Bókasafnið - 01.05.2012, Page 17
17
bókasafnið 36. árg. 2012
hvað honum viðvíkur. Í dag lítur vefsetrið svona út: http://
infolit10.latina.pedit.hio.no.
4. skref: Málstofur um ýmis efni, til dæmis kennslufræði, í
norrænu MLIS háskólunum, Bolognaferlið og svo framvegis.
Málstofurnar voru að lokum lagðar niður þar sem þær eru
venjulega of stuttar til að fólk legði á sig langa ferð innan
Norðurlandanna.
NordINFOLIT hefur sem sagt haldið áfram að þróast í áratug,
en hugtakið upplýsingalæsi hefur á þeim tíma verið mikið
í umræðunni um allan heim. Nú stöndum við frammi fyrir
breytingum sem sennilega þýða að aðeins ráðstefnuskrefið
lifir áfram. Eftirfarandi bréf sendi nýi stýrihópurinn á alla
póstlista norrænu landanna í byrjun árs 2012:
NordINFOLIT hefur boðið upp á stuðning, fræðslu og
innblástur fyrir háskólabókasöfnin í starfi þeirra við að
þróa kennslufræðihlutverk bókasafnsfræðinga og í
samvinnu þeirra við deildir háskólanna vegna kennslu í
upplýsingalæsi. Eftir innleiðingu Bolognaferlisins hefur
þýðing almennrar leikni, þar á meðal upplýsingahæfni,
hlotið viðurkenningu og er nú orðin þáttur í flestum
greinum í háskólum og á mörgum stöðum eru dæmi um
vel skipulagða samvinnu milli bókasafns og háskóladeilda
í norrænu löndunum. Kennsluhlutverk bókasafnanna er í
stöðugri þróun en stendur föstum fótum. Vegna þessarar
jákvæðu þróunar má segja að NordINFOLIT hafi lokið sínu
hlutverki. Þess vegna leggur sitjandi stýrihópur til að hin
norræna samvinna finni sér nýjan farveg. Við stingum
upp á eftirfarandi: Samvinna í núverandi NordINFOLIT
verður lögð niður og einnig hinn árlegi sumarskóli.
Norræna samvinnan heldur áfram með skipulagningu á
hinni farsælu ráðstefnu „Creating Knowledge“. Norrænu
löndin skiptast á að halda ráðstefnuna og það land sem
heldur hana hverju sinni gegnir einnig forystu í þessari
samvinnu. „Creating Knowledge“ var síðast haldin í
Bergen 2010 og nú er komið að Svíþjóð að taka við
stjórninni.
Jákvæð svör hafa þegar borist og það lítur út fyrir að
NordINFOLIT gangi inn í nýjan áratug virkt en með breytta
starfsemi og áætlanir um enn eina stóra alþjóðlega ráðstefnu,
sennilega í Lundi. Í dag er stýrihópurinn skipaður eins og
fram kemur hér að neðan. Fulltrúar Danmerkur og Færeyja,
Anne Cathrine Trumpy og Arnbjørn Ó. Dalsgarð, hafa ekki
setið í stýrihópnum síðan vorið 2011. Nánari upplýsingar
gefa meðlimir stýrihópsins, sem tekur einnig gjarnan við
athugasemdum, tillögum og hugmyndum.
Astrid Margrét Magnúsdóttir, formaður, Ísland,
astrid@unak.is
Bolethe Olsen, Grænland, bool@uni.gl
Karin Jönsson, Svíþjóð, Karin.Jonsson@sambib.lu.se
Lars Egeland, Noregur, lars.egeland@hio.no
Päivi Helminen, Finnland, paivi.helminen@helsinki.fi
Við Goðafoss eftir stjórnarfund stýrihóps NordINFOLIT haustið 2003. Talið frá vinstri, Hans Martin Fagerli (Noregur), Nina Ström (Svíþjóð), Christina
Tovoté (Svíþjóð), Kaisa Sinikara (Finnland), Annette Skov (Dannmörk) og Arnbjørn Dalsgarð (Færeyjar). Astrid Margrét Magnúsdóttir tók myndina.