Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Page 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Page 45
24.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45 ast af þessu brúðuleikhúsi og því er áhuginn á kosn- ingum til ESB-þingsins sá alminnsti af litlum áhuga almennt og þykir gott ef 30 prósent kjósenda láta enn fífla sig til að mæta á kjörstað þeirra vegna. Heppnast bragðið Í Bretlandi hefur kerfi einmenningskjördæma auð- veldað kosningu hreinna flokksstjórna. Íhaldsflokk- urinn, undir forystu Davids Camerons, marði óvænt slíkan sigur í byrjun þessa mánaðar. Þá hafði sá flokkur, annar af stórflokkunum tveimur, ekki unnið hreinan meirihluta í 23 ár. Sigurinn, sem Íhalds- flokkurinn vann 1992, minnir um margt á þennan síðasta. Þá var því að vísu spáð að Íhaldsflokkurinn yrði stærstur flokka, en tapaði sínum hreina meiri- hluta. Nú virtust stóru flokkarnir tveir vera hníf- jafnir og í þeim fáu könnunum þar sem munaði hafði Verkmannaflokkurinn vinninginn. En John Major, leiðtogi Íhaldsflokksins, vann óvæntan sigur 1992 og með drýgri meirihluta en Cameron nú. En sá meirihluti reyndist ótryggur leiðtoganum og einkum voru þingmenn, sem tor- tryggnir voru í garð ESB, honum þungir í taumi. Cameron hafði 24 ára gamall farið að starfa í höf- uðstöðvum Íhaldsflokksins árið 1990, sem eins konar almannatengill. Hann vakti athygli þar innanhúss og þótti snjall. Forsætisráðherrann rak augun í hann og Cameron var fljótlega kominn í innsta hring þeirra sem undirbjuggu ráðherrann fyrir hið óvænta, hvort sem það voru óundirbúnar fyr- irspurnir eða skyndifréttir fjölmiðla. Var til þess tekið hvað ungi maðurinn var séður og ráðagóður í þessu hlutverki. Árið 1997 var Cameron settur í þingframboð. Þá var sveiflan til Blairs og Verkamannaflokksins af- gerandi og Cameron náði ekki kjöri. Hann bauð sig fram undir merkjum andstæðinga ESB í flokknum (Eurosceptics) og var harður andstæðingur þess að Bretar tækju upp evru. Varðandi fyrra atriðið hefur Cameron „þroskast“, eins og það er kallað þegar stjórnmálamenn verða afhuga hugsjónum sínum. Nú segist hann ætla að semja eitthvað af fullveld- istapi Breta í þeirra hendur á ný. Þegar hann hafi unnið sigur í þeim samningum efni hann til þjóðar- atkvæðis um það, hvort Bretar eigi að vera áfram í ESB eða fara. Hann geti í krafti sinna sigursamn- inga barist fyrir áframhaldandi aðild. Fyrstu samningshugmyndir forsætisráðherrans voru örlítið bitastæðar, en eftir viðbrögð við þeim í Brussel þynnti hann þær kröfur snarlega út í von um að geta sýnt fram á „sigur“. John Major vann marga sigra af því tagi. Hann kom þá heim frá Brussel þar sem búrókratar höfðu sett fram ýtrustu kröfur og breski forsætisráð- herrann fengið 5% afslátt af þeim. Í næstu lotu voru aftur settar fram ýtrustu kröfur og Major vann enn stórsigur og fékk 5% afslátt af þeim og var þá búinn að gefa eftir meira en 50% til viðbótar þeim kröfum sem hann fékk 5% aflátt af í fyrri sigrinum. Þessa fullveldissneiðingu kalla menn agúrkuaðferðina. Sneiðarnar eru vissulega flestar þunnar en áður en við er litið er agúrkan öll komin í hús í Brussel. Mikið undir Almannatengillinn bráðþroska veðjar á að hann komist í gegnum þessa þjóðaratkvæðagreiðslu og eftir hana verði andstæðingar ESB í flokknum að láta allt yfir sig ganga um hríð. Hann hefur þegar tekið áhættu í tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum. Sú fyrsta var um einmenningskjördæmin eða hlutfalls- kerfi. Þá urðu þeir Heródes og Pílatus vinir, Cam- eron og Miliband, og það dugði. Næsta þjóðar- atkvæðið var í Skotlandi. Þar sameinuðust allir flokkarnir þrír og unnu skoska þjóðernissinna 55%- 45%. Þjóðernissinnar hefndu sín grimmilega á Miliband og Verkamannaflokknum í þingkosningunum sem í hönd fóru. Cameron taldi að með því að samþykkja þetta þjóðaratkvæði væri hann búinn að ýta sjálf- stæðismálinu út af borðinu í áratugi. Því ekki er hægt að heimta nýtt þjóðaratkvæði allt þar til að maður fær já, nema þegar ESB heldur þjóðar- atkvæði. Cameron veðjar á það nú, að samstaða flokkanna þriggja, hans eigin, Verkamannaflokksins og Frjáls- lyndra, muni duga honum í þjóðaratkvæðinu um ESB. Þess utan er Breska ríkisútvarpið frægt fyrir pólitíska misnotkun. Þótt hún beinist að jafnaði gegn Íhaldsflokknum, þá er BBC að auki fræg ESB- hækja og þar sem Verkamannaflokkurinn verður um borð þarf ekki að efast hvað þá stofnun varðar. Að auki mun hræðsluáróður vinnuveitenda, iðn- rekenda og verkalýðsrekenda verða mjög öflugur og allt þetta samanlagt mun tryggja hvert áróðurspen- ingarnir munu renna. Þá ætlar Cameron sér að tryggja að Evrópumenn starfandi í Bretlandi fái að kjósa í þessum kosningum. Þar með telur hann aug- ljóst að almenningur hafi ekki roð við ofureflinu. Það má vel vera að almannatengillinn ungi, sem heillaði alla með frumleika sínum og snilld upp úr 1990, meti þetta allt saman rétt. Það er raunar mjög líklegt. En auðvitað eru dæmin til þar sem líkindareikn- ingarnir skjóta óvænt fram hjá markinu. Á meðan vísindaheiti er ekki til yfir þau ólíkinda- tilvik er rétt að kalla þau „icesave-syndrómið“ til einföldunar. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.