Bókasafnið - 01.05.2012, Qupperneq 19
19
bókasafnið 36. árg. 2012
Lagt er til að félagsmenn ofangreindra samtaka sameinist
um nýtt starfsheiti, það er upplýsingafræðingur, sem kostar
ekkert en gerir stéttina nútímalegri og öflugri. Samkvæmt
lögfræðiáliti Láru V. Júlíusdóttur, sem hún gerði fyrir Upp-
lýsingu, er félagsmönnum heimilt að nota hvort heldur sem
er starfsheitin bókasafns- og upplýsingafræðingur, bóka-
safnsfræðingur eða upplýsingafræðingur.
Enn fremur eru dæmi um aukna aðsókn í fagið erlendis
þar sem skólar hafa breytt fagheiti úr bókasafnsfræði í
upplýsingafræði. Einnig sýna dæmi mikinn launamun á milli
bókasafnsfræðinga og upplýsingafræðinga í stéttinni víða
erlendis.
Vinnuhópurinn
Formaður Upplýsingar, Hrafnhildur Hreinsdóttir, kallaði eftir
upplýsingafræðingum til að vinna að ímyndarvinnu stéttar-
innar haustið 2010 og komu um 15 manns saman á fyrsta
fundi. Í dag telur hópurinn átta manns af margvíslegum
sviðum atvinnulífsins.
Fljótlega komst hópurinn að þeirri niðurstöðu að kalla til
Fjalar Sigurðarson almannatengslaráðgjafa til að fá hlutlausa
sýn á málið og sérfræðiálit.
Lýsing á vinnuferli:
Fyrsta verk Fjalars var að setja hópnum fyrir heimavinnu.
Meðlimir Ímyndarhóps áttu að punkta niður hvað þeir gerðu
í vinnunni. Sjálfur lagðist Fjalar í heimildavinnu um fræðin og
stéttina.
Hann fékk síðan senda lýsingu frá okkur í hópnum. Fjalar
lagði til að nálgast þetta viðfangsefni með lyftufrasa, meðal
annars til þess að við gætum sagt fólki á 30 sekúndum hvað
stéttin gerir og haldið athygli þess. Þá var unnið upp úr
starfslýsingum okkar sem og starfslýsingu sem SBU var búið
að útbúa. Með því móti var hægt að finna út það sem er öllum
félögum sameiginlegt og hverfa frá því að kenna stéttina við
stað, (bókasafn), en þess í stað fremur við innihald starfsins.
Ímyndarhópurinn sameinaðist um þennan lyftufrasa eftir
mikla yfirlegu. Hann er þó ekki endanlegur, enda æskilegt að
hann þróist áfram í breytilegu vinnuumhverfi.
Lyftufrasinn: Upplýsingafræðingur skipuleggur upplýs -
ingar og greiðir almenningi, atvinnulífi, skólum og vísinda sam-
félagi aðgang að afþreyingu og áreiðanlegri þekkingu (hvort
sem er á stafrænu eða áþreifanlegu formi).
Þegar Ímyndarhópurinn hafði komist að niðurstöðu um að
starfsheitið upplýsingafræðingur (sjá mynd 1) hentaði betur
en bókasafns- og upplýsingafræðingur okkur til framdráttar,
hvort sem það væri í starfi eða í kjarabaráttu, var tekin sú
ákvörðun að halda sameiginlegan kynningarfund haustið
2011 með félögum Upplýsingar og SBU. Á þeim fundi
var verkefnið kynnt fyrir félagsmönnum og fengið vilyrði
fyrir áframhaldandi starfi Ímyndarhópsins um starfsheitið
upplýsingafræðingur. Áður hafði verið kynningarfundur á
Morgun korni Upplýsingar um ímynd bókasafns- og upp-
lýsingafræðinga og bókavarða, 14. apríl 2011 þar sem Fjalar
Sigurðarson kom og kynnti fyrir félagsmönnum af hverju
ástæða væri fyrir okkur að fara út í þessa vinnu.
Það þarf að horfa til þróunar í námi og starfi stéttarinnar.
Rannsóknir víða um heim varpa ljósi á þörf fyrir þróun í námi
og starfi og hafa margir háskólar orðið við henni.
Fræðin og þróun stéttar
Taiga Forum lagði fram ögrandi staðhæfingar um framtíð
fræðanna:
1. Á næstu fimm árum mun skipulag bókasafna/upp-
lýsingastöðva leysast upp og fletjast út. Söfnin munu
hafa minna sjálfræði og staða safnafólks heyra undir
aðrar deildir eða önnur svið. Þessi þróun er þegar
hafin.
2. Innan fimm ára munu stjórnvöld krefjast enn meiri
niðurskurðar á fjárveitingum til sérfræðisafna og lögð
verður áhersla á róttækari samvinnu og sameiningu
meðal háskóla í samkeppni, samnýtingu safnkosts
þeirra og aukna úthýsingu með sameiginlegu starfs-
manna haldi og samþættri þjónustu.
3. Innan fimm ára munu háskólasöfn annaðhvort
velja samstarfsaðila eða þeir verða valdir fyrir þau.
Bókasafnsfræðingarnir munu ekki lengur geta haldið
fram kenningunni um bókasafnið sem samkomustað
án þess að opna það fyrir annars konar starfsemi.
4. Innan fimm ára munu viðskiptavinir bókasafna
fullnægja öllum upplýsingaþörfum sínum á vefnum
og munu aldrei fara í söfnin. En á sama tíma munu þeir
dásama þau sem helgidóma þar sem hægt sé að eiga
samneyti við bækur. Söfnin munu svara með því að
bjóða upp á hannaðar sýningar á bókum sem skrauti
og fegurðarauka.
Mynd 1 - Upplýsingafræðingur