Húnavaka - 01.05.2007, Page 170
168
HUNAVAKA
og smitandi lilátri að leikfélagið bauð henni sérstaklega á sýningar af því
að hún var svo góður áhorfandi.
Þórður andaðist fyrir tveimur árum síðan en Sveinbjörg bjó áfram á
heimili sínu nánast fram á síðasta dag. Hún andaðist á Heilbrigðisstofn-
uninni á Blönduósi eftir skamma legu.
Utför hennar fór fram frá Blönduósskirkju þann 21. júní.
Sr. Petrína MjöllJóhannesdóttir.
Skafti Fanndal Jónasson,
Skagaströnd
Fceddur 25. maí 1915 - Dáinn 2. september 2006
Skafti Fanndal fæddist á Fjalli á Skaga. Foreldrar hans voru Jónas Þor-
valdsson bóndi á Fjalli (f. 1875 -d. 1941) og kona hans, Sigurbjörgjón-
asdóttir (f. 1885 -d. 1980).
Skafti var næstyngstur af fimm systkinum, eldri voru Guðríður (f. 1908
-d. 1982), Ólafur Agúst (f. 1909 -d. 1980) og Hjalti Líndal (f. 1911 -d.
1935). Jóhanna, f. 1917, systir Skafta er ein lifandi af þeim systkinum og
er búsett á Skagaströnd.
Skafti var alinn upp á Fjalli hjá foreldrum sínum og ungur kynntist
liann hefðbundnum sveitastörfum. Hann lauk hefðbundnu barnaskóla-
námi og árið 1935 hafði hann ráðgert að fara í Eiðaskóla en þá lést Hjalti
bróðir hans og fóru þau áform því út um þúfur. Skafti tók síðar
mótorfræði í Bréfaskólanum og eftir það próf á Akureyri til að verða sér
út um svokölluð mótoristaréttindi sem gáfu honum leyfi til að stjórna
margs konar vélum. Það má því segja að Skafti hafi að mestu leyti verið
sjálfmenntaður og umfram allt var hann laginn við að tileinka sér nýj-
ustu tækni enda áhugasamur um allt sem laut að vélum. Bókhneigður
var Skafti alla tíð en undir það síðasta var sjónin orðin slæm og átti hann
erfitt með að lesa en í staðinn hlustaði hann á hljóðsnældur.
Skafti kynntist ungur lífsförunaut sínum, Jónu Guðrúnu Vilhjálmsdótt-
ur (f. 1918, d. 2003). Þau gengu í hjónaband 17. júní 1939 í Ketukirkju á
Skaga og höfðu verið gift í 64 ár þegar Jóna lést.
Sama ár og þau Skafti ogjóna giftu sig hófu þau búskap á Fjalli og
bjuggu þar til ársins 1941 er þau fluttu búferlum til Skagastrandar. Þar
byggðu þau sér hús úr gömlum vegavinnuskúr sem fluttur var frá
Blönduósi og gáfu því nafnið Dagsbrún. Það var þó ekki eina húsið sem
Skafti byggði. Ái ið 1947 byggði hann í samvinnu við Ólaf Ágúst, bróður
sinn, hús á Skagaströnd sem nefnt var Bræðraminni. Dagsbrún var lítið
hús en var síðan stækkað eftir því sem börnunum fjölgaði en Skafta og
Jónu auðnaðist að eignast fimrn börn sem komust til manns en tvo
drengi eignuðust þau sem fæddust andvana.
Elstur barna þeirra er Hjalti, f. 1940, eiginkona hans er Jónína Arn-