Bókasafnið - 01.05.2012, Blaðsíða 48

Bókasafnið - 01.05.2012, Blaðsíða 48
48 bókasafnið 36. árg. 2012 Sveigjanleiki í starfsemi skólans er lykilatriði þegar kemur að skipulagningu skólasafnsins. Stjórnendur þurfa að skapa svigrúm fyrir samstarf og verkefnavinnu þegar stunda- töflur starfsmanna og nemenda eru skipulagðar. Þá þurfa starfsmenn einnig að sýna sveigjanleika til að samstarf gangi upp. Sameining skólasafns og tölvuvers og fullt starf bókasafns- og upplýsingafræðings og fagaðila í tölvum skapa kjöraðstæður fyrir samstarf og aukna verkefnavinnu. Aðstaða og búnaður skólasafns ræður afar miklu þegar starfsemi skólasafns er skipulögð. Þættir eins og staðsetning, stærð húsnæðis, mannafli, bókakostur, tölvur og annar tæknibúnaður skipta máli. Viðmælendur voru allt frá því að vera mjög ánægðir með safnið sitt niður í það að vera þokkalega ánægðir. Bókakostur og tækjabúnaður safnanna var yfirhöfuð góður en fer að þarfnast endurnýjunar. Það voru helst húsnæðismál og mannafli sem þurfti að bæta. 5. Samstarf og samstarfsverkefni innan skólans Samstarf bókasafns- og upplýsingafræðings, fagaðila í tölvum og kennara byggist á samstarfsvilja, svipaðri sýn á skólastarfið og stuðningi stjórnenda. Grundvöllur þess er háður vilja stjórnenda, starfshlutfalli, samstarfsvilja og þjónustulund. Ekki er víst að þessir þættir séu ávallt til staðar. Í Bugðu- og Flugumýrarskóla er öflugt samstarf við kennara og verkefnin skipulögð á sameiginlegum fundum. Tekið er mið af námskrá upplýsinga- og tæknimenntar og hún samþætt öðrum námsgreinum. Frumkvæði og hugmyndir koma oft frá bókasafns- og upplýsingafræðingum og fagaðilum í tölvum en lokaniðurstaða fæst með aðkomu kennara. Þó fá kennarar stundum fullmótaðar verkefnislýsingar. Í Tunguskóla er samstarfið skemur á veg komið. Þar kemur frumkvæði að samstarfsverkefnum frá fagaðila í tölvum. Samstarfið hefur þróast í tengslum við Evrópuverkefni og eru bundnar vonir við að kennarar sjái sér áframhaldandi hag í því. Í öllum skólunum er lögð áhersla á upplýsingaöflun og tölvufærni og það ríkir ánægja með samstarfið. Þá kemur fram að viðamikil verkefni væru vart gerleg nema með aðstoð frá bókasafns- og upplýsingafræðingi og fagaðila í tölvum við undirbúning, framkvæmd og framsetningu. Hver samstarfsaðili gegnir ákveðnu hlutverki. Í Bugðu- og Flugumýrarskóla er verkaskipting milli fagaðila skýr hvað varðar upphaf, undirbúning og úrvinnslu og komin er reynsla á hana. Í Tunguskóla tengist hún sérsviðum fagaðila. Bókasafns- og upplýsingafræðingurinn leiðbeinir nemendum við upplýsingaöflun, mat á heimildum og skráningu þeirra. Fagaðilinn í tölvum leiðbeinir nemendum með forrit og úrvinnslu verkefna. Kennarinn sér um kennsluna og sinnir agamálum. Oft er nemendahópnum skipt upp á milli kennara og bókasafns- og upplýsingafræðings og hvor aðili sinnir ákveðnum verkefnum með sínum hópum. Sérstakar aðstæður þurfa að vera til staðar í skólum og skólasöfnum svo samstarf af þessum toga geti átt sér stað. Fram kemur að það þurfi bæði bókasafns- og upplýsingafræðing og fagaðila í tölvum í tvær heilar stöður eigi slíkt