Morgunblaðið - 12.06.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015
Hátt kjötinnihald – Ekkert kornmeti
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is – fyrir dýrin þín
Hágæða hunda- og kattafóður
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Það var eins og fleira í lífinu,hrein tilviljun,“ segirReynir Ingibjartsson, höf-undar nýrrar bókar um 25
gönguleiðir á Þingvallasvæðinu,
spurður um aðdraganda bókarinnar.
Um er að ræða gönguleiðir í Þing-
vallaþjóðgarði, umhverfis Þingvalla-
vatn og við fornar og nýjar leiðir til
Þingvalla. Lagt var upp úr því að
leiðirnar lægju í hring svo göngufólk
fengi meira út úr hverri göngu. Með-
algönguleiðirnar eru um 3-6 kíló-
metrar og henta jafnt ungum sem
öldnum. Hverjum gönguhring fylgir
kort með fjölda örnefna sem geyma
sögu svæðisins.
Er þessi bók Reynis um Þing-
vallasvæðið hans sjötta gönguleiða-
bók. Áður hafa komið út 25 göngu-
leiðir á höfuðborgarsvæðinu,
Hvalfjarðarsvæðinu, Reykjanes-
skaganum, Snæfellsnesi og Borg-
arfirðinum, sem gera um 150 göngu-
leiðir alls. „Ég hef það fyrir venju
þegar ég er að velja leiðirnar að fara
hverja leið tvisvar og því eru göng-
urnar orðnar að minnsta kosti 300
talsins,“ segir Reynir léttur í bragði.
Ekki gleyma láglendinu
Reynir segist ekki vilja kynna
sig sem göngugarp enda séu göngu-
leiðirnar hans til þess fallnar að allir
geti gengið þær, hvort sem þeir séu
göngugarpar eður ei. „Við kunningi
minn gerðum eitt sinn með okkur
samkomulag um að hann sæi um
gönguleiðir fyrir fjöllin og ég sæi um
gönguleiðir fyrir láglendið,“ segir
hann um ástæður þess að í bókum
hans séu nær eingöngu leiðir á jafn-
sléttu sem séu nánast öllum færar.
„Það eru allir að klífa fjöll núna og
þá gleymist láglendið svolítið.“
Þá séu til dæmis göngur í kring-
um vötn allra meina bót og hafi góð
áhrif á sálarlífið. Sumar leiðirnar um
Þingvallasvæðið innihalda þó eitt og
eitt fell til að veita víðtækara útsýni.
Tuttugu og fimm nýjar leiðir
„Það er svo merkilegt, það er
eins og þessar bækur hafi verið for-
ritaðar,“ segir Reynir sposkur þegar
talið berst að því af hverju talan 25
hafi hlotið náð höfundar við fjölda
leiða og hvort margar leiðir bíði þess
að líta dagsins ljós. Segir hann engar
gönguleiðir hafi orðið eftir í skúff-
unni þegar bókin var sett saman.
„Ég settist bara með kort og fór að
velja leiðir til að ná þessari breidd,
það er að segja gönguleiðir í þjóð-
garðinum, umhverfis Þingvallavatn-
ið og gömlu leiðirnar að Þingvöllum.
Þegar ég hafði valið leiðirnar þá
endaði það einfaldlega í 25 göngu-
leiðum.“ Segist hann jafnan byrja á
þekktum stað og ganga svo út frá
honum til þess að ná nýjum leiðum
sem enn eru óþekktar. „Ég velti svo
fyrir mér hvort mér hafi hreinlega
verið ætlað að gera þetta enda er
þetta sannkallað draumaverkefni,“
segir Reynir sem hefur frá unga
aldri haft brennandi áhuga á sögu og
landafræði, sem hann nær að sam-
Þarf bara að opna
dyrnar og stíga út
Reynir Ingibjartsson, höfundur fimm gönguleiðabóka um Suðvesturland og Vest-
urland, hefur sent frá sér sjöttu bókina sem er um Þingvallasvæðið. Leiðirnar eru
25 talsins og liggja um Þingvallaþjóðgarðinn, umhverfis Þingvallavatn og við
fornar og nýjar leiðir að Þingvöllum. Ekkert því að vanbúnaði að skunda á Þing-
velli þar sem náttúran og sagan er við hvert fótmál.
