Fréttablaðið - 09.07.2015, Page 22
9. júlí 2015 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 22
Kolbeinn Óttarsson Proppé
skrifar prýðilegan leiðara
í Fréttablaðið miðviku-
daginn 8. júlí um virkjan-
ir og orkumál undir heitinu
„Að byrja verkið á öfugum
enda“.
Þar er réttilega á það
bent að ítrekað heyrum við
að búið sé að skrifa undir
samninga um uppbygg-
ingu stóriðju án þess að
orka hafi verði tryggð til
framleiðslunnar og þegar gagn-
rýnisraddir hljómi um að ekki sé
rétt staðið að málum sé viðkvæðið
oftar en ekki að búið sé að eyða svo
miklum fjármunum í undirbúning
að það sé spurning um þjóðarhag
að halda verkinu áfram og útvega
orkuna.
Síðan kemur annað hljóð í
strokkinn
Orðrétt segir Kolbeinn: „Það má
velta því fyrir sér hvort stjórnend-
ur sem eyða miklum fjármunum í
verkefni upp á þá von og óvon að
orka fáist í þau séu sérstaklega
góðir stjórnendur. Ef í ljós kemur
síðan að orkan liggur ekki á lausu
eru fjármunirnir fyrir bí og það
getur varla talist góð stjórnun,
eða hvað?
En kannski er það einmitt góð
stjórnun. Kannski er þetta hluti
af því sem á ensku kallast að vera
passive agressive. Farið er af stað
með undirbúning verkefna undir
því yfirskyni að ekkert sé nú
ákveðið. Varla er fólk á móti því
að hlutirnir séu skoðaðir? En síðan
kemur að því að það næst saman
um uppbyggingu og þá kemur
annað hljóð í strokkinn. Öllum
þessum fjármunum hefur verið
eytt í undirbúning verkefnisins og
þess vegna er engin hæfa að vera á
móti því að virkjað sé til að standa
undir herlegheitunum. Ætlar fólk
að vera á móti framförum?“
Í lok leiðarans bendir höfundur
réttilega á að virkjanir séu mál
okkar allra og að ákvarðanir um
þær eigi ekki að vera „afgangs-
stærð í samningum sveitar-
stjórnarmanna, sem vilja iðnað í
umdæmi sín, og forsvarsmanna
iðnfyrirtækjanna, sem leita að
hentugu plássi fyrir verksmiðjur
sínar.“
Hvað er til ráða?
Að sjálfsögðu er það helst til ráða
að hefja verkið á réttum enda. Sá
sem ötullegast hefur barist fyrir
slíkum vinnubrögðum undan-
farna áratugi er án efa Hjörleifur
Guttormsson, náttúrufræðingur
og fyrrverandi alþingismaður og
ráðherra. Hann flutti fjölmargar
tillögur um breytt vinnubrögð á
þessu sviði sem skiluðu okkur að
lokum þeim árangri að Ramma-
áætlun leit dagsins ljós.
En Rammaáætlun samkvæmt
hugmyndum Hjörleifs átti að vera
hluti af stærri mynd. Þar var
grundvallaratriði að byrja á rétt-
um enda, hve mikið og til hvers.
Ekki kjörbúð!
Í greinargerð sem Hjörleif-
ur sendi frá sér fyrir nokkr-
um misserum segir m.a.: „Gera
verður þá kröfu til stjórnvalda að
þau áætli það heildarmagn fram-
leiddrar orku sem þau telji nauð-
synlegt að afla út frá þjóðhags-
legri nauðsyn og með tilliti til
alþjóðlegra skuldbindinga (lofts-
lagsmál) í fyrirsjáanlegri fram-
tíð og að Rammaáætlun taki mið
af því. Þannig væri hægt að gera
sér grein fyrir heildaráhrifum
slíkrar áætlunar. Enga viðleitni
í þessa átt er að finna í Ramma-
áætlun … Á meðan ekkert ligg-
ur fyrir í því efni birtist okkur
Rammaáætlun sem eins konar
„kjörbúð“ sem hver og einn geti
leitað inn í og heimtað sitt í tím-
ans rás. Slíkt fyrirkomulag er
ógnun við verndarþáttinn. Sér-
staklega blasir þetta við þegar
um er að ræða raforkusölu til
orkufreks iðnaðar. Því ætti að
stöðva frekari orkusölu í þessu
skyni að mestu eða öllu leyti á
meðan dæmið er gert upp, nema
þegar um er að ræða framleiðslu
á vistvænum orkugjöfum í stað
jarðefnaeldsneytis til nota í sam-
göngum og fiskiskipum.“
Rímar við heilbrigða skynsemi
Mér sýnast leiðari Fréttablaðsins
og þessi orð náttúrufræðingsins
ríma vel saman og það sem meira
er hljóma í þeim anda sem við flest
myndum leyfa okkur að kalla heil-
brigða skynsemi.
