Fréttablaðið - 09.07.2015, Side 2
9. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
FORNLEIFAR Fornleifauppgröftur hefur leitt í ljós skálabyggingu sem
hugsanlega er frá landnámstíma.
„Við vorum sem sagt að byrja að grafa fyrr í sumar þar sem þarna á
að rísa hótel,“ segir Lísabet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur.
„Við vissum af rituðum heimildum að þarna var bær kallaður Lækj-
arkot sem var reistur árið 1799. Hann var síðan rifinn árið 1887 og
timburhús var byggt í staðinn. Markmið rannsóknarinnar var í raun
að kanna húsin tvö en svo kemur í ljós að það er þarna eldri bygging
undir,“ segir hún.
„Við áttum ekki von á þessu. Við vissum að það var þarna eldri
byggð við Aðalstræti og á Alþingisreitnum. Þar var aðalbyggðakjarn-
inn á þessum tíma en þessi fundur bætir við söguna.“ - srs
Fornleifafræðingar fundu landnámsskála við uppgröft:
Óvæntur fundur við Lækjargötu
SKÁLI KEMUR Í LJÓS Uppgröftur hefur staðið síðan í maí. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
Norðangjóla og dálítil úrkoma N- og
A-lands og svalt í veðri en bjartviðri
suðvestan til á landinu og hiti þar 10
til 15 stig. Aftur kalt í veðri aðfaranótt
föstudagsins.
GRIKKLAND Alexis Tsipras, for-
sætisráðherra Grikklands, lof-
aði Evrópuþinginu í gær að
Grikkir myndu skila ítarleg-
um tillögum um breytingar á
ríkisrekstri á fimmtudag. Til-
lögurnar eru forsenda þess að
viðræður um samning um nýja
neyðaraðstoð fyrir Grikkland
geti hafist.
Jean-Claude Juncker sagði á
blaðamannafundi í fyrradag að
loknum leiðtogafundi evruríkj-
anna að tillögurnar yrðu að ber-
ast fyrir föstudagsmorgun. Ang-
ela Merkel, kanslari Þýskalands,
óskaði eftir að fá þær á fimmtu-
dag svo hægt væri að bera þær
undir þýska þingið.
„Í staðinn fyrir að halda þjóð-
aratkvæðagreiðslu hafa önnur
sambandsríki sætt sig við breyt-
ingar á ríkisrekstri, annað en
Grikkland. Ráðuneyti þitt hefur
verið hamfarakennt,“ sagði
Manfred Weber, leiðtogi íhalds-
manna á þinginu, og vísaði til
þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem
gríska þjóðin hafnaði kröfum
lánardrottna Grikkja um breyt-
ingar fyrr í mánuðinum.
Leiðtogi frjálslyndra demó-
krata á þinginu, Guy Verhof-
stadt, sagði að Grikkir þyrftu að
koma með ítarlega áætlun, ekki
bara hugmyndir.
Nigel Farage, leiðtogi flokks
andstæðinga Evrópusambands-
ins, hvatti Tsipras til að segja
skilið við evruna alfarið þar sem
verkefnið hefði mistekist. - þea
Alexis Tsipras ávarpaði Evrópuþingið í gær og uppskar misjöfn viðbrögð evrópsku þingmannanna:
Grikkir lofa að skila tillögum á fimmtudag
LOFORÐ Alexis Tsipras lofaði Evrópu-
sambandinu að koma með þær tillögur
sem af honum er krafist á fimmtudag-
inn. NORDICPHOTOS/GETTY
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu hefur lagt hald á
meira af kókaíni það sem af er ári
en samanlagt árin 2013 og 2014. Þau
ár var haldlagning kókaíns í algjöru
lágmarki.
„Eitt mál getur skekkt allt. En við
erum að vinna mikið og það skýrir
árangurinn,“ segir Aldís Hilmars-
dóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
fíkniefnabrotadeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Vísar Aldís
þar til þess að kókaín fannst í gámi
við Sundahöfn í júní síðastliðnum.
Tölurnar sem Fréttablaðið miðar
við eru frá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu. Tollverðir á Keflavík-
urflugvelli hafa þó fundið töluvert
magn af kókaíni. Tvær franskar
stúlkur um tvítugt sitja nú í gæslu-
varðhaldi á Akureyri fyrir að
smygla inn fjögur hundruð grömm-
um af kókaíni og hollenskar mæðg-
ur voru handteknar í byrjun apríl í
vor. Þær höfðu um tuttugu kíló af
fíkniefnum meðferðis, þar á meðal
kókaín.
