Morgunblaðið - 12.06.2015, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Flottir bolir
11.900 kr.
36–48Str:
KOLAPORTIÐ
kolaportid.is
Einstök stemning í 26 ár
Opið laugardaga og sunnu
daga
frá kl. 11-17
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Áform eru um að gera upp fyrsta raf-
bílinn, sem notaður var hér á landi.
Bíllinn, sem fluttur var til landsins ár-
ið 1979 hefur verið í geymslu á Egils-
stöðum síðustu ár.
Gísli Gíslason, forstjóri rafbílasöl-
unnar Even, segist hafa byrjað að
leita að bílnum fyrir ári, lengi vel án
árangurs því flestir sem talað var við
töldu að búið væri að farga bílnum.
Nýlega hafi svo komið í ljós að Rósa
Ingólfsdóttir, auglýsingateiknari og
fyrrverandi sjónvarpsþula, hafði
bjargað bílnum og komið honum í
skjól á Egilsstöðum.
„Ég vildi heiðra minningu Gísla
Jónssonar prófessors með því að
bjarga bílnum,“ segir Rósa en Gísli
flutti hann til landsins árið 1979. Rósa
segir bílinn hafa gengið kaupum og
sölum í nokkur ár áður en hún festi
kaup á honum árið 1995 þegar hún rak
augun í hann, illa farinn við girðingu á
Reykjavíkurflugvelli.
Fluttur inn fyrir rúmum 35 árum
Rafbíllinn sem um ræðir er af gerð-
inni Electra Van 500 en hann var flutt-
ur til landsins frá Bandaríkjunum.
Gísli Jónsson prófessor flutti bílinn
inn í þeim tilgangi að kanna hvort
notkun rafbíla hentaði hér á landi.
Sextán rafgeymar knýja bílinn. Hann
vegur 1.066 kg, en tekur einungis þrjá
farþega auk ökumanns. Ein hleðsla
dugir í 50-80 km en drægni nútímaraf-
bíla er allt að 500 km. Ásamt Háskóla
Íslands sýndu fjölmörg fyrirtæki
áhuga á bílnum á sínum tíma og
styrktu Gísla í vegferð sinni fyrir
notkun rafbíla.
Leitar styrkja til lagfæringar
Rósa segir að í mörg ár hafi ekki
fengist fjármagn til að gera bílinn
upp. Gísli leitar nú styrkja til þess en
bíllinn er illa farinn eftir langa ævi.
„Þegar bíllinn er tilbúinn munum við
sýna hann með viðhöfn og reyna að
finna honum varanlegan stað,“ segir
hann.
Gísli segir að einnig standi til að
gera heimildarmynd um verkefnið.
„Ómar Ragnarsson hefur tekið að sér
að vera sögumaður. Við ætlum að
fylgja bílnum eftir frá því hann verð-
ur sóttur, lagaður og gerður upp.“ Að
auki muni myndin fjalla um sögu raf-
bílvæðingar hér á landi. Rósa segir
Ómar hafa fylgst vel með þegar Gísli
Jónsson kynnti bílinn fyrir lands-
mönnum á sínum tíma og njóti Gísli
Gíslason því góðs af því að fá hann
með í gerð myndarinnar.
Mikið verk er fyrir höndum, í ljósi
ástands bílsins. Gísli er þó bjartsýnn
á að innan árs verði hann orðinn
tilbúinn til sýningar. „Af því við telj-
um að rafbílavæðingin sé hafin hér á
landi og fólk endi á rafbílum sem nota
íslenska orku, er gaman að eiga
fyrsta rafbílinn,“ segir Gísli Gíslason
forstjóri.
Rafbíll í endurnýjun líf-
daga eftir langan dvala
Gera bílinn upp í minningu Gísla Jónssonar prófessors
Electra Van 500 Rafbíllinn veður íslenskan snjó. Gísli Jónsson flutti bílinn
inn árið 1979 fyrir atbeina Háskóla Íslands og fjölmargra fyrirtækja.
Illa farinn Bíllinn er í slæmu ástandi eftir viðburðaríka ævi og mikil ferða-
lög landshluta á milli. Hann bíður nú upplyftingar á Egilsstöðum.
