Morgunblaðið - 12.06.2015, Side 12

Morgunblaðið - 12.06.2015, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015 liðin 10–15 ár. Á þessu vori og liðnum vetri hefur hins vegar borið á vís- bendingum um kólnandi skilyrði í hafinu. Þó að of snemmt sé að spá um framhaldið í þessum efnum kann bráðlega að verða hlé á hlýskilyrðum í sjónum við landið. Mikilvægt er því nú sem aldrei fyrr að fylgjast náið með framvindu ástands sjávar í kringum landið til að hægt verði að skýra breytingar í ný- liðun, auk þess sem sveiflur í hita- stigi og hafstraumum hafa afgerandi áhrif á göngur fiskistofna, ekki síst uppsjávarstofnanna,“ segir í formála forstjóra að ástandsskýrslunni. Um humarinn segir að veiðistofn- inn hafi minnkað hratt síðustu ár vegna slakrar nýliðunar og búast megi við frekari minnkun hans á komandi árum. Eldri árgangar hafa verið áberandi í veiðinni á síðustu vertíðum. Óvissa er um loðnuvertíðina næsta vetur, en samkvæmt nýrri aflareglu mun upphafsaflamark vertíðarinnar verða 54 þúsund tonn. Það verður endurskoðað eftir mælingu á veiði- stofninum haustið 2015 og endanleg ráðgjöf um afla fyrir vertíðina verður kynnt eftir mælingu á stærð veiði- stofnsins í byrjun árs 2016. Aflamark í uppsjávarstofnum eins og norsk-íslensku síldarinnar, kol- munna og makríls byggir á ráðgjöf frá Alþjóða hafrannsóknastofnunni, sem gefin er út á haustin. Síldar- stofninn er að veikjast en stofnar makríls og kolmunna eru metnir sterkir. Of snemmt að segja til um göngur makríls Fram kom á fundinum í gær að líf- massi þessara tegunda í Norðaust- ur-Atlantshafi hefði vaxið mjög á síð- ustu árum. Það hefði haft í för með sér aukna samkeppni um fæðu og rými á aðalbeitarsvæðinu milli Nor- egs og Íslands. Spurðir hvað mætti lesa úr frétt- um um að sjórinn við sunnan- og vestanvert landið væri kaldari en í fjölda ára og enn hefði ekkert sést til makríls í lögsögunni í ár var svar sérfræðinga á fundinum að of snemmt væri að segja nokkuð til um göngur makríls í sumar. Ekki mætti draga of miklar ályktanir af þessum fréttum. Vissulega væri sjórinn kaldari en um árabil en eigi að síður væri enn hlýsjávarástand við landið og hitastig við yfirborð sjávar væri fljótt að breytast ef mikið sólfar yrði. Hæsta aflamark frá aldamótum  Aukning í þorski um 10% og ýsu um 20% samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar  Mikill árangur í uppbyggingu þorskstofnsins  Slakari nýliðun nokkurra hlýsjávarstofna  Mikilvægt nú sem aldrei fyrr að fylgjast náið með framvindu ástands sjávar Morgunblaðið/RAX Á réttri leið Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, kynnir skýrslu um ástand nytjastofna við land- ið. Hann segir að gríðarlegur árangur hafi náðst í uppbyggingu þorskstofnsins á síðustu árum. Í fyrra var útflutningsverðmæti sjávarafurða 244 milljarðar króna, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar sem nýlega var greint frá á heimasíðu Sam- taka fyrirtækja í sjávarútvegi. Þorskurinn er verðmætasta tegundin og nam verðmæti hans 89 milljörðum króna, eða um 36% af heildarútflutnings- verðmæti sjávarafurða. Ýsa skilaði um 13 milljörðum, karfi 15 milljörðum og ufsi um 12 milljörðum. Útflutningsverðmæti upp- sjávartegunda eins og síldar, kolmunna, makríls og loðnu nam samtals um 62 millj- örðum. Þar af skilaði makríll um 24 milljörðum og síld 17 milljörðum. Þorskurinn skilar mestu ÚTFLUTNINGSVERÐMÆTI Tillögur um aflahámark Tillögur Hafrannsóknastofnunar í þúsundum tonna Heimild: Hafró Tillaga Tillaga aflamark Tegund 15/16 14/15 14/15 Þorskur 239 218 216 Ýsa 36.4 30.4 30.4 Ufsi 55 58 58 Gullkarfi 51 48 45.6 Litlikarfi 1.5 1.5 1.5 Djúpkarfi 10 10 10 Úthafskarfi — 10 — Grálúða 22 25 25 Skarkoli 6.5 7 7 Sandkoli 0.5 1 1 Skrápflúra — — 0 Langlúra 1.1 1.1 1.1 Þykkvalúra 1.3 1.6 1.6 Hlýri 0.9 0.9 - Steinbítur 8.2 7.5 7.5 Síld 71 83 82 Vorgotsíld Haust ICES 283 — Loðna Upphafskvóti 54 580 580 Kolmunni Haust ICES 840 1260 Makríll Haust ICES 906 — Gulldepla 30 30 — Blálanga 2.6 3.1 3.1 Langa 16.2 14.3 13.8 Keila 3.4 4 3.7 Gulllax 8 8 8 Skötuselur 1 1 1 Hrognkelsi, könnun mars 2.04 6.2 - Humar 1.5 1.65 1.65 Rækja-gr.sl. könnun haust 0.9 1.9 2.1 Rækja-dj.sl. 4 5 5 Hörpudiskur 0 0 0 Kúfskel 32.5 31.5 — Beitukóngur 0.75 0.75 — Hrefna — 229 229 Langreyður — 154 154 BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hafrannsóknastofnun leggur til 21 þúsund tonna aukningu í aflamarki á þorski á næsta fiskveiðiári, aflinn fari úr 218 þúsund tonnum í 239 þús- und tonn, eða upp um tæplega 10%. Þetta er mesta aflamark frá alda- mótum, er aflamarkið var 250 þús- und tonn, og er þess að vænta að við- miðunarstofn þorsks haldist að svipaðri stærð fram til 2019. Í ýsu er lögð til tæplega 20% aukning afla- marks, afli fari úr rúmlega 30 þúsund tonnum í rúm 36 þúsund tonn, sam- kvæmt aflareglu. Af fleiri mikilvæg- um tegundum þar sem aukið afla- mark er lagt til má nefna gullkarfa, steinbít og löngu. