Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Side 33
mauk, þessu blandað sam-
an og kryddað til með sjáv-
arsalti og pipar.
Hitið olíuna í stórri pönnu/
potti, blandið saman lauk og
salti í olíuna og mýkið á miðl-
ungshita í olíunni í um 10 mín
eða þar til laukurinn hefur tek-
ið gylltan lit. Bætið þá við hvít-
lauk og cuminfræjum og eldið
áfram í um tvær mín. Bætið þá
saman við rauðrófunum og
kartöflunni og blandið vel sam-
an á pönnunni. Hellið þá vatn-
inu á pönnuna og látið sjóða
varlega í ca. 15 mín eða þar til
rauðrófurnar og kartaflan eru
mjúkar.
Hellið þá öllu í matvinnsluvél,
það gæti þurft að gera það í
tveim skömmtum, og maukið
þar til mjúkt og slétt. Hellið þá
aftur á pönnuna og setjið rauð-
vínsedikið saman við ásamt
helmingnum af steinseljunni og
kryddið með salti og pipar. Ef
súpan er sýrumikil er gott að
bæta við salti. Setjið í skálar og
setjið tólf matskeiðar af jógúrt-
blöndunni ofan á súpuna ásamt
steinseljunni og nokkrum drop-
um af góðri ólívuolíu.
Polina Gagarina er mikil stjarna
í heimalandinu og er ekki að-
eins fræg sem söngkona heldur
líka sem leikkona. Ekki er ólík-
legt að hún borði mikið af
rauðrófum þar sem hún hefur
sérstaklega heilbrigt og fallegt
útlit og henni til heiðurs er birt
hér uppskrift að rauðrófusúpu.
Súpan er frá vinotek.is og gefa
cuminfræin henni öðruvísi blæ.
4 tsk. ólívuolía
½ stór laukur
2 hvítlauksrif
1 góð tsk. cuminfræ
1 kg rauðrófur, skornar í
teninga
1 stór kartafla, skorin í ten-
inga
1,25 lítrar vatn
3 tsk. úrvals rauðvínsedik
(einnig er hægt að nota
rauðvín blandað með góðu
balsamic )
1 lúka steinselja, helst flöt
og gróft skorin
JÓGÚRTBLANDA
100 g grísk jógúrt þynnt
með mjólk og eitt hvít-
lauksrif pressað með hnífs-
blaði þannig að úr verði
Rauðrófusúpa með cumin
Polina Gagarina vakti mikla athygli á fyrra undanúrslitakvöldinu.
AFP
RÚSSLAND
Ljósmynd/vinotek.is
24.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
AFP
Sænskar
pönnukökur
Svava Gunnarsdóttir er með hið skemmtilega
matarblogg ljufmeti.com og hún leyfði blaðinu
að fá uppskrift að sænskum pönnukökum til
heiðurs hinum sykursæta Måns Zelmerlöw.
Måns er fjölhæfur; fyrir utan að vera vinsæll
tónlistarmaður vann hann Let’s Dance í
heimalandinu, hann hefur farið með aðal-
hlutverk í Grease og Rómeó og Júlíu og
stjórnað sjónvarpsþáttum.
Sænskar pönnukökur eru þykkari en ís-
lenskar og segir Svava auðveldara að steikja
þær. „Ég virðist svakalega flink þegar ég sný
þeim, með að henda þeim í loftið og grípa aft-
ur með pönnukökupönnunni en það er þó
ástæða fyrir þeim stælum. Ég næ ómögulega
að snúa þeim öðruvísi án þess að rífa þær
með spaðanum! Það er svo einfalt að gera
þetta svona, þegar pönnukakan er orðin laus
frá pönnunni þá er tímabært að snúa henni.
Þegar seinni hliðin losnar þá er pönnukakan
tilbúin,“ skrifar Svava á bloggið. Pönnukök-
urnar eru þá brotnar saman og bornar fram
með sultu og rjóma.Uppskriftin kemur upp-
runalega frá Kokaihop.
2,5 dl hveiti
1/2 tsk salt
smá vanillusykur
6 dl mjólk
4 egg
1 msk sýrður rjómi
3 msk smjör til að steikja upp úr (Svava
notar mun meira)
Blandið þurrefnum saman í skál. Bætið mjólk
og sýrðum rjóma saman við og hrærið vel
saman. Hrærið að lokum eggjunum í blönd-
una. Steikið upp úr smjöri.
Måns Zelmer-
löw er söngvari
og leikari.
SVÍÞJÓÐ
Ljósmynd/Ljúfmeti og lekkerheit