Bókasafnið - 01.05.2012, Blaðsíða 30
30
bókasafnið 36. árg. 2012
Ábendingarþjónusta fyrir rafrænar greinar
Á leitir.is er í boði ábendingarþjónustan bX.4 Ábendingar-
þjónustur (recommender service) þekkja margir, meðal
annars frá vefversluninni Amazon, en þjónustan bendir
notendum á skylt efni. Í leitir.is er þessi þjónusta eingöngu
í boði fyrir rafrænar tímaritsgreinar og er aðgengileg undir
flipanum ábendingar í leitarniðurstöðum. Einnig má nálgast
þjónustuna í SFX krækjukerfinu. Ábendingarþjónustan sem
rekin er af Ex Libris notar gögn sem eru sótt í loggskrár SFX
krækjukerfisins víðs vegar um heiminn (data mining). Um er
að ræða kostaða þjónustu sem Landskerfi bókasafna greiðir
árlegt gjald fyrir. Þessi viðbótarþjónusta er bókasöfnunum þó
að kostnaðarlausu.
Í framtíðinni verður þjónustan fjölbreyttari. Þegar þessi
grein er skrifuð hefur Ex Libris nýlega kynnt til sögunnar það
sem þeir kalla bX vinsælar greinar (bX Hot Articles) og er þar
um að ræða að notendur ákveðins fræðasviðs geta fylgst
með því hvaða tímaritsgreinar eru vinsælar á fræðasviði
viðkomandi. Þessar upplýsingar verður hægt að sækja í
gegnum farsímaforrit (apps).
6. Lokaorð
Hraðvirk samleit af því taginu sem möguleg er í leitir.is er
nýjung í safnaheiminum á Íslandi. Leitir.is samrýmist stefnu
íslenskra stjórnvalda, ríkisins og margra sveitarfélaga í
upp lýsingamálum og er í takt við tækniþróun á vettvangi
bóka safna erlendis. Hún uppfyllir að talsverðu leyti óskir
upplýsingaleitenda í dag um nútímalegt leitarumhverfi, gagn-
virka upplýsingamiðlun og fjölbreytta þjónustu svo nokkuð
sé nefnt. Bylting hefur orðið í aðgengi að Landsað gangi en
nú er möguleg samleit í tímaritsgreinum en ekki aðeins
tímaritatitlum líkt og áður var. Í gegnum ábendingarþjónustu
geta fræðimenn og námsfólk glöggvað sig á því hvaða
tímaritsgreinar það eru sem vekja athygli í heiminum í dag.
Leitir.is á að geta styrkt söfn í því að gera fjölbreytt
menningarverðmæti sýnileg og aðgengileg landsmönnum.
Einnig á hún að geta stuðlað að markvissari notkun á
kostuðum safnkosti líkt og Landsaðgangi. Í dag er það fyrst
og fremst safnkostur íslenskra bókasafna sem er leitarbær í
leitir.is en að því er stefnt að bæta við öðrum gagnasöfnum.
Ljósmyndir í eigu Ljósmyndasafns Reykjavíkur eru þegar
aðgengilegar í leitir.is og er það vísir að því sem koma skal,
aðgengi á einum stað að bókasöfnum, minja- og listasöfnum,
skjalasöfnum ásamt fleiri gagnasöfnum.
4. http://www.exlibrisgroup.com/category/bXUsageBasedServices
Þráinn / Káinn
Þannig er það með hann Þráin
að þjáir hann mjög stóra táin;
það er sundlaugasveppur
– og svo komu kreppur
í röðum eins og kvæði eftir Káin.
Súsúkí
Það er eitt sem Sigga er sjúk í
sem sumum finnst heldur spúkí
og segja það spé
að stúlkan hún sé
að sarga á fiðlu í Súzúkí.
Vellingur
Það var eitt sinn kolbiluð kelling
sem kunni að meta vel velling
og ef komst hún í hval
konan varð spinnigal.
og af honum át heilan helling.
Ballett
Er hann hrópaði og hristi á sér spikið,
hrelldi alla og fór yfir strikið;
menn héldu það tourette
en það var bara ballett
sem plagaði pilt svona mikið.