Leiðari Fréttablaðsins
og hvatning Hjörleifs
Óróleiki um kaup og kjör
lýsir ekki því sem er að
gerast í heilbrigðiskerfinu.
Ég er hjúkrunarfræð-
ingur með meistaranám
í siðfræði. Ég hef alla tíð
unnið á Landspítala og
haft unun af. Í starfi á
ég samvinnu við einstak-
linga og fjölskyldur sem
eru að takast á við alls
konar, margþætt og flók-
in heilsufarsleg og félags-
leg viðfangsefni. Þegar ég
mæti fólki á sjúkrahúsinu
er það jafnvel á erfiðasta
tímanum í lífi þess. Ég hef
það hlutverk að veita alltaf
gæða geðhjúkrun, hvernig svo sem
birtingarmynd veikinda þeirra er.
Allar manneskjur hafa nefnilega
jafnan rétt til heilbrigðisþjónustu.
Sem meðferðaraðila ber mér
umfram allt að hafa hagsmuni
skjólstæðinga minna að leiðar-
ljósi. Mér ber að byggja störf mín
á þekkingargrunni og viðhalda
þekkingu minni. Ég ber virðingu
fyrir þeim sem ég þjónusta. Ég
veit að það að mynda gott með-
ferðarsamband við skjólstæðing
skiptir meira máli en nákvæmlega
hvaða meðferð er veitt. Ég þarf
líka að huga að eigin líðan, því
ég sjálf er vinnutækið mitt. Ég er
auðmjúk fyrir því að geta
gert mistök. Ég hef trú á
skjólstæðingum mínum
og því að líðan þeirra og
heilsa geti batnað. Bjart-
sýni er smitandi og eykur bata-
horfur. Það sem ég geri í vinnunni
er ekki úr lausu lofti gripið.
Ég er ein af þeim sem hverfa
frá starfi í haust. Það er tap fyrir
Landspítala sem hefur lagt mikið
í að þjálfa mig.
Ég sætti mig ekki við að fag-
stéttin mín sé ein þeirra örfáu
stétta sem virðast eiga að bera
fulla ábyrgð á stöðugleika í land-
inu. Ég læt ekki segja mér það að
fagstéttin mín sé of mikilvæg til
að leggja niður störf – en hvorki
nógu mikilvæg til að halda í starfi
eða sýna virðingu.
Ég tek ekki þátt í þessu.
Ég tek ekki þátt í þessu
Ári eftir árásir Ísraels á
Gaza er svæðið enn í rúst-
um. Orsök þess er að Ísra-
elar telja að byggingarefni,
líkt og sement, stál og möl,
séu ekki æskileg fyrir íbúa
Gaza og hafa þeir mark-
visst unnið að því að hamla
innflutningi þessara efna
til Gaza en minna en 1% af
því sem þarf til endurbygg-
ingar hefur skilað sér. Þessi
takmarkaði aðgangur að
efnum hefur komið í veg fyrir upp-
byggingu heimila sem og annarra
húsakynna, líkt og skóla, spítala og
fleira sem telst til grunnstoða sam-
félagsins.
