Morgunblaðið - 12.06.2015, Qupperneq 23
23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015
Risi Rússneska skútan sem hvílt hefur við Reykjavíkurhöfn er mikill risi og möstur hennar gnæfa sem listaverk yfir byggingar í miðbænum, Alþingishúsið, Iðnó og Dómkirkjuna.
Árni Sæberg
Um síðustu helgi var
skýrt frá því að 50
þingmenn Íhalds-
flokksins í Bretlandi, á
þinginu í London og
ESB-þinginu, hefðu
tekið höndum saman
og myndað hóp undir
nafninu Conservatives
for Britain (CfB) –
Íhaldsmenn í þágu
Bretlands. Þeir ætluðu
að styðja David Came-
ron, leiðtoga flokks síns og forsætis-
ráðherra, í tilraunum hans til að
semja um betri aðildarkjör Breta að
ESB. Mistækist forsætisráð-
herranum hins vegar að knýja fram
„raunverulega róttækar breytingar“
sögðust þingmennirnir ætla að taka
höndum saman við „nei-hópinn“ í
þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-
aðild Breta sem verður í síðasta lagi
fyrir árslok 2017.
David Cameron brást við þessum
nýja félagsskap þingmanna úr eigin
flokki með eftirfarandi orðum á
blaðamannafundi í tengslum við G7-
leiðtogafundinn í Bæjaralandi
sunnudaginn 7. júní: „Vilji maður
sitja í ríkisstjórninni verður hann að
hafa þá skoðun að fyrir okkur liggi
að gera nýjan samning til að efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu og að niður-
staðan verði viðunandi.“
Daginn eftir sagðist Cameron
ekki hafa sett ráðherrum sínum þá
agareglu að vildi einhver þeirra
berjast gegn aðild að Evrópusam-
bandinu í komandi þjóðaratkvæða-
greiðslu yrði hann að
hverfa úr ráðherra-
stóli. Brást hann þar
við túlkun fjölmiðla á
hans eigin orðum og
þótti álitsgjöfum hann
hafa haldið illa á mál-
um, hann hefði í raun
bannað ráðherrum að
berjast gegn ESB-
aðild.
Rök forsætisráð-
herrans eru að yfirlýst
andstaða ráðherra við
aðild að ESB gefi til
kynna að þeir treysti
honum ekki til að ná viðunandi ár-
angri í viðræðunum við ESB. Vandi
hans er að innan stjórnar hans eru
sumir að minnsta kosti mjög opnir
fyrir því að segja nei við áframhald-
andi aðild að ESB. Hafi hann í hót-
unum við þá getur það reynst dýr-
keypt.
Krefjist Cameron ESB-stuðnings
af ráðherrum sínum fer hann aðra
leið en sósíalistinn Harold Wilson,
þáverandi forsætisráðherra Breta,
fyrir réttum 40 árum þegar Bretar
kusu fyrst um aðild, þá að Evrópu-
bandalaginu (EB) sem bar allt annað
svipmót en Evrópusambandið
(ESB) þótt kjölurinn sé hinn sami.
Wilson batt ekki hendur ráðherra
sinna og kusu þeir sem voru lengst
til vinstri innan Verkamannaflokks-
ins, Tony Benn, Michael Foot og
Barbara Castle, gegn EB. Margaret
Thatcher var þá leiðtogi Íhalds-
flokksins og studdi aðild að EB,
einkum með vísan til friðar og ör-
yggis. Var EB-aðildin staðfest með
67,2% atkvæða.
Íhaldssemi Lúxemborgara
David Cameron ætlaði að skapa
frið innan Íhaldsflokksins með því að
veðja á þjóðaratkvæðagreiðslu. Það
tekst greinilega ekki. Ferlið sjálft er
honum hættulegt hver svo sem úr-
slitin verða.
Ráðgefandi þjóðaratkvæða-
greiðsla var í Lúxemborg sunnudag-
inn 7. júní. Ríkisstjórn þriggja
flokka, frjálslyndra, sósíalista og
umhverfissinna, settist þar að völd-
um haustið 2013 undir forsæti Xav-
iers Bettels eftir að Jean-Claude
Juncker, kristilegur sósíalisti, hafði
verið forsætisráðherra í 19 ár (hann
er nú forseti framkvæmdastjórnar
ESB). Nýja stjórnin taldi nauðsyn-
legt að lofta út og lagði í því skyni
þrjár spurningar fyrir þjóðina: (1)
hvort útlendingar sem hefðu búið í
Lúxemborg í 10 ár eða lengur
mættu kjósa til þings, (2) hvort
lækka ætti kosningaaldur úr 18 í 16
ár og (3) hvort setja ætti bann við
því að sami forsætisráðherra sæti
lengur en 10 ár.
