Húnavaka - 01.05.2007, Page 184
182
H Ú N A V A K A
mikil sólbráð og hiti fór upp í 10
stig. Næstu tvo daga, hægviðri, þó
gekk á með slydduéljum en festi
ekki á láglendi. Glaðasólskin 27.
apríl og fuglarnir syngja glaðir.
Hlýindi 28.-30. apríl. Hitinn fór í
17 stig með asahláku en þoku sló
yfir síðdegis þann 30. og hitinn féll
í 0 stig.
Maí.
Alhvíttað morgni 1. maí Þokan
hvarf og hlýnaði í 9 stig og snjóinn
tók upp. Maríuerlan kom. Næsta
dag sópaði sunnangola síðasta ísn-
um af Laxárvatni. Dagana 4.-10.
maí voru hlýindi og hver dagurinn
öðrum betri. Hitinn náði 10 stig-
um. Mikil leysing til fjalla og fór að
sjást litur á túni og nál í úthaga.
Heyrði í spóanum 8. maí. Morgun-
Jíoka 11. maí, svöl norðangola
með eins stigs frosti um kvöldið.
Kvöldsvalir næstu tveir dagar, Jdó
hlýtt í sólinni um hádaginn. Norð-
austan kul og bjartir, svalir dagar
14.-18. maí, allt frá eins stigs næt-
urfrosti upp í tíu stiga hita í sólinni
um hádaginn. Svalir og gráir dag-
ar 19.-20. maí og sporrækt af ný-
föllnum snjó að kvöldi 20. Næstu
tvo daga gekk á með éljum en festi
þó ekki á láglendi. Næturfrost fór í
5 stig. Norðanhríð, eins og versta
vetrarveður, með skafrenningi og
snjókomu 23. maí. Komið stillt
veður þann 24. en alhvítt út að líta
og frost 2 stig. Langþráð skyggni
til Strandafjalla 25. maí og kominn
8 stiga hiti um kvöldið. Góðir dag-
ar 26.-31. maí. Hiti fór upp í 11 sdg
og aðfaranótt 31. rigndi. „I nótt
urðu allar grundir dalsins grænar,“
(G.B.) hef ég skrifað í dagbók
mína.
Júní.
Það rigndi drjúgt í nótt 1. júní
og hiti fór í 11 stig. Gróðurinn
virðist hafa staðið nokkuð af sér
kuldahretið. Snjórinn hlífði. Vot-
viðrasamt 2.-7. júní. Gróðri fór vel
fram enda ekki næturfrost. Hlýir
og góðir dagar 8.-11. júní en mjög
rigningasamt. Hiti fór niður í 3 sdg
þann 11. Nöturlega kalt og grán-
aði í fjöll 12. júní og komið í 0 stig
um kvöldið.
Setti kartöflur niður í fjTstu beð-
in 13. júní. (Tók upp ætar kartöfl-
ur 1. ágúst og sótti mér í soðið
efdr Jnað). Suðvestan regndembur
14. júní. Hiti mest 12 sdg. Gott og
hlýtt veður 15. júní og 9 sdga hid.
Næsta dag var suðvestan garra -
regn síðdegis. Ausandi rigning
lengst af degi 17. júní og 9 stiga
hiti. Hlýindi og yfirleitt góðviðri
18.-20. júní. Hægviðri eða suðvest-
an gola. Hiti 5-14 stig. Logn og
jDoka þann 21. en norðaustan kul
um kvöldið. Fagrir góðviðrisdagar
22.-30. júní. Hitinn fór mest í 21
sdg jDann 24. og 20 stig 28. og
þann 26. rigndi drjúgt. Mánuður-
inn var gróðri góður.
Júlí.
Hlýtt og skúraveður 1. júlí.
Sama veður næsta dag nema
haglél síðdegis og svalara um
kvöldið, hiti 4 stíg. Hlýir regndagar
3.-5. júlí. Allhvasst þann 4. og hiti
fór í 20 stig 3. júlí. Norðan kalsa-
regn 6.-8. júlí. Hiti 2-7 stig. Sólfag-
ur svalur dagur þann 9. Liðnir þrír
dagar skildu eftir nýsnævi í Svína-
dalsfjalli. Góðviðri næsta dag og
hidnn fór í 20 stig. Norðan kul 11,-
12. júlí. Kafþoka með regnslúð síð-