Bókasafnið - 01.05.2012, Side 12

Bókasafnið - 01.05.2012, Side 12
12 bókasafnið 36. árg. 2012 ekkert varð af kaupunum. Treglega gekk að selja bækurnar og olli því bæði öfund og óvild ýmissa aðila í garð Boga sem og eymd og örbirgð landsmanna í kjölfar móðuharðindanna. Til að bæta úr reyndi Bogi að prenta guðsorðabækur með leyfi stiftamtmanns en það hafði hann alls ekki haft á áætlun sinni. Það fór á sömu leið. Stórar bækur voru sérlega kostnaðarsamar og tókst ekki að selja þær til þess að hafa upp í kostnað. Bogi var þreyttur af mótstreymi, mæddur af útgjöldum og eilífu þrasi og dró sig í hlé. Hann hætti loks prentumsvifum og kom prentverkinu í hendur tengdasyni sínum Birni bónda Gottskálkssyni. Prentsmiðjan á eyjunni smáu í Breiðafirði starfaði í rúm 20 ár og út af þrykki gengu 83 titlar, langflestir fræðslurit. Frá prent- smiðjunni komu grundvallar bækur og bæklingar um efni sem vörðuðu íslenskt þjóðfélag eins og lög og stjórnmál. Textar voru aðlagaðir og höfðu að markmiði að upplýsa bændur um möguleika á nýtingu lands síns og hagræðingu í atvinnu- háttum. Önnur megin áhersla lá á bókaútgáfu til skemmtunar eins og kom glögglega í ljós með rímum eftir yngri höfunda og komu margar þeirra út á árunum milli 1777 og 1784. Úlfars rímur sterka eftir Þorlák Guðbrandsson Vidalín voru snemma gefnar út og nutu vinsælda. Útgáfa skemmtirita var þó á enda með endalokum prentverksins í Hrappsey og fóru lærðir menn upplýsingahreyfingarinnar að láta til sín taka.13 Margar Hrappseyjarbækur eru nú fátíðar og eftirsóttar og hafa ekki allra ötulustu safnarar getað aflað þeirra allra. Jafnvel konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn mun vanta eitthvað af þeim og átti það þó tilkall samkvæmt lögum til allra nýrra bóka í danska ríkinu þegar á dögum prentsmiðjunnar. Má og sjá af kansellíbrjefi 14. mars 1789, að aðstandendur prentsmiðjunnar hafa verið tregir að skila safninu bókum sínum og hafði ekkert frá henni komið þá síðan í árslok 1784.14 Islandske Maanedstidender hófu göngu sína í október 1773 og mun fyrsta hefti þeirra hið elsta sem í Hrappsey var prentað en það var skráð á dönsku sem við fyrstu sýn má teljast furðulegt. Ástæðan fyrir því er talin sú að prentsmiðjan átti um 200 fasta kaupendur í Danmörku sem Olaviusi tókst að safna í upphafi og forstöðumenn prentsmiðjunnar vissu að ekki myndi tjóa að bjóða þeim eintómar íslenskar bækur. Þetta var eitt af því fáa sem prentað var í Hrappsey með latínuletri, en með áramótunum er skipt um og gotneskt letur tekið upp. Þrír árgangar komu út á árunum 1773-76, hinn síðasti reyndar prentaður í Kaupmannahöfn. Er þetta elsta tímarit Íslendinga. Segir þar frá búnaðartíðindum, verslun og tíðarfari svo dæmi séu nefnd. Lögþingisbókin kom út í Hrappsey öll þau ár sem prent- smiðja var þar, alls 22 bækur. Töluvert var lagt í prentun sem Guðmundur Jónsson og Magnús Moberg önnuðust. Hún er falleg og vönduð að allri gerð eins og margt sem prentað var um þessar mundir. Auk þess komu út í Hrappsey sjö önnur rit um lögfræðileg efni. Var hið mesta þeirra Tilskipanasafnið. Athyglisvert er og jafnframt aðdáunarvert að