samstarf að vera gerlegt. Þær ástæður sem eru nefndar fyrir samstarfi eru áhugi, svipuð sýn á skólastarfið og ákveðin framtíðarsýn ásamt viðhorfi og vilja til breytinga og löngun til að nýta mannaflann og þekkingu starfsfólksins. Loks eru tölvurnar nefndar sem áhrifavaldur og svipaður bakgrunnur hvað varðar nám og reynslu samstarfsaðila. Allir viðmælendurnir voru sammála um ótvíræðan ávinning af samstarfi þeirra í skólunum, bæði fyrir starfsmenn og nemendur. Þeir sáu gróskumikið skólastarf, breytta kennsluhætti og fjölbreyttari úrvinnslu námsefnis. Nemendur urðu hæfari og lærðu að búa til vefsíður, glærukynningar, framkvæma upplýsingaleit og ganga frá heimildum. Þá öðluðust þeir öryggi og lærðu sjálfstæð vinnubrögð. Samstarfið létti undir með kennurum og nemendur fengu betri aðgang að fagmönnum, bókakosti og tölvum. 6. Samantekt og umræður Í þeim skólum sem rannsakaðir voru hefur hlutverk skólasafna verið að breytast. Það er í samræmi við það sem Kuhlthau (2010) nefnir í sinni grein en þar kemur fram að þróun skólasafna þurfi að fylgja breytingum varðandi menntun á upplýsingaöld. Rannsókn mín leiðir í ljós að hefðbundin útlánastarfsemi bókakosts er ekki lengur aðalatriðið en í staðinn hefur upplýsingaöflun, verkefnavinna og samstarf við kennara og fagaðila í tölvum að sama skapi aukist. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að tilurð samstarfs af þessum toga er algjörlega undir starfsmönnum skólans og skólastjórnendum komið, þar sem skólar hafa jafnan ekki markað stefnu um slíkt samstarf. Í grein Morris og Packard (2007) staðfestu niðurstöður könnunar þeirra að góður árangur af samstarfi tengdist stuðningi skólastjórnenda og eftirfylgni þeirra við framkvæmd þess. Viðmælendur mínir töldu að skólastjórnendur þyrftu að skapa rammann utan um starf hvers skóla og jafnframt sýna ákveðinn sveigjanleika varðandi bindingu vinnutíma og stundaskrárgerð til að skapa svigrúm fyrir samstarf og verkefnavinnu. Í áðurnefndri rannsókn Montiel-Overall (2008) komu fram fimm meginþemu til árangursríks samstafs. Þau samræmast skoðunum viðmælenda minna um jákvætt viðhorf, stuðning og vilja stjórnenda til að viðhalda starfsemi safnanna. Sá stuðningur er enn mikilvægari í efnahagsþrengingum. Í Bandaríkjunum hafa skólasöfn einnig sætt fjárhagslegum niðurskurði. Enn verri er sá skortur á skilningi hjá kennurum, skólastjórnendum og foreldrum á því hversu arðbært gott skólasafn getur verið sé það metið í námsárangri nemenda (Martin, 2008). Þetta kemur heim og saman við mína rannsókn. Skólastjórnendur þurfa að gera sér grein fyrir mikilvægi safnanna og þeim tækifærum sem í þeim felast. Mikilvægt er að bókasafns- og upplýsingafræðingur og fagaðili í tölvum séu í fullu starfi. Þá þurfa skólastjórnendur að sýna samstarfsverkefnum áhuga og hvetja til þeirra. Starfsmennirnir verða að hafa samstarfsáhuga, svipaða sýn á skólastarfið og sýna sveigjanleika innan vinnutímans til þess að samstarfið gangi upp. Þeir verða að sjá samstarfið sem hluta af stefnumótun skólans og tilgangur þess og árangur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.