Afleiðingar árása ísraelska hers-
ins voru hörmulegar en eyðilegging
var gríðarleg, margir voru drepnir
og fjöldi fólks er enn á vergangi. Á
meðan árásirnar stóðu yfir glímdi
almenningur við þann vanda að
finna sér ekki skjól fyrir árásun-
um, árásum frá her sem gerði ekki
greinarmun á almenningi eða hern-
aðarlegum skotmörkum. Hræðsla
hafði ríkan rétt á sér þar sem Ísra-
elar gerðu óhikað árásir á sjúkra-
bíla, spítala og skóla, og jafnvel á
staði sem höfðu verið sérmerktir af
alþjóðlegum samtökum sem skjól
fyrir almenning. Í átökunum særð-
ust 83 heilbrigðisstarfsmenn, 21 lét
lífið, 16 sjúkrabílar eru ónothæfir
eftir árásir og 17 spítal-
ar urðu fyrir alvarlegum
árásum og þar af eru 6
sem enn eru óstarfhæfir.
Heilbrigðiskerfið var fyrir
árásina að hruni komið
eftir 8 ára umsátur Ísra-
els, með takmarkað magn
af tækjum, vatni og raf-
magni. Gífurlega margir
þjást af áfallastreiturösk-
un meðal almennings eftir
fyrri árásir ísraelska hers-
ins og hefur sú tíðni hækkað upp úr
öllu valdi eftir síðustu árás.
Ísland beiti sér
Yfir 10.000 Palestínumenn særðust
í árásunum, á meðal þeirra meira
en 3.000 börn. Samkvæmt tölum
frá Sameinuðu þjóðunum er áætl-
að að 2.251 Palestínumaður hafi
látið lífið, þar á meðal 260 konur
og 551 barn. Nýburadauði tvöfald-
aðist á meðan á árásunum stóð og
fór frá 7% í 14% á Shifa-sjúkrahús-
inu. Talið er að um 4.800 fæðingar
hafi átt sér stað meðan á árásunum
á Gaza stóð og erfiðar samgöngur
gerðu það að verkum að erfitt var
fyrir margar þungaðar konur að
komast að spítölunum. Mörg þeirra
heimila sem voru eyðilögð voru
heimili sjúklinga og þegar þeir voru
tilbúnir að vera útskrifaðir höfðu
margir þeirra ekkert húsaskjól og
voru því áfram á yfirfullum spítöl-
um. Spítalar voru þó enginn griða-
staður og þegar ísraelski herinn
varpaði sprengju nálægt Al Durra-
barnaspítalanum 24. júlí varð spít-
alinn sjálfur fyrir miklum skemmd-
um og eyðileggingu. Tveggja ára
barn lést í árásinni og um 30 börn
til viðbótar særðust en einnig sjö
starfsmenn spítalans. Eftir árásirn-
ar var spítalinn talinn ónothæfur.
Samkvæmt Genfarsáttmálan-
um ber öllum ríkjum að bregðast
við og koma í veg fyrir áframhald-
andi brot á alþjóðlegum mannrétt-
indalögum. Ísrael hefur ítrekað
brotið á mannréttindum Palestínu-
manna og því þarf að bregðast við.
Stjórnvöld á Íslandi verða að beita
sér fyrir því af fullum krafti að
umsátur og árásir á Palestínu verði
stöðvaðar tafarlaust og að Ísraels-
menn verði látnir svara fyrir það
grimma ofbeldi sem þeir beita Pal-
estínumenn. Ísrael verður að hætta
hernámi, árásum og drápum á Pal-
estínumönnum.
Gaza, ári eftir stríðið
Gríðarlega kostnaðarsamt
að láta bætur fylgja lág-
markslaunum. Þetta sagði
Bjarni Benediktsson 29. maí
2015 á eyjan.is.
Mig langar að tala til
þeirra sem stjórna land-
inu. Reyna að hjálpa þeim
að skilja hvernig sumt fólk
hefur það á Íslandi. Und-
anfarið hafa þessir menn
mætt í fjölmiðla og reynt að
færa rök fyrir því að ekki
sé hægt að bæta kjör þeirra
sem verst hafa það. Það er
jú þannig, að það er hlutverk stjórn-
málamanna að hlusta á fólk. Setja
sig í þess spor og reyna að vinna
fyrir það með því að ráðstafa auð-
lindum og lífsgæðum sem til eru á
hverjum tíma á sem sanngjarnastan
hátt.
