Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Side 57
„Ég sé ekki fyrir mér að hægt sé að tónflytja bassalínuna upp um áttund og láta konu syngja þetta. Ég var með eiginleika bassasöngvarans í huga
þegar ég samdi verkið,“ segir Þórunn Gréta Sigurðardóttir um verkið KOK sem samið var við samnefnda ljóðabók.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
24.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Halldór Björn Runólfsson,
safnstjóri Listasafns Íslands,
leiðir gesti um sýninguna
Saga – Þegar myndir tala á
morgun, sunnudag kl. 14. Á sýning-
unni eru verk fjölda íslenskra sam-
tímamyndlistarmanna auk nokkurra
erlendra, er endurspegla frásagnar-
þáttinn í íslenskri sjónmenningu.
2
Anna Júlía Friðbjörnsdóttir
verður með sýningarstjóra-
spjall um sýninguna Formið
endurheimt í i8 í dag, laug-
ardag, kl. 14. Á sýningunni er teflt
saman verkum þriggja listamanna,
þeirra Alexöndru Navratil, Erin Shir-
reff og Löru Viana, sem eiga það sam-
eiginlegt að byggja á uppbroti og end-
urbyggingu arkíva og minninga.
4
Tvíeykið Plaiper heldur
djasstónleika í Tjarnarbíói á
morgun, sunnudag, kl. 18.30
og er aðgangur ókeypis.
Hljómsveitarmeðlimir lýsa tónlist
sinni sem spuna, slapstick-gríni og
„free jazz“, en þeir leika órafmagnað.
Þeir hyggja á útgáfu fyrstu plötu sinn-
ar síðar á þessu ári.
5
Jo Strømgren Kompani sýnir
Eldhúsið í Tjarnarbíói í dag,
laugardaginn, kl. 14. Verkið
segir frá eldri manni og lítilli
stelpu sem finna autt hús sem þau
vilja bæði búa í og upphefst þá galsa-
fullur leikur um það hver á réttinn til
að búa í húsinu. Geta þau mögulega
búið þar bæði? Með hlutverk manns-
ins fer Ívar Sverrisson. Sýningin
hentar fyrir aldurinn 5-12 ára.
3
Listasafn Árnesinga býður
til umræðudagskár í dag, laug-
ardag, milli kl. 13.00-14.30. Í
pallborði verða Árni Blandon,
kennari við FSU, Ólöf K. Sigurð-
ardóttir listfræðingur og Sirra Sigrún
Sigurðardóttir myndlistarmaður, en
útgangspunktur umræðnanna er sýn-
ing hennar sem nefnist Geymar.
MÆLT MEÐ
1
mest fyrir sjálfan mig. Mér finnst gaman að
fjölbreytninni og svo er það ákveðin áskorun
að fást við eitthvað sem gerir kröfur.“
Í ljósi þess að ljóðmælandinn í ljóðabókinni
KOK virðist kvenkyns liggur beint við að
spyrja hvernig Kristinn nálgist það. „Ég set
ekki á mig hárkollu,“ segir Kristinn kíminn.
„Ég reyni að sneiða hjá þessu, því óhugnað-
urinn getur alveg eins verið í körlum og kon-
um. Efnið er það abstrakt að kyn ljóðmæl-
anda truflar mig ekki neitt. Þegar ég er
farinn af stað þá eru það fyrst og fremst til-
finningarnar í textanum sem ráða för.“
Syngur í fyrsta sinn við hörpuleik
Kristinn syngur í tveimur tónverkum eftir John
Speight, annars vegar frumflytur hann nýja
gerð af Cantus IV við sjö ljóð eftir Þorstein frá
Hamri og hins vegar flytur hann Gesänge des
Harfners við ljóð eftir Goethe. „Cantus IV söng
ég fyrir nokkrum árum með Jónasi Ingimund-
arsyni, þá útfært fyrir píanó og bassa og til-
einkað okkur Jónasi. Í millitíðinni er John bú-
inn að umrita verkið fyrir strengjasveit og
hörpu, sem gefur verkinu allt annað yfirbragð,“
segir Kristinn og tekur fram að stórkostlegt sé
að fá tækifæri til að koma aftur að verkinu.
