Morgunblaðið - 12.06.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015
Í nýju tölublaði Þjóðmála fjallarJakob F. Ásgeirsson um
stjórnarskrármál og varar við því
sem hann kallar nútímavæðingu
stjórnarskráa.
Hann bendir á að hæpið sé aðgera breyt-
ingar eftir tíðar-
anda hverju sinni og
að það sé „regin-
firra að það þurfi að
geirnegla allt sem
viðkemur stjórnar-
háttum í stjórnar-
skrá“. Velheppn-
aðar stjórnarskrár
séu „fáorðar og kjarnyrtar með
rætur í sögu og stjórnarháttum
lands síns“.
Hann tekur fyrir nokkrar afþeim mögulegu breytingum
sem ræddar hafa verið í tengslum
við íslensku stjórnarskrána og seg-
ir til að mynda að það sé „mikil
glámskyggni að halda að friður
skapist um fiskveiðistjórnarkerfið
með því að setja ákvæði í stjórnar-
skrána um að „auðlindir í náttúru
Íslands“ séu „í þjóðareign“ og að
þær beri að „nýta á sjálfbæran hátt
öllum til hagsbóta“.
Þá nefnir hann „nýjasta útspilið,um að brýna nauðsyn beri til
að setja í stjórnarskrána ákvæði um
framsal valdheimilda ríkisins
vegna þátttöku Íslands í alþjóðlegu
samstarfi,“ sem hljómi ekki sann-
færandi.
Og hann bendir á að „við höfumhingað til getað óhindrað tek-
ið þátt í öllu því alþjóðasamstarfi
sem okkur hefur staðið til boða.
Nema ætlunin sé að greiða fyrir
hugsanlegri inngöngu í Evrópu-
sambandið?!“.
Getur verið að sú ástæða búi aðbaki hugmyndinni?
Er ESB-aðild
ástæðan?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 11.6., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 5 skýjað
Akureyri 5 súld
Nuuk 5 léttskýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Ósló 21 heiðskírt
Kaupmannahöfn 16 léttskýjað
Stokkhólmur 18 heiðskírt
Helsinki 16 heiðskírt
Lúxemborg 23 heiðskírt
Brussel 25 heiðskírt
Dublin 12 heiðskírt
Glasgow 21 heiðskírt
London 22 heiðskírt
París 27 heiðskírt
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 23 heiðskírt
Vín 26 léttskýjað
Moskva 18 heiðskírt
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 22 léttskýjað
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 25 léttskýjað
Winnipeg 22 léttskýjað
Montreal 18 alskýjað
New York 28 heiðskírt
Chicago 21 alskýjað
Orlando 27 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
12. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:01 23:55
ÍSAFJÖRÐUR 1:33 25:33
SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16
DJÚPIVOGUR 2:17 23:38
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
Kynntu þér nýjan kjarasamning VR og greiddu
þitt atkvæði rafrænt á Mínum síðum á vr.is.
Kosningu lýkur 22. júní kl. 12 á hádegi.
Þitt atkvæði skiptir máli.
Reykjavíkurborg
hefur gengið frá
samning við Sam-
tökin ’78 um hin-
segin fræðslu í
reykvískum
grunnskólum.
Sóley Tómas-
dóttir, borgar-
fulltrúi Vinstri
grænna, stað-
festir það í sam-
tali við Morgunblaðið.
„Núna, þegar gengið hefur verið
frá flestöllum formlegum réttindum
hinsegin fólks á Íslandi skiptir mjög
miklu máli að við leggjum okkar af
mörkunum til þess að breyta hugar-
fari og menningu þannig að fólk sé
raunverulega frjálst að kynhneigð,
kyngervi og öðru því sem hinsegin
baráttan hefur gengið út á,“ segir
Sóley og bætir við að það verði að
fræða krakka um frelsi þeirra og
fjölbreytileika mannlífsins, og efla
virðingu fyrir því.
„Það er það sem þessi samningur
kemur til með að ganga út á. Við
vonumst til þess að þessi fræðsla
hjálpi okkur í þeim efnum,“ segir
hún en fræðslan hefst líklega í haust.
Hinsegin
fræðsla í
Reykjavík
Samtökin ’78 munu
annast fræðsluna
Ganga Frá Gleði-
göngunni 2013.
Til stendur að bæta við starfsfólki
tímabundið hjá embætti sýslu-
mannsins á höfuðborgarsvæðinu eft-
ir að verkfalli lýkur. „Við erum nátt-
úrlega að sanka að okkur fólki en
bara að leita að vönu fólki sem getur
gengið beint til verka. Við höfum
fengið fólk sem hefur verið áður en
eigum eftir að fá fleiri,“ segir Þór-
ólfur Halldórsson, sýslumaður á höf-
uðborgarsvæðinu. Hinir nýju starfs-
menn verða ráðnir í tímabundin
störf meðan unnið er á þeim fjölda
mála sem safnast hefur upp síðustu
10 vikur meðan á verkfalli lögfræð-
inga hefur staðið. Um fjölda starfs-
manna sem fengnir verða til að að-
stoða segir Þórólfur; „Ég hef nú
ekki tekið það saman en þeir verða
nokkrir.“ Starfsmennirnir eru bæði
sérfræðingar og almennir starfs-
menn, en starfsmönnum embættis-
ins verður jafnframt boðin auka-
vinna.
Þórólfur segir þó verklagið hald-
ast óbreytt. „Þegar lögfræðingarnir
koma aftur til starfa fara fyrstu
klukkutímarnir í að skipuleggja
þetta á hverju sviði. Sviðsstjórarnir
á hverju sviði hafa yfirumsjón með
sínum málaflokkum. Við sem erum
hér núna reynum að undirbúa eins
vel og við getum komu þeirra svo
hægt sé að setja mál í farveg eins
fljótt og kostur er,“ segir Þórólfur.
brynjadogg@mbl.is
Sýslumaður þarf aðstoð eftir verkfall
Fjölga þarf starfsmönnum til að vinna á málabunka eftir að verkfall leysist
Morgunblaðið/Ómar
Sýslumaður Málabunkar bíða.