Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Qupperneq 17
Kallað hefur verið eftir meirifjölbreytni leikfanga meðherferðinni „Toy Like Me“
eða „Dúkka eins og ég“. Aðstand-
endur hennar tóku eftir því að ekki
eitt einasta leikfang var í hjólastól,
eða með heyrnartæki, gekk við staf
eða var með nokkra aðra fötlun.
Í Bretlandi fékk átakið góðar
undirtektir en þar eru 770.000
börn með fötlun af einhverju tagi
og um 150 milljón börn á heims-
vísu. Nauðsynlegt þykir fyrir þenn-
an hóp að hafa leikföng sem end-
urspegla þeirra veruleika og
sömuleiðis gera fötlun að eðlilegum
hlut sem þarf ekki að fela.
Rebecca Atkinson er ein þeirra
sem standa að herferðinni. Henni
fannst leikfangafyrirtækin mis-
muna börnum og hafði samband
við tvær vinkonur sem eiga börn
með fötlun. Þær stofnuðu Face-
book-síðu og fóru á Twitter og
byrjuðu að nota #toylikeme. Þær
báðu fólk um að taka myndir af
dúkkum og dóti sem sýndu fötlun á
jákvæðan hátt. Þær fóru sjálfar að
breyta leikföngum barna sinna á
sama hátt og settu á netið.
Minni leikfangaframleiðendur
hafa tekið við sér og svarað kalli
herferðarinnar. Arklu, skapari Lot-
tie-dúkkanna, framleiðir 25%
þeirra með gleraugu og hefur fall-
ist á að leita leiða til að láta nýjar
dúkkur vera fulltrúa fjölbreyttari
hópa.
Atkinson spyr í grein sinni í Gu-
ardian: „Hvað með stóru nöfnin í
leikfangaiðnaðinum, Lego, Mattel,
Playmobil? Við erum búin að senda
þeim Twitter-skilaboð, við erum
búin að tagga þau, tala um þau og
bjóða þeim til leiks. En þau eru
ekki enn komin um borð.“
Þrívíddarprentaðir fylgihlutir
Makies, sem framleiðir þrívíddar-
prentuð leikföng, hefur hafið fram-
leiðslu á fylgihlutum sem fatlað fólk
getur þurft á að halda, aðeins tveim-
ur vikum eftir að Atkinson og fé-
lagar höfðu samband við fyrirtækið.
Makies segist hafa tekið áskor-
uninni og farið að framleiða dúkk-
ur sem ganga við staf, eru með
heyrnartæki og valbrá.
„Við frestuðum öðrum hlutum til
þess að fara að hanna heyrnartæki,
göngustafi og prófa okkur áfram
með að gera valbrá framan í dúkk-
urnar,“ segir fyrirtækið á vefsíðu
sinni, en það er líka að vinna að
gerð leikfangahjólastóls.
Fyrirtækið skorar á Twitter á
Mattel, Hasbro & MGA að fylgja í
kjölfarið.
Þrívíddarprentunin er ástæða
þess að Makies getur brugðist
svona hratt við. Dúkkurnar þeirra
eru líka framleiddar eftir pöntun og
hefur fyrirtækið fengið fjölda fyr-
irspurna frá fólki sem vill eignast
dúkkur með sömu fötlun og barn
þess og brugðist vel við þeim öllum.
Það skoðar allt og virðist fjölbreyti-
leikinn því ætla að verða meiri í
þessum heimi, í það minnsta ef þró-
unin heldur svona áfram.
150 MILLJÓN BÖRN MEÐ FÖTLUN AF EINHVERJU TAGI
„Dúkka eins
og ég“
Leikföng sem aðstandendur
herferðarinnar breyttu til að
endurspegla fjölbreytileika
mannlífsins.
Mynd/BethMoseleyPhotography.co.uk
KALLAÐ ER EFTIR FJÖLBREYTNI Í LEIKFANGAHEIMINUM OG
HAFA SUM LEIKFANGAFYRIRTÆKI BRUGÐIST VIÐ OG FRAM-
LEIÐA NÚ DÚKKUR MEÐ FÖTLUN AF EINHVERJU TAGI.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Dúkkur frá Ma-
kies ganga við staf,
eru með heyrn-
artæki og valbrá.
Mynd/Makies
Hoppukastalar hafa mikið aðdrátt-
arafl fyrir börn.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Carole Middleton, móðir Kate, birti
nýlega fyrsta dálk sinn sem hún
skrifar fyrir tímaritið Little London.
Hún skrifar þar um barnaafmæli,
efni sem hún ætti að vita eitthvað
um. Hún rekur nefnilega fyrirtæki,
með eiginmanni sínum, Michael, sem
selur allt mögulegt tengt veislum.
Í þessum nýja pistli gefur hún nokk-
ur ráð um hvernig eigi að halda barna-
afmæli sem allir verði ánægðir með:
● Vertu með afmælið úti. Það er frá-
bært að fara í allskyns íþróttaleiki,
ekkert er betra til að brenna upp
alla þessa orku.
● Ekki hræðast að gera þetta svolít-
ið flott, hoppukastalar hafa alveg
sérstakt aðdráttarafl fyrir börn.
● Ekki reyna að finna upp hjólið.
Kakan ætti að vera miðpunktur
veislunnar.
Víst er að margir muni hlýða ráð-
um hennar enda er hún prinsa- og
prinsessuamma.
Það er hins vegar eftir að koma í
ljós hvort Elísabetu drottningu þyki
hoppukastalar passa vel við hlið
hefðbundinna kastala.
AFMÆLISVEISLUR BARNA
Veisluráð Middleton
24.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Leikhópurinn Lotta kíkir í heimsókn á Kexið sunnudaginn 24. maí
klukkan 13 með brot úr glænýju verki. Sýning sumarsins er Litla
gula hænan, blanda að hætti Lottu úr samnefndu ævintýri og Jóa
og baunagrasinu. Verkið verður frumsýnt 27. maí í Elliðaárdalnum.
Litla gula hænan að hætti Lottu*Brosið er stysta leiðin millimanna.
Victor Borge
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
KEFLAVÍK-FYLKIR
Á NETTÓVELLINUM 25. MAÍ KL. 19:15
Fyrstu 50 áskrifendurnir fá tvo miða á leikinn.
Mættu á völlinn og framvísaðu Moggaklúbbskortinu við innganginn til að fá miða.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á
EÐA Í SÍMA
MOGGAKLÚBBURINN
BÝÐUR Á VÖLLINN!