Ljósmynd/Kristján Pétursson
Fagurt Þingvellir skarta jafnan sínu fegursta eins og sést á gönguleiðum í
bók Reynis. Tindaskagi sést fjær t.v. og Hrafnabjörg og Kálfstindar t.h.
Ljósmynd/Kristján Pétursson
Sýn Draumasund við Hestvík í gönguleið 17. Fjær sést Búrfell í Grímsnesi.
Unaður og kvöl er sýning
sem skóáhugafólk og
meintir skófíklar
ættu ekki að láta
framhjá sér fara verði
þeir á ferðinni í London
næstu mánuðina. Sýningin Pleasure
and Pain, þar sem gefur að líta skó
frá ýmsum tímabilum, verður opnuð
á morgun í Victoria og Albert-
safninu. Meðal ríflega 200 skópara
eru gullskreyttir sandalar frá tímum
forn-Egypta og margar af ýktustu út-
færslum þessa þarfaþings mann-
kynsins allt til vorra daga.
Sýningarhaldarar leggja áherslu á
að skoða skó út frá menningar- og
tískustraumum í aldanna rás og leit-
ast við að varpa ljósi á hvernig nýj-
asta tækni gerir kleift að hanna og
framleiða skó með sífellt hærri hæl-
um og stórbrotnara sniði. Auk fornra
og sögulegra skópara sem eru til sýn-
is hefur margt fræðgarfólk og skó-
safnarar lánað safninu sína fínustu
skó sem aldrei áður hafa verið til sýn-
is.
Þótt af nógu sé að taka á sýning-
unni er þar aðeins brot af 2.000 para
skósafni V&A, sem spannar um
þrjú þúsund ár. Þar kennir margra
grasa og ekki verður annað séð en
mennirnir hafi frá örófi alda verið
hallir undir öfgar í hönnun fóta-
búnaðar. Sýningin Pleasure and
Pain stendur til 31. janúar 2016.
Eins og alla jafna er vert að gefa
mörgum sýningum í V&A gaum,
t.d. yfirlitssýningu á hönnun
breska fatahönnuðarins Alexander
McQueen heitins, Savage Beauty,
sem stendur til 2. ágúst.
Victoria og Albert-safnið í London
Öfgafullur unaður
og kvöl þar sem
skórinn kreppir
Josephine Baker-skór Þótt söngkonan og dansarinn Josephine Baker (1906-
1975) dansaði oftast berfætt varð hún skóhönnuðinum innblástur árið 1988.
Silkiskór frá 18. öld.
Dæmigerður skóbúnaður
kvenna kringum 1730. Silkiskór með
ávölum hælum og uppbrettri tá.
Tónlistar- og myndlistarhátíðin Ymur
stendur í fyrsta skipti fyrir Tilrauna-
kenndum sólarhring, sem hefst í
kvöld kl. 18, þann 12. júní.
Ymur fer fram í Listagilinu á Akur-
eyri, nánar tiltekið í sal myndlistar-
félagsins og listrýminu Kaktus, þar
sem Populus Tremula var áður til
húsa. Gangur sem liggur út frá sal
myndlistarfélagsins verður einnig
nýttur undir tónleika og gjörn-
ingahald og ef veður leyfir verður
dagskráin færð út á grasblett fyrir
framan. Stefnt verður saman kór-
verkum, elektrónískri tónlist, til-
raunakenndri metaltónlist, vídeólist,
hljóðlist og lifandi gjörningum.
Markmið hátíðarinnar er að stefna
saman mismunandi listformum og
er áhersla lögð á frumraunir, til-
raunir og skapandi flæði en síðast
en ekki síst eru mistök sérlega vel-
komin.
Tilraunakenndur sólar-
hringur í Listagilinu
Mistök sérlega
velkomin