menn leituðust við að prenta bækur sem alþýða manna gæti haft gagn og gaman af. Stórhuga menn reistu sér hurðarás um öxl en töldu verkið tilraunarinnar virði. Skarðsár annálar voru meðal þess merkasta sem út var gefið í Hrappsey. Höfundur þeirra var Björn Jónsson að Skarðsá og komu fram svo til samtímis tvær útgáfur á árunum 1774-75. Var önnur þeirra jöfnum höndum á íslensku og latínu þannig að hinn íslenski frumtexti var prentaður á fyrri síðu, en latnesk þýðing hinum megin á opnunni. Var sú útgáfa í tveim bindum, sitt árið hvort, og sagt að hún væri ætluð „lærðum mönnum og útlendingum“. Hin, sem ætluð var Íslendingum, var prentuð á íslenzku eingöngu og kom út í einu bindi fyrra árið, 1774, með formála útgefandans Olaviusar. Átti hann einnig þátt í latínuþýðingu fyrra bindis stærri útgáfunnar, en talið er að þar hafi hann notið aðstoðar Jóns Þorlákssonar.15 Upphaf Annálanna í fyrstu útgáfu er ríkulega myndskreytt með tréristum en að öðru leyti er bókin ekki skreytt að undanteknum rósabekk við upphaf fyrsta kafla. Af kvæðum og rímum voru gefin út 20 rit, þar á meðal svonefnd Tullinskvæði sem voru eftir Christian Braunmann Tullin eða Nockur þess alþeckta danska Skálds sál. Herr Christ. Br. Tullins Kæ-væde, med ltlum Vidbætir annars efnes eins og það var kallað. Það var gefið út 1774 og enginn minni þýðandi en Jón Þorláksson, síðar prestur að Bægisá, þýddi það á íslensku. Einnig voru í bókinni nokkur ljóð eftir aðra en fyrrnefndan Tullin, þeirra á meðal eftir Jón sjálfan. Þessi bók þótti mikil nýjung á Íslandi mest megnis vegna þess að efni var eftir ungan samtímamann. Áhugi á rímum jókst meðal landsmanna og þóttu þær hin besta skemmtun. Jarðvegurinn var því hagstæður fyrir útgáfu slíks efnis. Þorlákur Guðbrandsson sendi frá sér Riimur af Ulfari Sterka sem komu út 1775. Úlfarsrímur eru fyrstu veraldlegu rímur prentaðar hér á landi. Þær urðu vinsælar, allnokkuð keyptar og fóru víða. Fleiri rímur gengu út úr Hrappseyjarprenti. Rímur þóttu nýjung og nutu um langt skeið vinsælda hjá þorra almennings. Séra Björn Halldórsson í Sauðlauksdal var maður nýrrar hugsunar og hann hafði mikla þörf fyrir að láta gott af sér leiða með því að benda fátækum og ómenntuðum Íslendingum á nýjar leiðir til að afla sér matar og bæta búskap. Björn er þekktur fyrir að hafa fyrstur ræktað kartöflur á jörð sinni í Sauðlauksdal og hvatti menn til tilrauna á þessari jurt sem reyndist nokkuð auðræktuð og munaði um í pottum landsmanna. Björn var hluti af kynslóð upplýsingarmanna sem töldu að menntun og 13. Davíð Ólafsson: Wordmongers : post-medieval scribal culture and the case of Sighvatur Grímsson. Drg. University of St Andrews; 2008, bls. 91-92. 14. Jón Helgason: Hrappseyjarprentsmiðja 1773-1794. (Safn fræðafjelagsins um Ísland og Íslendinga, VI). Kaupmannahöfn: Hið íslenska fræðafjelag í Kaupmannahöfn; 1928, bls. 25. 15. Böðvar Kvaran: Auðlegð Íslendinga : brot úr sögu íslenzkrar bókaútgáfu og prentunar frá öndverðu fram á þessa öld. Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag; 1995, bls. 101-104.

x

Bókasafnið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.