Morgunblaðið - 12.06.2015, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2015
Sigurpáll Geir Sveinsson er íþróttastjóri hjá Golfklúbbi Mosfells-bæjar, sem varð til við sameiningu Golfklúbbs Kjalar og Bakka-kots í byrjun ársins. „Helsta breytingin er að golfklúbburinn er
kominn með tvo velli og Davíð Gunnlaugsson er í fullu starfi með mér
yfir sumartímann og svo eru þrír aðrir sjálfstætt starfandi í golf-
kennslu. Félagar í golfklúbbnum hafa því aðgang að fimm kennurum.
Þótt það sé rólegra hjá okkur yfir vetrartímann eru golfarar orðnir
meðvitaðri um að það þýðir ekki að mæta í golfkennslu 15. maí og
halda að maður sé tilbúinn í golfið 1. júní. Það tekur tíma að venjast
breyttum hreyfingum og veturinn er tíminn til að sækja golfkennslu.“
Sigurpáll varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari í golfi en hefur lítið
keppt undanfarið. „Þegar maður er í fullu starfi við að kenna er tank-
urinn búinn til að undirbúa sig fyrir keppnismót. Ég hef enga löngun
til að spila meðal þeirra bestu og vera ekki að berjast meðal þeirra
bestu. Ég spila samt með félögum mínum og tek eitt og eitt mót.“
Þegar golfinu sleppir hefur Sigurpáll áhuga á skotveiði. „Ég nota
sumarfríin á haustin í að eltast við gæsir, endur og rjúpur. Það á hug
minn allan á haustin.
Í tilefni dagsins ætla ég að fara út að borða á góðum stað og fara
svo á Ísland-Tékkland um kvöldið. Svo ætla ég að halda opið golfmót á
Hellishólum í Fljótshlíð 29. ágúst sem heitir Afmælismót Sigga Palla.“
Á Hlíðavelli Sigurpáll á öðrum af tveimur golfvöllum Mosfellinga.
Heldur afmælismót í
haust á Hellishólum
Sigurpáll Geir Sveinsson er fertugur í dag
S
igríður Auður fæddist í
Reykjavík 12.6. 1965 og
ólst upp í Vesturbænum
og síðar á Seltjarnar-
nesi: „Ég á því rætur að
rekja í Vesturbæinn en þar átti
hún Sigríður, amma mín, heima.
Ég er skírð í höfuðið á henni.
Amma Sigga var greind, vel les-
in og skemmtileg kona sem ég
tengdist sterkum böndum. Hún
vildi allt fyrir barnabörnin sín gera
og gætti þess að við kynntumst vel.
Á sumrin fór fjölskyldan mikið
upp í Borgarfjörð, en þar átti
amma sumarhúsið Árdal. Þar var
gott að vera, fallegur staður og nóg
hægt að hafa fyrir stafni, eins og
að klifra á fjöll og vaða í ám. Stór-
fjölskyldan átti þarna góðan sama-
stað.“
En Sigríður Auður átti einnig
samastað fyrir norðan: „Ég átti
mjög góðar stundir í Eyjafirði þar
sem afi minn og amma í föðurætt,
Helgi og Gunnfríður, voru bændur.
Það er ómetanlegt að hafa kynnst
því að vera í sveit. Þegar amma og
afi fluttu til Akureyrar eftir að þau
hættu búskap var ég mikið hjá
þeim á sumrin. Í minningunni var
alltaf sól á Akureyri. Amma Gunn-
fríður var mikill listamaður. Hún
prjónaði, bakaði og allt lék í hönd-
unum á henni, kanilsnúðarnir
hennar eru mér enn í fersku minni.
Afi var bókasafnari og ættfræði-
áhugamaður. Hann sagði mér ótal
sögur af fólki og miðlaði fróðleik
um ættir og uppruna sem ég kunni
nú ekki alveg að meta á þeim
tíma.“
Sigríður Auður Arnardóttir ráðuneytisstjóri – 50 ára
Fjölskyldan Sigríður Auður og Vilhjálmur Örn með dóttur sinni, Unni Svölu, í sólinni í Marthe- hérði á Ítalíu 2013.
Nýtur frelsis á fjöllum
Í Washington Sigríður og Unnur heimsækja Svölu, móðursystur Sigríðar.
Reykjavík Þorlákur Máni
Snæbjörnsson fæddist 16.
apríl 2015 kl. 10.14. Hann vó
3.410 g og var 50 cm langur.
Foreldrar hans eru Sigurlaug
Lára Sigurgeirsdóttir og
Snæbjörn Marinó Reynisson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Þýskar hágæða pönnur frá AMT
Allt fyrir eldhúsið
• AMT eru hágæða pönnur úr 9mm þykku áli.
• Allar pönnur mega fara inn í ofn við allt að 240° hita.
• 3 ára ábyrgð á verpingu.
• Ný byltingakennd viðloðunarfrí húð sem er sterkari
en Teflon og án eiturefna.
• Nothæf fyrir allar eldavélar.
• Má setja í
uppþvottavél.
Íslenska og þýska
kokkalandsliðið nota
AMT pönnur.
WORLD’S
BESTPAN
„
“
THE
* “The world‘s best pan”according to VKD, largest German Chefs Association
*
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–17, laugard. kl. 11-14.