Húnavaka - 01.05.2007, Page 162
Mannalát árið 2006
Hjálmur Sigurðsson,
Skagaströnd
Fœddur 17. ágúst 1949 - Dáinn 27. febrúar 2006
Hjálmur Sigurjón Sigurðsson fæddist í Reykjavík. Foreldrar hans eru
Guðbjörg Hjálmsdóttir og Sigurður Sigurjónsson. Hjálmur var elstur
fimm systkina en hin eru; Steinunn, gift Bjarna Vésteinssyni, Ragnar,
kvæntur Sigríði Jenný Guðmundsdóttur, Sigurður, kvæntur Ingibjörgu
Eiríksdóttur og Reynir, kvæntur Þórrúnu Þorsteinsdóttur.
Hjálmur ólst upp í Bústaðahverfi í Reykjavík og var virkur þátttakandi
í íþrótta- og félagsstarfi. Hann var frá unga aldri firnasterkur og mikill
keppnismaður í íþróttum. Hann keppti í frjálsum, handbolta og glímu,
vann alls staðar til verðlauna og setti met sem lengi stóðu.
Oll sumur frá 6 til 15 ára aldurs var hann í sveit að Kornsá í Vatnsdal
hjá Kristínu, móðursystur sinni og Gesti Guðmundssyni. Stúdent varð
Hjálmur frá MR árið 1969 og síðan viðskipta-
fræðingur frá Háskóla Islands árið 1973.
Hjálmur kvændst, 6. júní árið 1970, Sigríði
Rut Sigurðardóttur. Foreldrar hennar eru
Jónína Bárðardóttir og Sigurður Þórðarson,
sem er látinn. Börn þeirra Hjálms og Sigríð-
ar eru; Guðbjörg, stoðtækjafræðingur og
tamningakona, sambýliskona hennar er Ann-
eli Rásmark, Harpa, dýrahjúkrunarfræðingur,
gift Brett Harris, Olafur Freyr verkfræðingur
og Asdís lyfjafræðinenti.
Hjálmur starfaði við bókhald og rekstur en
hafði á námsárum unnið í Hvalstöðinni og
verið kennari í Réttarholtsskóla. Lengst af
starfsævi sinni var hann þó skrifstofustjóri hjá Miðfelli og síðar fjármála-
stjóri hjá Armannsfelli. Eftir það vann hann sjálfstætt viö bókhaldsstörf
fyrir ýrnis fyrirtæki, allt frarn til ársins 2004 þegar hann söðlaði um og
gerðist æskulýðs- og tómstundafulltrúi á Skagaströnd og var þar kominn