Sýningin „Saga líknandi handa“
var opnuð í Guðnýjarstofu í Görð-
um á Akranesi í gær í tilefni þess að
í ár eru liðin 100 ár frá því að konur
fengu kosningarétt á Íslandi.
Ingibjörg Pálmadóttir, bæjar-
fulltrúi á Akranesi, átti frum-
kvæðið að sýningunni og er í for-
svari fyrir henni. Ljósi er varpað á
starf kvenna, sögu líknandi handa,
á árunum 1886 til um 1950 í þeim
tilgangi að heiðra allar konur sem
hafa af fórnfýsi og umhyggju líkn-
að, huggað og grætt mein.
Skyggnst er inn í störf ljósmæðra
og þróun heilbrigðisþjónustu rakin.
Sýndir eru búningar hjúkrunar-
kvenna og koma munir meðal ann-
ars frá Þjóðminjasafninu, Stykkis-
hólmi og Hvammstanga.
Sigurlín Gunnarsdóttir, önnur
tveggja hjúkrunarkvenna sem hófu
störf við opnun Sjúkrahúss Akra-
ness 1952, opnaði sýninguna.
Ljósmynd/Myndasmiðjan
Opnun Regína Ásvaldsóttir bæjarstjóri Akraness, Sigurlín Gunnarsdóttir
yfirhjúkrunakona og Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs klippa borða.
Saga líknandi handa
á Görðum á Akranesi
Sýning um sögu hjúkrunar opnuð
Framkvæmdum á göngu- og hjóla-
stígum við Grensásveg hefur verið
frestað fram til næsta árs. Hjálmar
Sveinsson, formaður skipulagsráðs
Reykjavíkurborgar, segir ástæðuna
vera þá að óhagkvæmt er að fara í út-
boð á stórri aðgerð sem þessari þegar
langt er liðið á árið. „Það næst ekki
hagstætt verð þegar verkið er boðið
út á þessum tíma. Til þess að fá sem
hagstæðasta verðið er nauðsynlegt að
gera þetta sem fyrst á árinu,“ segir
Hjálmar og bætir við að það séu ýms-
ir íbúar í hverfinu sem hafa mikinn
áhuga á að þetta verði gert, þrátt fyrir
að þrengingar á Grensásvegi séu um-
deildar. „Við munum nota tímann til
að rýna í þetta, bæði kostnað og hönn-
unina,“ segir Hjálmar en kostnaður
við framkvæmdir hleypur á 160 til 200
milljónum króna.
Hjálmar segir að farið verði í aðrar
framkvæmdir á hjólastígum, m.a.
verður fyrsti áfangi hjólastígs með-
fram Bústaðavegi frá Reykjanes-
braut að Snorrabraut lengdur.
Morgunblaðið/Ómar
Útboð Besta verðið fæst í ársbyrjun.
Framkvæmdum á
Grensásvegi frestað
Lítil flugvél varð eldsneytislaus yfir
Hellisheiði í gær. Fyrr en varði
drapst á hreyfli vélarinnar en flug-
manninum tókst að lenda á fáförn-
um línuvegi.
Stuttu síðar feykti vindur vélinni
af veginum og út í hraun, með þeim
afleiðingum að hjól féll undan vél-
inni, sem skemmdist nokkuð við
óhappið. Meiðsl flugmannsins voru
hins vegar minniháttar.
Flugvél lenti á vegi
og fauk út í hraun
Níu umsækjendur voru um embætti
forstjóra Matvælastofnunar
(MAST) en umsóknarfrestur rann
út 5. júní sl. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá atvinnuvegaráðu-
neytinu.
Umsækjendurnir eru: Drífa Sig-
fúsdóttir, Guðjón Helgi Egilsson,
Jón Gíslason, Kjartan Hreinsson,
Kristinn Hugason, Ólafur Odd-
geirsson, Reynir Jónsson, Sigur-
borg Daðadóttir og Þorvaldur H.
Þórðarson.
Veita á embættið frá og með 1.
ágúst.
Níu sækja um emb-
ætti forstjóra MAST