í að störfum í garðinum í fyrra.
Brynja er byrjuð að undirbúa rækt-
unarsumarið í glugganum heima.
Ýmis heimagerð ílát voru notuð til
ræktunar eins og þetta úr pallettum.
Ný tegund af
skólagörðum
BRYNJA ÞÓRA GUÐNADÓTTIR SEGIR GARÐYRKJU VERA GÓÐA FYRIR FJÖLSKYLDUNA TIL
AÐ STUNDA SAMAN. HÚN ER UMSJÓNARMAÐUR SAMFÉLAGSREKNA MATJURTAGARÐSINS
LAUGARGARÐS Í LAUGARDALNUM SEM ER NÚ STARFRÆKTUR Í ANNAÐ SINN.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
* Hér er hægt aðlæra ýmislegt ogtaka með sér þekk-
ingu heim sem er líka
hluti af hugmynda-
fræði Laugargarðs