Læknablaðið - 01.09.2015, Side 20
408 LÆKNAblaðið 2015/101
s-þríglýseríð og s-HDL voru óbreyttar frá upphafi til loka með-
ferðar. Hins vegar var göngugetan áfram marktækt aukin, þó hún
hafi minnkað nokkuð. Vegna ýmissa tilfallandi heilsufarsvanda-
mála reyndist ekki unnt að taka göngupróf hjá öllum sem mættu
í endurkomur.
Mikil breyting hafði orðið á hreyfivenjum og líkamlegri virkni
rannsóknarhópsins frá upphafi meðferðar fram að endurkomum
eftir þrjá og sex mánuði. Í upphafi mátu einungis 11% hreyfingu
sína í stig 3-4, en 43% í endurkomu eftir þrjá mánuði og hélst sú
aukning líka eftir sex mánuði (mynd 5).
Í töflu III er sýnd lyfjameðferð við sykursýki hjá rannsóknar-
hópnum. Við upphaf rannsóknarinnar voru 13 sjúklingar (23%) á
insúlínmeðferð og meðalskammtur var 74 einingar á sólarhring.
Fjórir þessara einstaklinga féllu úr rannsókninni, þar af einn á
meðferðartímanum. Ekki var hafin ný insúlínmeðferð hjá neinum
sjúklingi á rannsóknartímanum. Engin tilvik urðu af alvarlegum
blóðsykurföllum á meðferðartímanum.
R a n n S Ó k n
Af þeim 56 sem tóku þátt í rannsókninni höfðu margir fyrri
sögu um reykingar. Fimm (9%) reyktu enn við komu og tveir þeirra
voru ekki alveg hættir reykingum við útskrift. Við endurkomu
eftir þrjá og sex mánuði voru þeir þrír sem hættu reykingum enn
reyklausir, en þeir tveir sem reyktu við útskrift reyktu enn eftir
þrjá mánuði og mættu ekki eftir sex mánuði.
Umræða
Þessi rannsókn á sykursýki af tegund 2 meðal þeirra sjúklinga
sem komu til hjartaendurhæfingar á Reykjalundi frá júlí 2011
til desember 2012, sýndi að algengi sykursýki var miklu hærra í
þessum hópi en í almennu þýði á Íslandi. Samanburður við aðra
hjartasjúklinga í endurhæfingu sýndi að hópurinn með sykursýki
var talsvert frábrugðinn öðrum hvað varðar þyngd, mittismál og
hlutfallslega fleiri þeirra voru með offitu. Ekki var marktækur
munur á hámarksafköstum í þolprófi við upphaf meðferðar, en
þrek sykursjúkra var lægra þegar tekið var tillit til líkamsþyngdar.
Endurhæfing rannsóknarhópsins með sykursýki gekk þó almennt
vel, en báðir hóparnir, með og án sykursýki, léttust, mittismál
þeirra minnkaði og ekki reyndist marktækur munur á þeirri
breytingu á milli hópanna. Einnig bættu báðir hóparnir við sig í
þreki, en þrek þeirra sem höfðu sykursýki jókst heldur minna en
annarra hjartasjúklinga.
Tafla II. Samanburður á mælingum hjá hjartasjúklingum með sykursýki af tegund 2 í endurhæfingu; við upphaf og lok meðferðar og við endurkomu eftir 3 og 6 mánuði.
Upphaf Lok Endurkoma eftir 3 mánuði Endurkoma eftir 6 mánuði
Fjöldi, n (%) 56 (100) 54 (96) 49 (88) 46 (82)
Þyngd, kg 100,4 ± 18,5 98,5 ± 17,6* 99,5 ± 17,2 99,7 ± 17,9
LÞS, kg/m2 33,2 ± 5,9 32,6 ± 5,6* 32,8 ± 5,7 33,0 ± 6,1
Mittismál, cm 113,8 ± 13,5 111,3 ± 13,2* 111,2 ± 12,4* 110,8 ± 13,1*
Fituhlutfall, % 33,8 ± 6,7 33,0 ± 7,0* 33,7 ± 6,1 33,7 ± 6,5
6 mínútna göngupróf
Vegalengd, m 512 ± 96 546 ± 100* 537 ± 96* 525 ± 107*
Fjöldi, n 55 53 43 38
Fastandi s-blóðsykur, mmól/L 6,9 ± 1,7 6,3 ± 1,1* 6,8 ± 1,5 7,1 ± 1,9
HbA1c, % 6,7 ± 1,1 6,7 ± 1,0 6,8 ± 1,0
s-þríglýseríð, mmól/L 1,6 ± 0,7 1,6 ± 0,8 1,6 ± 0,7
s-HDL, mmól/L 1,2 ± 0,7 1,2 ± 0,3 1,2 ± 0,4
Reykingar, já/nei 5/51 2/52 2/47 1/45
LÞS= líkamsþyngdarstuðull. Meðaltöl ± staðalfrávik. *p<0,05 í samanburði við mælingu í upphafi meðferðar.
Tafla III. Lyfjameðferð við sykursýki af tegund 2 á rannsóknartímabilinu.
Upphaf Lok Endurkoma
eftir 3
mánuði
Endurkoma
eftir 6
mánuði
Fjöldi, n (%) 56 (100) 54 (96) 49 (88) 46 (82)
Engin sykursýkislyf, % 12,5 9,3 8,2 6,5
Sykursýkislyf:
Metformin, % 78,6 81,5 83,7 84,8
Súlfónýlúrea lyf, % 32,1 35,2 34,7 32,6
önnur sykursýkislyf, % 7,1 7,4 8,2 10,9
Insúlínmeðferð, % 23,2 22,2 20,4 19,6
Insúlíneiningar 74 ± 49 62 ± 40 61 ± 42 57 ± 44
Athugið að samtalan í dálkunum getur verið hærri en 100%, þar sem sumir eru á fleiri
en einu lyfi.
Mynd 5. Hreyfivenjur og líkamleg virkni hjartasjúklinga með sykursýki af tegund 2.
Samanburður á svörum um hreyfivenjur við upphaf endurhæfingar og síðan við endur-
komur 3 og 6 mánuðum eftir lok meðferðar. Hreyfing 1 (ljósgráar súlur) er aðallega
kyrrseta, hreyfing 2 (milligráar súlur) er létt líkamleg áreynsla í minnst tvo tíma á viku
og hreyfing 3 og 4 (dökkar súlur) er hreyfing með talsverðri eða mikilli áreynslu minnst
tvo tíma á viku.
*p<0,001 í samanburði við upphaf endurhæfingar.