Samkvæmt upplýsingum frá SÁÁ
fer grammið af kókaíni nú á tæpar
átján þúsund krónur. Fjögur hund-
ruð grömm af efninu myndu því
skila gróða upp á rúmar sjö millj-
ónir króna. Þá eru ekki teknar með
í reikninginn aðferðir til að drýgja
efnið og þynna það, sem myndi skila
enn meiri hagnaði.
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir
á Vogi, segir að þar á bæ hafi enn
ekki skilað sér til meðferðar aukinn
fjöldi kókaínfíkla.
„Það getur verið að menn séu
farnir að hugsa sér til hreyfings og
flytja meira inn. Lögreglan getur
verið að haldleggja núna, sem getur
bent til þess að við eigum von á
aukningu [til okkar] í framtíðinni,“
segir Þórarinn.
Hann segir að í Evrópu blandist
kókaínneysla mikið annarri vímu-
efnaneyslu en þó sé eitthvað um að
fólk sem hafi meira á milli handanna
ánetjist efninu þar sem það er mun
dýrara en annað á markaðnum.
„Við fengum svoleiðis fólk fyrir
hrun en það er mun minna núna.
Þessi mýta um að maður geti notað
kókaín lengi og verið ríkur, hún er
dálítið þvæld. Yfirleitt þegar maður
er orðinn fíkinn í kókaín er vinnan
fljót að fara og peningarnir og flest
sem maður er að gera.“
snaeros@frettabladid.is
Meira af kókaíni í
ár en tvö síðustu ár
Kókaínfíklum hefur ekki fjölgað í meðferð hjá SÁÁ þó að hald hafi verið lagt á
meira magn af fíkniefninu. Neysla á kókaíni dróst saman eftir efnahagshrunið
2008. Yfirlæknir segir þetta geti þýtt fleiri fíkla í meðferð innan tíðar.
MÝTUR Þórarinn Tyrfingsson segir að fljótt fjari undan hjá fólki sem er fíkið í
kókaín. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
skv. upplýsingum frá lögreglu
2013 2014 2015*
830 gr
980 gr
2.280 gr
*1. jan.-29. júní
➜ Haldlagt kókaín
VEÐUR
SJÁ SÍÐU 26
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ði
r á
sk
ilj
a
sé
r r
ét
t t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fy
rir
va
ra
.
Alicante
Flugsæti aðra leið með sköttum.
Frá kr. 17.900
STJÓRNMÁL „Ég lít svo á að könn-
unin sé enn ein vísbendingin til
okkar um að við þurfum að taka
okkur saman í andlitinu,“ segir
Katrín Júlíusdóttir, varaformað-
ur Samfylkingarinnar, um nýja
könnun MMR. Samfylkingin hefur
aldrei mælst með minna fylgi.
Katrín bendir á að nýlega hafi
formaður verið kosinn í Samfylk-
ingunni. „Það þurfa allir að skoða
sína stöðu. Það er ekkert bara for-
maðurinn. Við þurfum að fara
vandlega yfir þetta í sameiningu,
öll. Af hverju við séum ekki að ná
betri árangri en þetta.“
VG mælist þriðji stærsti flokk-
urinn samkvæmt könnuninni.
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, segist taka tölum
könnunarinnar með fyrirvara.
Lítil breyting hafi verið á fylgi
flokksins síðastliðin tvö ár þrátt
fyrir að vera þriðji stærstur nú.
„Við gleðjumst yfir því að þokast
aðeins upp á við. Með þeim fyrir-
vara þó að við erum búin að vera
mjög stabíl í tvö ár, í kringum níu
til ellefu prósent.“
Samkvæmt könnuninni eru
Píratar stærstir með 33,2 prósent,
Sjálfstæðisflokkurinn næstur með
23,8 prósent. Þá eru Vinstri græn
með 12,0 prósent, Framsóknar-
flokkurinn með 10,6 prósent og
Samfylkingin með 9,3 prósent.
Björt framtíð rekur lestina með
5,6 prósent. - snæ
Varaformaður Samfylkingar harðorður eftir útreið í skoðanakönnun MMR:
Tökum okkur saman í andlitinu
Það þurfa allir að
skoða sína stöðu. Ekki
bara formaðurinn.
Katrín Júlíusdóttir
HLJÓMGRUNNUR Katrín segir ljóst að
Samfylkingin nái ekki til þjóðarinnar
eins og staðan er í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
6
-2
1
0
C
1
7
5
6
-1
F
D
0
1
7
5
6
-1
E
9
4
1
7
5
6
-1
D
5
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K