Í Lúxemborg er lögskylt að nýta
kosningarétt sinn. Svörin voru skýr:
aðeins 21,98% vildu kosningarétt út-
lendinga, 19,3% vildu lækka kosn-
ingaaldur og 30,07% setja þak á
starfsár forsætisráðherrans.
Úrslitin urðu stjórnarflokkunum
áfall. Forsætisráðherrann var þó
fljótur að taka fram að þetta breytti
engu um stjórnarsamstarfið eða
setu sína enda hefði engin spurning-
anna snúist um sig. Ýmsir aðrir
töldu eðlilegt að hann segði af sér.
Hinn 1. janúar 2013 voru íbúar
Lúxemborgar 537.039 (55,5%
Lúxemborgarar og 44,5% með er-
lendan ríkisborgararétt). Hefði til-
lagan um kosningarétt útlendinga
hlotið samþykki hefði kjósendum á
kjörskrá í þingkosningum fjölgað
um 35.000
Hinn mikli fjöldi erlendra skatt-
greiðenda í Lúxemborg án ríkis-
borgararéttar bendir til að nálar-
augað inn í þetta auðuga ríki sé
þröngt. Forystumenn landsins hafa
löngum verið í hópi áköfustu tals-
manna aukins evrópsks samruna.
Lúxemborgarar vilja þó halda fast
utan um sitt og jafnframt sérstöðu í
skattamálum til að laða að sem mest
fjármagn.
Vandrötuð braut
Ríkjandi stjórnvöld ráða oft litlu
um niðurstöðu þjóðaratkvæða-
greiðslu, eins og sannaðist í Lúxem-
borg og tvisvar hér á landi í Icesave-
atkvæðagreiðslum.
Þegar David Cameron kynnti að
næði hann endurkjöri í þingkosn-
ingum árið 2015 yrði kosið um aðild
Breta að ESB í síðasta lagi 2017 vildi
hann styrkja stöðu sína innan eigin
flokks og gagnvart öðrum sem hafa
horn í síðu ESB-aðildar Breta. Það
var ekki fyrr en kosninganóttina
hinn 7. maí 2015 að við honum blasti
að hrinda þessu fyrirheiti í fram-
kvæmd. Snýst málið nú í höndum
hans?
Vilji nýrrar ríkisstjórnar í Lúxem-
borg eftir 19 ára forsæti Jean-
Claudes Junckers til að breyta
stjórnarskránni birtist í spurning-
unum þremur hér að ofan. Ríkis-
stjórnin veðjaði á vitlausan hest, til-
lögur hennar voru kæfðar í fæðingu.
Hinn 16. júlí 2009 hafnaði naumur
meirihluti þingmanna tillögu sjálf-
stæðismanna um að þjóðin ætti síð-
asta orðið um hvort sótt yrði um að-
ild að ESB. Meirihlutinn fór villur
vega, umsóknin rann út í sandinn.
Nú vill hins vegar enginn flokkur að
haldið verði áfram að ræða við ESB
án þjóðaratkvæðagreiðslu. Þeir hafa
kúvent sem höfnuðu tillögunni um
þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2009.
Ekki verður gerð krafa til þeirra
sem vilja alls engar viðræður við
ESB að þeir leggi til að viðræðum
verði fram haldið!
Á leiðinni frá 2009 hefur skýrst að
sá sem vill ræða áfram við ESB
verður að vilja afsala sér ráðum yfir
200 mílunum. Hver vill það? Verði
einhvern tíma greitt þjóðaratkvæði
um ESB-viðræður hér á landi ber
tillögumönnum fyrst að svara þess-
ari spurningu. Nálaraugað inn í
ESB þrengdist við hina misheppn-
uðu umsóknartilraun. Að veðja ekki
á þjóðaratkvæðagreiðslu á réttum
tíma dregur einnig dilk á eftir sér.
Eftir Björn
Bjarnason »Ríkjandi stjórnvöld
ráða oft litlu um
niðurstöðu þjóðarat-
kvæðagreiðslu, það
sannaðist í Lúxemborg
og tvisvar hér á landi í
Icesave-atkvæða-
greiðslum.
Björn
Bjarnason
Höfundur er fyrrv. ráðherra.
Að veðja á þjóðaratkvæðagreiðslu