Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.06.2015, Qupperneq 22
Morgunblaðið/Ómar
M
aría Ögn Guðmunds-
dóttir er ein af okkar
fremstu hjólreiðagörp-
um. Hún telur þann
aukna vöxt sem færst hefur í
hjólamenningu hér á landi síðustu
ár stafa af almennri vakningu
fyrir almenningsíþróttum. „Hjól-
reiðar eru afskaplega hentugar
að því leyti að það geta allir
hjólað. Sama hvort þú ert of
þung/ur eða með verk í hnjánum,
þér líður vel með þig. Upplifunin
af útivistinni er svo mikil. Svo er
þetta fjölskyldusport.“ María seg-
ir borgina hafa gert vel að und-
anförnu við að koma til móts við
þarfir hjólreiðafólks og ábend-
ingar frá þeim hafi verið teknar
til greina. „Það er ekki hægt að
ætlast til þess að gera allt í
einu. Það þarf að skipuleggja
hverfi og þeir sem sjá um þessar
framkvæmdir þurfa að sjálfsögðu
að reka sig á, sjá hvað er að
virka og hvað ekki.“
Mikil tæknigrein
María segist finna fyrir þessum
aukna áhuga í hjólaþjálfuninni
hjá sér. „Það eru sífellt fleiri að
byrja að hjóla. Það eru alltaf að
koma nýliðar. Þú lærir kannski
að hjóla þegar þú ert þriggja ára
en maður kann ekkiendilega að
hjóla. Þetta er mikil tæknigrein.“
Námskeiðin hjá Maríu henta öll-
um segir hún, þetta er ekki ein-
göngu fyrir keppisfólk. „Ég var
til dæmis með saumaklúbb um
daginn“, segir hún. „Það eina
sem þarf er að vera með hjól og
hjálm.“
María mælir með því að fólk
fái sér hjól við hæfi. „Þetta fer
eftir því hvað maður ætlar sér,
hvar maður býr og hvernig að-
stæður eru. Hjólreiðar eru nú
bara þannig að það er hægt að
kaupa endalaust en svo er líka
hægt að vera glaður með það
sem maður hefur. Þú kemst alla
leið ef þér sýnist svo. Það er
bara gleðilegt að sjá fólk á hjóli
sama hvernig það er búið.“
María Ögn Guðmundsdóttir hvetur fólk til að velja sér hjól við hæfi, miðað við í hvað á að nota hjólið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HEILNÆMT FJÖLSKYLDUSPORT
Hjól og hjálm-
ur allt sem þarf
HJÓLAÞJÁLFARINN MARÍA ÖGN GUÐMUNDSDÓTTIR
HEFUR VERIÐ ÖTUL VIÐ AÐ KYNNA HJÓLREIÐAR
MEÐ NÁMSKEIÐUM OG FYRIRLESTRARHALDI.
Kjartan Már Ómarsson kmo@mbl.is
Fleiri og fleiri konur æfa hjólreiðar og keppa í hjólreiðum hér á landi.
María segir mikla grósku í hjóla-
menningunni og margt í boði fyrir
áhugasama. Keppnistímabilið
stendur frá lok apríl fram í byrjun
september og segist María hafa
keppt í allt að tuttugu og tveimur
mótum á ári síðastliðin fjögur,
fimm ár. Bláalónsþrautin er haldin í
tuttugasta sinn í dag, þann 13. júní.
Hún er stærsta hjólreiðakeppnin
sem haldin er á Íslandi og taka að
jafnaði 6-700 manns þátt ár hvert.
Þess er gaman að geta að árið
1996 voru aðeins tólf keppendur,
svo greina má aukinn hjólreiða-
áhuga landsmanna á þátttökutöl-
unum. Hjólað er sextíu kílómetra
leið frá Hafnarfirði til Grindavíkur
eftir Djúpavatnsleið. Keppt er í
fimm aldursflokkum, ásamt því
sem boðið er upp á liðakeppni og
fyrirtækjakeppni. María segir þetta
sögulegustu hjólreiðakeppni lands-
ins og alls konar fólk taki þátt.
„Sumir eru að keppa og aðrir að
njóta góðs dags. Þetta er oft að-
almarkmið hjólreiðafólks, sam-
bærilegt því þegar fólk setur sér
markmið að hlaupa Reykjavíkur-
maraþonið. Fólk getur bara sett
sér markmið eftir getu.“ María
hefur unnið Blálónsþrautina fimm
sinnum og þykir mikill heiður að,
segir hún.
Hjólakross
„Ég er að flytja inn konu í keppnina
sem er ein besta hjólreiðakona í
heimi. Hún heitir Katy Compton
og er bandarísk.“ Katy sérhæfir sig
í svokölluðu hjólakrossi (e. cyclo-
cross) og er marfaldur heims-
meistari í þeirri grein. Þar að auki
hefur hún unnið Ameríkuverðu-
launin í geininni ellefu sinnum síð-
ustu þrettán ár. „Þetta er svona
vetrarhjólreiðagrein sem keppt er
í um allan heim“, segir María. Hjól-
in sem maður er á eru mitt á milli
þess að vera götuhjól og fjallahjól.
Þetta eru götuhjól, með götugírum
og hrútastýri en á grófari og
breiðari dekkjum. „Þetta fer þann-
ig fram að þú hjólar í fjörutíu og
fimm mínútur, eins marga hringi og
þú getur, og brautin má ekki vera
lengri en tveir kílómetrar. Af og til
þarftu svo að hoppa af hjólinu og
fara yfir hindranir og slíkt.“ María
gerir ráð fyrir að þurfa að lúta í
lægra haldi fyrir Compton í Bláa-
lónsþrautinni í ár. „Hún er alveg
svakaleg og gaman að hún geti
komið til þess að taka þátt.“
Morgunblaðið/Ómar
MARGT Í BOÐI FYRIR ÁHUGASAMA
Bláalónsþrautin
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.6. 2015
Heilsa og hreyfing
Þótt sumar sé er um að gera að minna nýgræðinga í fjallgöngum á að þegar svalara er í veðri
er best að vera í ull næst sér en ekki bómull. Til dæmis er gott að vera í þunnum bolum úr ull-
ar- og silkiböndu. Bómull rennblotnar þegar maður svitnar og setur þá að manni kuldahroll í
pásum. Þótt ullin botni í göngum er hún samt áfram hlý.
Ullina í fjallgöngur
Göngugreining
Pantaðu
tíma
í síma
5173900
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Vandamál sem göngugreining Flexor getur
hjálpað til við að leysa eru til dæmis:
• þreytuverkir og pirringur í fótum
• verkir í hnjám
• sársauki eða eymsli í hælum
(hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.)
• beinhimnubólga
• óþægindi eða verkir í baki
og/eða mjöðmum
• verkir í tábergi og/eða iljum
• hásinavandamál
• óþægindi í ökklum
• þreytu- og álagsverkir
hjá börnum og unglingum