Húnavaka - 01.05.2007, Page 120
118
HUNAVAKA
- Við skulum ekki fara báðir inn í einu ef einhver kæmi og læsti okkur
inni.
- Nei, alls ekki. Þú ert svo helvíti handleggjalangur að þú ættir að geta
náð í pokann.
Þetta reyndist rétt. Handleggjalangi fjallskilanefndarritarinn náði í eitt
hornið og í sameiningu tókst þeim að að drösla skrokknum út. Það var
baks að opna pokann en að því loknu blasti \'ið þeim glæpurinn. Það var
rétt, hann var dauður, stirðnaður, með brostin augu og bæði eyrun af
skorin.
- Nú líst mér á, tautaði Jón. Ingi lýsti framan í skepnuna sem mest
hann mátti.
- Það var gott að ég keypti þetta vasaljós í Byko. Það var algjör dlviljun,
ég tók það bara óvart nteð þegar ég keypti brotvélina.
- Stundum leikur lánið við mann.
Það var kaldsamt við gáminn, frosdð beit í kinnarnar og rauðleitur
rnáninn glotti til félaganna af himinhvolfinu.
- Það er ekkert skotsár, sagði Jón, í framan eins og Sherlock Holmes á
góðum degi.
- Nei, ekki skorinn og allir fætur heilir, tuldraði Ingi sem var orðinn
rauður á nefinu umfram venju.
- Þetta er grunsamlegt kalla ég. Fjandans vesen alltaf.
Ingi lyfd upp lærinu.
- Sjáðu, hann er blár.
Félagarnir litu hvor framan í annan, hróðugir og með óendanlegan
feginleik sem speglaðist úr andlitunum. Málið upplýst, hrússi hafði drep-
ist úr pest og eigandinn ekki nennt að losa sig \ið hann á annan hátt.
Þeir pökkuðu líkinu eins og fyrr hafði verið gert og skiluðu á sinn stað.
- Fjandans kuldi maður, sagði Ingi og barði sér. Komdu inn í bíl og
hitaðu þér, það er svo fjandi kalt. Þú hlýtur að geta sagt mér eitthvað
skemmtilegt í leiðinni.
Þeir settust inn í silfurgráa súkkuna og fjallskilastjórinn leit á ritarann
sinn.
- Hva, ertu á gamla bílnum?
Hinn varð nú eitthvað fár við. Jón glotti.
- Sérðu ekki að ég er kominn á splunkunýjan jeppa?
- Þeir litu hvor á annan, síðan á gáminn, áður en hláturinn gusaðist
út úr þeim. Svo sátu þeir félagarnir og hlógu á meðan nóttin læddistyfir,
svæfandi og dimm. Fjármál í Svínavatnshreppi hinum forna......aldrei
neitt mál fyrir rétta menn á réttum stöðum.