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, kynnti í gær tillögur stofnunarinnar um afla- mark á næsta fiskveiðiári og ástandsskýrslu stofnunarinnar. Hann sagði að gríðarlegur árangur hefði náðst í uppbyggingu þorsk- stofnsins með samstilltu átaki. Fyrir nokkrum árum hefði verið dregið úr veiðiálagi vegna lélegrar nýliðunar, en það lækkaði úr um 40% árið 2000 í um 20% á síðustu árum. Fyrir vikið entust árgangar lengur í stofninum og hlutfall eldri fisks í afla hefði farið vaxandi. Veiðanleiki hefði aukist mikið. Nú væru menn farnir að uppskera árangur af hóflegri sókn samkvæmt aflareglu frá árinu 2007 og sterkari árgangar væru að koma inn í stofn- inn. Hann sagði ástand flestra mikil- vægustu fiskistofna vera vel ásættanlegt. Jóhann lagði áherslu á að aflareglu væri fylgt með langtímanýtingu í huga, en nú eru þorskur, ýsa, ufsi og gullkarfi í aflareglu og loðna frá og með þessu ári. Formleg mótun nýt- ingarstefnu og setning aflareglu til nokkurra ára væru lykilþættir við stjórn fiskveiða sem nú væru gerðar kröfur um á alþjóðavettvangi. Á þann hátt skapaðist stöðugleiki sem gæfi efnahagslegan ávinning. Viðmiðunarstofn þorsks í árs- byrjun 2015 er metinn 1.302 þúsund tonn og hrygningarstofninn 547 þús- und tonn. Viðmiðunarstofninn hefur stækkað um meira en 50% á síðustu átta árum og er nú metinn stærri en hann hefur verið undanfarna þrjá áratugi. Hrygningarstofninn er meira en tvöfalt stærri en hann var lengst af síðustu áratugina. Stærð árgangsins frá 2014 er nokkuð yfir meðaltali. Um ýsuna sagði Jóhann að eftir sex lélega árganga hefði komið sterkur árgangur í fyrra. Stofnstærð þriggja ára og eldri ýsu í upphafi árs 2015 væri metin 112 þúsund tonn, og hrygningarstofn 78 þúsund. Stofn- matið nú bendir til heldur betra ástands stofnsins en matið 2014, seg- ir í ástandsskýrslunni. Breytt umhverfisskilyrði Staða íslensku sumargotssíldar- innar er metin mun veikari en talið var í fyrra. Fram kemur í skýrslunni að sterkar vísbendingar séu um að nýliðun í stofninum sé léleg og leiðir það til lækkaðrar tillögu um afla- mark á komandi vertíð. Nýliðun nokkurra stofna hefur minnkað á síðustu árum, einkum stofna sem að mestu halda sig í hlýj- um sjó við suður- og vesturströndina. Þannig eru versnandi horfur í keilu, löngu, blálöngu, skötusel, langlúru, humri og fleiri tegundum. „Ástæður fyrir þessari neikvæðu þróun í nýliðun margra stofna eru ekki þekktar en nærtækast er að leita skýringa í breyttum umhverfis- skilyrðum í hafinu við Ísland síðast- Sigurður Ingi Jóhannsson sjávar- útvegsráðherra mun á næstu dögum kynna aflaráðgjöf Haf- rannsóknastofnunar í ríkisstjórn og ræða við hagsmunaaðila. Að því búnu tilkynnir hann ákvörðun sína um aflahámark, en hann hefur í tvö síðustu skipti nánast í öllu fylgt ráðgjöfinni. Sigurður segir að í ráðgjöfinni felist mjög ánægjuleg tíðindi og það sé sömuleiðis ánægjulegt að líta yfir farinn veg og sjá hverju ákvarðanir fyrri sjávarútvegs- ráðherra hafi skilað. „Þetta sýnir okkur að öflug vísindi, góðar mælingar, skynsamlegar ákvarð- anir stjórnmálamanna og stuðn- ingur greinarinnar eru lykilatriði við að byggja upp stofna,“ sagði Sigurður Ingi. Fyrr í vikunni kynnti ráðherra í ríkisstjórn ákvörðun sína um að framlengja 20% aflareglu í þorski og jafn- framt að hún sætti endur- skoðun á fimm ára fresti. Á fundi með sérfræðingum Hafrannsókna- stofnunar og ráðherra í gær var m.a. rætt um göngur makríls og ástandið í sjónum. „Það er nokkur óvissa uppi og þó að við séum enn inni í hlýsjávarskeiði eru vísbendingar um að það sé að kólna. Hvað það þýðir vitum við ekki og við höfum ekki nein- ar sögulegar upplýsingar um hegðun stofns eins og makríls, sem við þekkjum þar fyrir utan ekki nógu mikið,“ sagði Sigurður Ingi. Hefur fylgt aflaráðgjöf ÁKVÖRÐUN RÁÐHERRA FLJÓTLEGA Sigurður Ingi Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.