Ástæðan fyrir þessum skrifum
er að mér finnst ekki nógu miklu
ráðstafað til þeirra sem eru veikir,
aldraðir eða óvinnufærir. Þetta fólk
á ekki marga áhrifamikla banda-
menn í samfélaginu. Það sést á
kjörum þeirra sem halda mörgum í
faðmi skulda og fátæktar og hefur
oft hræðileg áhrif á sálarlíf fólks,
oft fólks sem er veikt fyrir. Undan-
farið höfum við séð hverja stéttina
á fætur annarri fara í verkfall, og
stór ástæða fyrir því er að fólk á
lágmarkslaunum nær ekki endum
saman. Það er talað um 300.000
króna lágmarkslaun. Að mínu mati
er það of lágt, þá á eftir að greiða
skatta og skyldur. Skatt-
leysismörkin þurfa að vera
300.000 kr. Þá kemur aftur
að öryrkjum, sem Bjarni
og Sigmundur vilja ekkert
fyrir gera, eins og þeir hafa
gefið út.
Ég þekki sjúkling sem
fær 3.097.792 kr. frá Trygg-
ingastofnun og Lífeyrissjóði
VR. Eftir útsvar, tekjuskatt,
útvarpsskatt og slysatrygg-
ingu, 611.697 kr., hefur þessi
einstaklingur 2.486.125
krónur í beinar tekjur á ári.
En eftir það tekur alvaran við. Hús-
næðiskostnaður, lyfjakostnaður,
sérfræðilækniskostnaður, matvara,
sími, internet og samgöngur. Þegar
þetta er sett upp á ársgrundvelli er
ekki mikið eftir, það er ekkert eftir.
Mér hefur reiknast til að viðkom-
andi eigi 633 krónur á dag, en þá má
ekkert óvænt koma upp á.
Ég er með allar tölur tiltækar, ef
einhver efast. Ég sendi þær gjarna á
hvern sem vill.
Niðurlægjandi
Fólk á svona kjörum getur ekki
leyft sér að kaupa ný og betri gler-
augu þegar þau gömlu eru slitin.
Betri dýnu þegar sú gamla er byrj-
uð að valda bakverkjum. Farið til
tannlæknis o.s.frv. Þetta fólk lifir í
fátækt, og fátækt er mjög raunveru-
legur vandi á Íslandi. Æðstu ráða-
menn hundsa þetta fyrir augunum
á okkur öllum. Það væri ekki við
hæfi að standa í svona skrifum nema
koma með hugmynd að lausnum sem
eru bara beint fyrir framan nefið á
okkur. LAUSN númer 1: Það er að
skattleysismörkin verði hækkuð upp
í 300.000 krónur. Hverjum gagnast
það? Jú, það gagnast öllum, sérstak-
lega þeim sem hafa lægstu tekj-
urnar. Lífsgæði manneskjunnar að
ofan myndu batna töluvert, hefði hún
50.979 kr. meira á mánuði. Það gæti
hún fengið ef notuð væri LAUSN
númer 2: Ef opinberu gjöldin væru
felld niður á þá lægst launuðu.
Ofangreind manneskja gæti jafn-
vel keypt afmælis- og jólagjafir
handa barnabörnunum sínum. Eða
farið til tannlæknis án þess að taka
lán fyrir því.
Þá langar mig til þess að enda á
einni kröfu, og það er að hætt verði
að kalla fólk bótaþega. Þetta eru
laun sem við fáum, því flest höfum
við unnið fyrir okkur og fjölskyldum
okkar, allt okkar líf.
Virðingarleysið gagnvart eldri
borgurum þessa lands er svo nið-
urlægjandi að það er með ólíkind-
um. Þetta er fólkið sem hefur byggt
Ísland upp fyrir núverandi og kom-
andi kynslóðir.
Opið bréf til landstjórnarinnar
Íslendingum er almennt
annt um dýr jarðar og þeir
eru fljótir að fordæma illa
meðferð þeirra. Hver man
ekki eftir Lúkasarfári og þá
er það talið dýraníð að drepa
tófu með snæri eða vasahníf
að vopni. Höfum við þó ekki
mikla samúð með dýrbítum.
