Bókasafnið - 01.05.2012, Blaðsíða 3
bókasafnið 36. árg. 2012
Efnisyfirlit
4 Gróa Finnsdóttir
Af bókum og brettum. Mótsagnakenndar hugleiðingar
8 Kristín Bragadóttir
Hrappseyjarprentsmiðja
16 Christina Tovoté
NordINFOLIT – tíu ára afmæli og breytingar
18 Ímyndarhópur Upplýsingar og SBU
Ímynd bókasafns- og upplýsingafræðinga
22 Einar Ólafsson
Við erum hætt að vera svona hæversk.
Viðtal við Önnu Torfadóttur
26 Sveinbjörg Sveinsdóttir
leitir.is … og þér munuð finna
31 Sigurður Örn Guðbjörnsson
Fimm dagar í bókaheimi. Mannfræðingur og
bókavörður í Frankfurt
34 Siggerður Ólöf Sigurðardóttir og Anna Björg Sveinsdóttir
Hugleiðingar um skólasöfn grunnskólanna og
Félag fagfólks á skólasöfnum
Frá ritstjóra
Einhvern tíma kom það til tals í ritnefnd Bókasafnsins eftir að undirritaður tók við ritstjórn, að langt væri síðan fjallað hefði verið um skólasöfn
í blaðinu, það er að segja önnur en háskólabókasöfn. Það er því ánægjulegt að í þessu blaði eru tvær greinar um þetta málefni. Það er
ástæðulaust að gera upp á milli mismunandi tegunda bókasafna hvað mikilvægi varðar, en víst er að mikilvægi skólabókasafna verður seint
ofmetið og mikils um vert að þar sé fagmennska í fyrirrúmi. Á það er lögð áhersla í þessum tveimur greinum, fagmennsku, samstarf fagaðila
og viðurkenningu fagfólksins.
Í fyrra var í Bókasafninu grein í tilefni af 50 ára afmæli Bókavarðafélags Íslands og bar hún titilinn „Á leið til fagstéttar“. Vikið var að
fagþróuninni í grein í sama blaði um „upplýsingaarkitektúr“. Hin faglega staða og ímynd hefur verið talsvert til umræðu að undanförnu og
haustið 2010 tók til starfa Ímyndarhópur Upplýsingar og SBU. Niðurstöður úr vinnu hópsins er birtar í þessu blaði.
Almenningsbókasöfn eru megin viðfangsefnið í viðtali og tveimur greinum. Í annarri greininni er fjallað um starfsánægju á
almenningsbókasöfnum. Í viðtali við Önnu Torfadóttur, fráfarandi borgarbókavörð í Reykjavík, er farið yfir þróun Borgarbókasafns Reykjavíkur,
sem verður níutíu ára á næsta ári, og breytt viðhorf og tækniþróun í almenningsbókasöfnum og upplýsingamálum. Þar er vikið að samstarfi
og vinnusmiðjum almenningsbókasafna á Norðurlöndum sem nánar er fjallað um í sérstakri grein. Einnig víkur Anna að tilkomu leitarvefsins
leitir.is, en um hann er nánar fjallað í annarri grein. Þá er einnig grein um norrænt samstarf um upplýsingalæsi, NordINFOLIT.
Hugleiðing er um kosti og galla nýjustu tækni í bókaútgáfu, rafbókanna, en jafnframt leitum við langleiðina til upphafsins í bókaútgáfu
hérlendis með ítarlegri grein um Hrappseyjarprent. Sú var tíð að bókavinir merktu bækur sínar með fagurlega skreyttum bókamerkjum, Ex
libris. Um þau er fjallað í blaðinu en þeirri spurningu látið ósvarað hvort hugsanlega verði til einhvers konar rafræn bókamerki – eða hvernig
verður bókaeign háttað í framtíðinni? En hvert sem hið tæknilega form verður, þá munu bókmenntirnar lifa, og um þær er að venju fjallað í
greinum undir yfirskriftinni Bækur og líf, en síðast en ekki síst er litið við á bókamessunni miklu í Frankfurt þar sem íslenskar bókmenntir
skipuðu heiðursess í fyrra.
Þetta er síðasta hefti Bókasafnsins sem ég ritstýri og þakka ég félögum mínum í ritnefnd, sem nú heitir reyndar útgáfunefnd, fyrir gott
samstarf og óska þeim sem áfram sitja og við taka velfarnaðar.
Einar Ólafsson
Útgefandi: Upplýsing. Félag bókasafns- og upplýsingafræða
Lyngási 18 | 210 Garðabæ | Sími 864-6220 | Netfang: upplysing@upplysing.is
Veffang: www.upplysing.is
Prentun: GuðjónÓ – vistvæn prentsmiðja
Á forsíðunni er mynd af bókamerki, „Ex libris“, og er það fengið úr safni Snæs
Jóhannessonar.
Limrur eru eftir Ingva Þór Kormáksson.
Bókasafnið • 36. árgangur
maí 2012 • ISSN 0257-6775
41 Ragnhildur Sigríður Birgisdóttir
Starfsánægja á almenningsbókasöfnum.
Eigindleg rannsókn á starfsánægju starfsmanna
almenningsbókasafna á Stór-Reykjavíkursvæðinu
45 Halla Ingibjörg Svavarsdóttir
Er vilji allt sem þarf? Skólasafnið og samstarf bókasafns-
og upplýsingafræðinga, fagaðila í tölvum og kennara
50 Arnar Óðinn Arnþórsson
Til frænda
51 Sindri Freysson
EX LIBRIS. „Hver sá er stelur þessari bók lokar hliðum
Himnaríkis“
54 Einar Ólafsson
Bókasafnið inn að kviku! Nordic Camps:
Þriggja ára þróunarverkefni
59 Bækur og líf
61 Afgreiðslutími safna
66 Höfundar efnis
Ritnefnd:
Einar Ólafsson, ritstjóri – bokasafnid.timarit@gmail.com
Kristín Ingunnardóttir, gjaldkeri – kingunnar@gmail.com
Áslaug Óttarsdóttir – aslaugo@hi.is
Kristína Benedikz – krist@hi.is
Anna María Sverrisdóttir – annams@landsbokasafn.is
Brynhildur Jónsdóttir – kopsson@simnet.is
Bókasafnið hefur frá árinu 1989 verið lyklað í Library &
Information Science Abstracts (LISA)
© 2012 Landsker bókasafna hf.
Notandanafn og lykilorð eru
þau sömu og á gegnir.is
Nýr leitarvefur
Frekari upplýsingar á bókasafninu
leitir.is?
Hvað finnur
þú á
Bækur
Greinar
Tónlist
Ljós-
myndir
Ritgerðir
Mynd-
efni
Tímarit
© 2012 Landsker bókasafna hf.
Notandanafn og lykilorð eru
þau sömu og á gegnir.is
l i
Frekari upplýsingar á bókasafninu
leitir.is?
Hvað finnur
þú á
B kur
Greinar
Tónlist
Ljós-
myndir
Ritgerðir
Mynd-
efni
Tímarit