„Þetta er afskaplega fallegt verk og dramatískt
á köflum. Þetta er mjög tilfinningaríkt verk.“
Kristinn lýsir lögunum þremur sem John
samdi við Gesänge des Harfners eftir Goethe
sem innhverfum og fallegum. „Lögin þrjú eru
nánast eins og maður sé að tala við sjálfan
sig,“ segir Kristinn og tekur fram að þetta
verði í fyrsta sinn sem hann syngi lög aðeins
við hörpuundirleik.
„Báðar tónsmíðarnar bera mjög sterk ein-
kenni tónskáldsins. John kann þá list að skrifa
fyrir söngvara, enda söngvari sjálfur. Ég söng
nokkrum sinnum með honum á sviði í denn og
hann er stórskemmtilegur söngvari og jafn-
skemmtilegur leikari.“
Spurður hvað sé framundan hjá honum
nefnir Kristinn afmælistónleika í Hofi á Ak-
ureyri 6. júní nk. til heiðurs Jóni Hlöðveri Ás-
kelssyni tónskáldi. „Þar mun ég frumflytja
tólf lög eftir Jón Hlöðver við undurfalleg ljóð
Böðvars Guðmundssonar. Það er eitt ljóð og
lag fyrir hvern mánuð í árinu. Þetta er
afskaplega skemmtilegt viðfangsefni og mjög
nútímaleg músík þar sem söngurinn hefur
ekki alltaf mikinn stuðning frá píanóinu,“ seg-
ir Kristinn og tekur fram að hann komist í
langþráð sumarfrí að tónleikum loknum.
„Í haust verð ég síðan í hlutverki yfirdóm-
ara rannsóknarréttarins í Don Carlo eftir
Verdi í Hamborg í haust og syng þá hlut-
verkið í fyrsta sinn á frönsku. Eftir áramót
syng ég, í Hamborg líka, Melchtal í William
Tell eftir Rossini. Einnig er á döfinni mánaðar
tónleikaferðalag um Evrópu með Sinfón-
íuhljómsveitinni í Houston.“
* Ég reyni mitt bestatil að magna uppþennan óhugnað.
Tónskáldið John Speight hóf feril sinn sem
söngvari og þekkir því mannsröddina vel.
Morgunblaðið/RAX
Jakobínu Sigurðardóttur með aðstoð hljóð-
færisins. Tónleikarnir verða endurteknir
sunnudaginn 7. júní kl. 14 og 16.
Innt eftir því hvað sé framundan hjá sér
segist Þórunn munu taka þátt í Cycle music
and art festival sem fram fer hérlendis dag-
ana 13.-16. ágúst. „Þetta er hátíð sem varð til
sem afsprengi af Tónlistarhátíð unga fólksins
sem ávallt er haldin í ágúst. Ég verð þar með
nýtt verk fyrir Adapter Ensemble. Síðan er-
um við Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari að
vinna saman auk þess sem ég er í Jaðarber-
hópnum, en lokatónleikar starfsársins verða í
Hafnarborg mánudaginn 8. júní til heiðurs
tónskáldinu Charles Ross sem fagnaði fimm-
tugsafmæli sínu fyrr í ár,“ segir Þórunn og
ljóstrar upp um spennandi verkefni á kom-
andi ári.
„Fyrr í vikunni var mér tilkynnt að ég
hefði verið valin til þátttöku í Yrkju-
verkefninu ásamt þeim Halldóri Smárasyni og
Gunnari Karel Mássyni,“ segir Þórunn en þar
er um að ræða tónskáldasmiðju á vegum Tón-
verkamiðstöðvar og Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands undir forystu Daníels Bjarnasonar.
„Vinnan byrjar í september og nær út vet-
urinn, en við munum öll semja ný verk fyrir
Sinfóníuna sem flutt verða að ári ásamt því að
fá aðstoð við að koma okkur á framfæri sem
tónskáld.“