Það er því einkennileg
þversögn að Íslendingar
skuli taka því sem sjálf-
sögðum hlut að limlesta
og murka lífið úr nokkur
hundruð kindum ár hvert með bif-
reiðum. Eru þær þó ekki ætlaðar til
slíkra hluta og auk þjáninga sauð-
fjárins fylgir mikið eignatjón og
slysahætta á fólki. Sagt hefur verið
að blessuð sauðkindin hafi haldið lífi
í þjóðinni um árhundruð. Það er því
sérlega ómaklegt að fara svona að og
má heita þjóðarskömm.
Auk tjóns á bílum og þján-
inga kindanna, þá er það
ömurleg lífsreynsla öllum
sem lenda í að aka á kind og
limlesta eða drepa. Það er
ekki ósk nokkurs að ferða-
menn sem til landsins koma
hverfi til síns heima með
slíka reynslu í farteskinu.
Sama gildir um ungmenn-
in okkar sem við sendum
óreynd út í umferðina, ekki
viljum við að hver ökuferð
milli landshluta sé þeim sem
rússnesk rúlletta, eða hvað?
Nú hefur fé verið sleppt í sum-
arhaga og víða er það við vegi. Í
byggð er almennt orðið viðunandi
ástand og búfé girt af frá vegum en
flestir fjallvegir liggja hins vegar
um afréttir, meira og minna ógir-
tir. Girðingar eru að sönnu dýrar í
uppsetningu og viðhaldi. En er ekki
betra að eyða fé í girðingar en tjóna-
kostnað?
Þjóðarátaks er þörf. Ef við tökum
okkur nú saman, stjórnvöld, Vega-
gerðin, tryggingafélögin, Bænda-
samtökin og sveitarfélög, þá trúi ég
að hægt sé að gera byltingu og koma
sauðfé að mestu af vegunum á 3 til 5
árum. Væntanlega eru til skráningar
hjá tryggingafélögum og eftir þeim
hægt að vinna, þ.e. byrja að girða
þar sem vandinn er mestur þannig
að árangur skili sér sem hraðast.
Vilji er allt sem þarf, við getum ekki
borið við fjárskorti endalaust.
Dýraníð – þversögn þjóðar
KJARAMÁL
Ragnheiður Lára
Guðjónsdóttir
áhugamaður um
kjör hinna lægst
launuðu
➜ Það er talað um 300.000
króna lágmarkslaun. Að
mínu mati er það of lágt, þá
á eftir að greiða skatta og
skyldur.
UTANRÍKISMÁL
Nazima Kristín
Tamimi
nemi
➜ Stjórnvöld á Íslandi
verða að beita sér fyrir því
af fullum krafti að umsátur
og árásir á Palestínu verði
stöðvaðar tafarlaust og að
Ísraelsmenn verði látnir …
UMFERÐ
Þröstur
Friðfi nnsson
sveitarstjóri
Grýtubakkahrepps
➜ Girðingar eru að sönnu
dýrar í uppsetningu og
viðhaldi. En er ekki betra
að eyða fé í girðingar en
tjónakostnað?
ORKUMÁL
Ögmundur
Jónasson
alþingismaður
KJARAMÁL
Sigurveig Sigur-
jónsdóttir Mýrdal
hjúkrunarfræðing-
ur með M.A. í
siðfræði,
aðstoðardeildar-
stjóri á göngudeild
Kleppi
➜ Ég er ein af þeim
sem hverfa frá starfi
í haust. Það er tap
fyrir Landspítala
sem hefur lagt mikið
í að þjálfa mig. Ég
sætti mig ekki við að
fagstéttin mín sé ein
þeirra örfáu stétta …
➜En Rammaáætlun
samkvæmt hugmynd-
um Hjörleifs átti að
vera hluti af stærri
mynd. Þar var grund-
vallaratriði að byrja
á réttum enda, hve
mikið og til hvers.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
7
-7
A
A
C
1
7
5
7
-7
9
7
0
1
7
5
7
-7
8
3
4
1
7
5
7
-7
6
F
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K