Morgunblaðið - 12.06.2015, Síða 2

Morgunblaðið - 12.06.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ísak Rúnarsson isak@mbl.is „Það er töluvert umstang sem fylgir þessu. Við útbúum sér- stakar brunavarnargötur og varn- argarða en því næst er kveikt í gróðurlendi. Í kjölfarið vinnum við að því að hefta útbreiðslu og slökkva eldinn með aðstoð þyrlu,“ segir Þórður Bogason, slökkviliðs- maður og kennari við Brunavarn- arskóla ríkisins en hann er stadd- ur í Noregi um þessar mundir á námskeiði um skógarelda. Þar hefur hann verið síðan á mánudag en námskeiðið er hvort tveggja bóklegt og verklegt. Verið að horfa til framtíðar Ísland er sennilega ekki best þekkt fyrir að vera skógsælt land en aðspurður segir Þórður að ver- ið sé að horfa til framtíðar. Á und- anförnum árum hafi mikið verið gróðursett en eitthvað sé af eldri skógum í landinu sem geti kviknað í. Hann bætir við að þegar eld- hætta sé til staðar þurfi slökkvilið- ið að vera undirbúið og að næg þekking þurfi að vera til staðar á landinu svo hægt sé að bregðast við þeim aðstæðum sem kunna að koma upp. Að námskeiðinu loknu mun það koma í verkahring Þórðar að út- búa kennsluefni um skógarelda. Þórður segir það nokkuð al- gengt að fulltrúar slökkviliðsins séu sendir á námskeið erlendis. „Bæði Mannvirkjastofnun og slökkvilið hafa verið að senda fólk á námskeið en það er mikilvægt fyrir okkur að þekkja vinnubrögð og læra af því sem gerist í ná- grannalöndunum,“ segir Þórður. Slekkur skógarelda í Noregi  Sækir þjálfun á skógareldanámskeiði Ljósmynd/Þórður Bogason Æfingar Norðmenn eiga þyrlu sem eingöngu fæst við skógarelda. Ákveðið var á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær að breyta skólahaldi á Hvanneyri. Björn Bjarki Þorsteinsson, forseti sveitar- stjórnar, segir að meirihlutinn hafi staðið einhuga að tillögunni en minnihlutinn sat hjá í atkvæða- greiðslu um tillöguna. „Við ætlum að breyta skólahaldi á Hvanneyri frá því sem verið hefur frá sumri 2016,“ segir Björn en á Hvanneyri hefur verið kennsla fyrir 1. til 4. bekk með 25 til 30 nemendur að jafnaði. „Við ætlum að leggja skólann af í þeirri mynd sem hann hefur verið,“ segir hann og bætir við að samtal verði tekið við foreldra- samfélagið um það hvert krakkarnir fari í skóla. Skóli er á Kleppjárns- reykjum, í Borgarnesi og einnig væri hægt að hýsa 1. og 2. bekk í leik- skólahúsnæði á Hvanneyri. „Við erum bara að leita leiða til að hagræða í rekstri okkar. Með því að ná betri framlegð getum við stutt betur við skóla okkar og stofnanir,“ segir hann en um 60 prósent af út- gjöldum sveitarfélagsins fara til fræðslumála, sem er ívið hærra en gengur og gerist í öðrum sveitar- félögum bætir hann við. Sveitarfé- lagið hyggst selja húsnæðið, en einn- ig verður gamli húsmæðraskólinn á Varmalandi seldur og húsið sem nú hýsir tónlistarskóla Borgarfjarðar. Grunnskólanum á Hvann- eyri lokað sumarið 2016  Borgarbyggð selur nokkrar fasteignir sem eru í eigu þess Morgunblaðið/Árni Sæberg Hagræðing Til stendur að breyta skólahaldi á Hvanneyri. