Húnavaka - 01.05.2007, Page 164
162
H Ú N A V A K A
Þegar Indriði flutti úr föðurgarði fór hann þangað sem vinnu var að
hafa og starfaði einkum við fískverkun. Indriði kynntist eftirlifandi eigin-
konu sinni, Guðrúnu Angantýsdóttur (f. 1940), þegar þau voru bæði í
síld á Siglufirði. Þegar Indriði kom til að vinna á Skagaströnd hittust þau
aftur og gengu í hjónaband 30. maí 1958. Bjuggu þau á Skagaströnd eft-
ir það.
Þau Indriði og Guðrún eignuðust fjögur börn. Elst er Sigurbjörg Ar-
dís, bókavörður, f. 1959. Hún er gift Birni Inga Oskarssyni kerfisstjóra
og eiga þau þrjá syni. Næstelstur er Hjalti Hólmar, sjómaður, f. 1964.
Hann var kvæntur Cristinu Siloud Yecyec en þau slitu samvistir, eiga þau
einn son. Þá er Jón Hilmar, vélstjóri, f. 1968. Hann er kvæntur Kristinu
Theódóru Hreinsdóttur. Börn þeirra eru tvö. Yngstur er Jóhannes Heið-
mar, sjómaður, f. 1977. Sambýliskona hans er Margrét Björk Magnúsdótt-
ir og börn þeirra eru þrjú. Indriði átti tvo syni fyrir hjónaband. Eldri er
Ingþór sjómaður, f. 1952. Hann er kvæntur Guðnýju Onnu Ríkharðsdótt-
ur og eiga þau tvö börn. Ingþór var áður í sambúð með Ingibjörgu
Hauksdóttur og eiga þau tvær dætur. Yngri er Gunnar, f. 1955. Kona
hans er Guðrún Svanhvít Guðjónsdóttir og eiga þau tvær dætur.
Indriði kynntist ungur almennri sveita-
vinnu en ekki fór það svo að hann gerði bú-
skapinn að sínu ævistarfi heldur var það
sjómennskan sem hann stundaði meiri hluta
ævinnar. Hann hafði samt sem áður yndi af
skepnum og var árum saman með töluverðan
bústofn. Indriði vann og við múrverk mestan
hluta áttunda áratugarins. Þegar hann var um
sextugt hætti hann á sjónum og eftir það var
hann meðal annars að beita og \'akta togara.
Indriði átti bát ásamt öðrum manni í um tíu
ár og stundaði útgerð á honum og var á grá-
sleppu.
Indriði var góður eiginmaður og ástríkur
fjölskyldufaðir og vann hörðum höndum alla
tíð til að tryggja velferð fjölskyldu sinnar. Hann byggði fjölskyldu sinni
hús við Hólabraut 3 og sýndi þar bæði drifkraft og útsjónarsemi til að
allt yrði sem best úr garði gert.
Aður en veikindin knúðu dyra var Indriði orkumikill og sístarfandi.
Hann hafði yndi af útivist og sérstaklega hafði hann gaman af veiðum og
fór bæði á rjúpu og í stangaveiði. Þegar hann gekk til rjúpu var hann
gjarnan svo sporléttur að menn sem voru áratugum yngri máttu hafa sig
alla við til að halda í \að hann. Indriði hafði einnig gaman af því að ferð-
ast, sérstaklega innanlands. Þau hjónin fóru margar ferðir kringum land-
ið, þá var gjarnan gist í bændagistingu og Indriði sá um matseldina en
hann var laginn á því sviði og eldaði hann einmitt oft fyrir skipsfélaga
sína. Það eins og flest annað hafði hann lært í skóla lífsins.