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Talsverðar birgðir makrílafurða frá síðustu vertíð eru enn í frysti- geymslum hér á landi, auk þess sem framleiðendur eiga óseldan makríl í geymslum í Hollandi. Hermann Stefánsson, framkvæmdastjóri Ice- land Pelagic, sem er eitt stærsta fyr- irtækið í útflutningi á makríl, áætlar að enn séu óseld hátt í 10 þúsund tonn og verðmætið gæti núna verið yfir milljarð króna, en það hefur lækkað frá því í fyrrahaust. Áætla má að í fyrra hafi verið fryst um 120- 130 þúsund tonn af makríl. Mikil óvissa er um útflutning á makríl í ár og það verð sem fæst fyrir afurðirn- ar, auk þess sem blikur eru á lofti um göngur makríls í sumar. Undanfarin ár hefur makrílvertíð byrjað er líður á júnímánuð, en mikil óvissa er um sölu makríls á næstu mánuðum. Hermann segir að þó svo að markaður sé fyrir hendi í Rúss- landi sé efnahagsástandið erfitt í landinu og rúblan hafi gefið eftir undanfarið. Rússland hafi síðustu ár verið langstærsti markaðurinn fyrir makríl frá Íslandi. Áður hefur komið fram í fréttum að útflytjendur hafi lent í erfiðleikum á síðasta ári í við- skiptum við Rússland vegna gjald- þrota fyrirtækja þar í landi. Talið er að verulegir fjármunir kunni að hafa tapast vegna þessa. Í öðrum tilvikum hafi greiðslur borist seint, en eitt- hvað mun þó hafa skilað sér síðustu mánuði. Innflutningskvótar í Nígeríu Ágætir möguleikar séu á útflutn- ingi til landa í Afríku, eins og verið hefur síðustu ár, og þá einkum til Nígeríu, að sögn Hermanns. Þar sé innflutningskvótum hins vegar út- hlutað á sex mánaða fresti og tvö síð- ustu skipti hafi endanlegir kvótar komið þegar langt hafi verið liðið á tímabilið. Þannig hafi markaðurinn opnast í lok maí fyrir tímabilið frá janúar til júní og kerfið, bæði inn- flytjenda og viðskiptabanka þeirra, sé þanið til hins ýtrasta með miklum innflutningi í júní. Því megi spyrja hversu mikil spurn verði eftir makríl frá Íslandi í júlí eftir mikinn inn- flutning á fiski í júní, það er ef inn- flutningskvótar verði gefnir út. Hátt í 10 þúsund tonn óseld af makríl  Verðmætið meira en milljarður  Óvissa um sölu makríls í sumar Morgunblaðið/Árni Sæberg Makríll Áætla má að í fyrra hafi verið fryst um 120-130 þúsund tonn. Óhapp varð í gær þegar rússneska skólaskipið Kruzenshtern, sem kom til Reykjavíkurhafnar í fyrradag, sigldi úr Reykjavíkurhöfn. Skólaskipið sigldi á Tý, varðskip Landhelgis- gæslunnar, með þeim afleiðingum að Týr skall í varðskipið Þór. Samkvæmt fyrstu upplýsingum frá Landhelgisgæslunni virtust skemmdir á báð- um varðskipunum umtalsverðar og útlit er fyrir að vinna sé framundan við viðgerðir. Morgun- blaðið leitaðist eftir frekari upplýsingum um skemmdir skipanna í gærkvöldi en engin frekari svör fengust frá Landhelgisgæslunni. Óhapp í blíðviðrinu í Reykjavíkurhöfn í gær Ljósmynd/Steingrímur Rússneska skólaskipið sigldi á varðskip Íslendinga Veiðimanni sem féll í Þingvallavatn um hádegisbil í gær er haldið sof- andi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Maðurinn er rúm- lega sjötugur Íslendingur og var hann einn á ferð á veiðistað úti í vatninu en annar veiðimaður nokk- uð frá honum sá þegar hann missti fótanna og datt. Að sögn lögregl- unnar á Suðurlandi óð sá veiðimað- ur þegar í land og hljóp nærri kíló- metra leið að slysstaðnum og óð eftir einstigi út að þeim stað sem maðurinn féll. Náði hann þar til mannsins úti á nokkru dýpi og dró hann til sín og að landi þar sem hann hóf endurlífgunartilraunir. Maðurinn var fluttur meðvitund- arlaus með þyrlu Landhelgisgæsl- unnar á sjúkrahús í Reykjavík. Morgunblaðið/Einar Falur Slys Maðurinn var einn á ferð við veiði. Kældur og haldið sofandi í öndunarvél

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.